Skessuhorn


Skessuhorn - 26.11.2003, Síða 10

Skessuhorn - 26.11.2003, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 26. NOVEMBER 2003 ^uiiasunu^ Sparísjóður Mýrasýslu 90 ára og alltaf sí-ungur Nú fer að líða að lokum af- mælisársins okkar en, eins og flestum er kunnugt, átti Spari- sjóður Mýrasýslu 90 ára afmæli þann 1. október síðastliðinn. Snemma á árinu var skipuð nefnd sem skyldi starfa allt árið og sjá um undirbúning og koma með hugmyndir að því sem gera skyldi í tilefni þessara tímamóta. Akveðið var að bjóða öllum sem þiggja vildu, frítt í Sund- Iaug Borgarness þann 21. júní. Veðurguðirnir voru okkur sér- lega hliðhollir þennan dag, al- veg frábært veður og fjöldi manns mætti. Sparisjóðurinn bauð upp á léttar veitingar sem starfsfólk hans bar fram á laug- arbakkanum. Skreytt var með blöðrum og hljómsveitin Þotu- liðið lék fyrir sundlaugargesti. í ágúst var 14-16 ára ung- lingum sem lagt höfðu launin sín inn í Sparisjóðinn boðið í eins dags óvissuferð. Ferðin var skipulögð af Bjarna hjá Centrum Natura á Húsafelli og innihélt hellaskoðun, ham- borgaraveislu, fossaklifur, stökk og sundferð. Endaði ferðin svo með hressingu í Húsafelli áður en haldið var heim. Að sögn unglinganna og fylgdarmanna var þetta mikil ævintýraferð og vel heppnuð í alla staði, tvær starfsstúlkur úr S.M. voru með í ferðinni ásamt skipuleggjendum frá Húsa- felli. Það er gaman að geta þess að unga fólkið sem fór í þessa ferð var að sögn stúlknanna frá S.M. til fyrirmyndar í alla staði bæði kurteist og þakklátt. Svo rann upp sjálfur afmæl- isdagurinn 1. október. Þann dag var boðið upp á veitingar í afgreiðslusalnum Borgarbraut 14. Risastór marsipanterta frá Geirabakaríi og kaffi, svali og sælgæti fyrir börnin. Nokkur hundruð manns komu á stað- inn og voru afmælisgestum gefnar smágjafir. Mjög ánægjulegur dagur Sú hugmynd kom upp að gaman væri að fá unga lista- fólkið á svæðinu til að sýna verk sín. Var öllum grunnskól- unum boðin þátttaka. Stjórn- endur allra þessara skóla tóku vel í hugmyndina og vorum við mjög ánægð með það, sýnd voru verk frá öllum skólum og skipt um vikulega. Þetta var mjög skemmtileg tilbreyting og margt vel og fallega gert. Þeir skólar sem tóku þátt voru: Lýsuhólsskóli, Laugagerðis- skóli, Varmalandsskóli, Anda- kílsskóli, Kleppjárnsreykja- skóli, Heiðarskóli og Grunn- skólinn í Borgarnesi. Undan- farnar vikur hafa Steinunn Asta Guðmundsdóttir og Guðrún Daníelsdóttir farið í þessa sömu skóla og fært öllum nem- endum sundfatapoka að gjöf frá Sparisjóðnum. Einnig voru skólunum gefnar veggklukkur með nafni og merki Spari- sjóðsins, þessar klukkur munu líka verða gefnar fyrirtækjum hér á svæðinu. Þann 4. desember næstkom- andi verður boðið til jólatón- leika í Reykholtskirkju. Þar koma fram 5 kórar úr héraðinu ásamt kvartett, sannkölluð söngveisla. Boðið verður upp á kaffi og heiinabakaðar smákök- ur í hléinu. Það kostar að sjálf- sögðu ekkert inn þar sem þetta er í boði Sparisjóðs Mýrasýslu. Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta. Tónleikarnir eru nánar auglýstir í blaðinu. Undanfarna ntánuði hefur Snorri Þorsteinsson unnið að samantekt á sögu Sparisjóðsins og mun sú bók koma út á næst- unni. Bókin mun verða send inn á hvert heimili á viðskipta- svæðinu. Okkur langar til að kveðja þetta afmælisár með hressilegri uppákomu ef því verður við komið, það mun verða auglýst síðar ef af verður. Að lokum viljum við þakka öllum okkar mörgu viðskipta- vinum og velunnurum sem minnst hafa Sparisjóðsins á af- mælisárinu, bæði með þátttöku í þeim atburðum sem boðið var upp á og á annan hátt. Vonum að fólk hafi haft á- nægju af. Til þess var leikurinn gerð- ur. f.h. Sparisjóðs Mýrasýslu -afmælisnefhdin-

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.