Skessuhorn


Skessuhorn - 26.11.2003, Qupperneq 15

Skessuhorn - 26.11.2003, Qupperneq 15
^&iissunu.. MIÐVIKUDAGUR 26. NOVEMBER 2003 15 Nepalmót f knattspyrnu Knattspyrnudeild Skallagríms og hugbúnaðarfyrirtækið Nepal í Borgarnesi haida hópa og iiðakeppni í innanhús- sknattspyrnu 29. nóvember. Leikregiur verða svohljóðandi. a) Leikið verður með 4 leik- menn inná í hverju liði, há- marks fjöldi í liði eru 7. b) Veggir og loft munu teljast til vallarins. c) Ekki verður leikið með markverði. Eftir mark mun vera tekin markspyrna. Leikið verður f 2 X 5 mínútur. KSÍ reglur að öðru leiti. Verðlaun verð veitt fyrir 1.-3. sæti. Þátttökugjald fyrir hvert lið er 5.000 kr. Tilkynnið þátttöku í síma 616- 2335 Jón Arnar eða á tölvu pósti á knattspyrna @skallagrimur.is fyrir kl. 22.00 fimmtudags- kvöldið 27. nóvember. Munið að senda nafn liðs, síma og nafn þess sem skráir liðið. Tveir sigrar Skallagríms á þremur dögum Skallagrímur lék tvo leiki í byrjun síðustu viku og unnust þeir báðir. Þeir eru þar með komnir í 2. sæti 1. deildar Fyrri leikurinn var gegn Hetti á sunnudaginn. Eftir að Skallarnir komust í 31-9 í 1. leikhluta var bara formsatriði að klára leikinn. Valur hvíldi sína sterkustu menn megnið af leiknum og vannst auð- veldur sigur 93-76 gegn arfa- slöku liði austanmanna. Seinni leikurinn var svo gegn ÍS í kennaraháskólanum í gær, þriðjudag og var allt annað þar uppi á teningnum. Jafnt var á með liðunum allan leikinn, en Skallarnir höfðu þó ávallt undirtökin bróðurpart- inn af leiknum. Tvíframlengja þurfti leikinn sem endaði að lokum með góðum sigri Skallagríms 97-106. Borg- nesingar voru ekki að leika vel f leiknum og Stúdentar voru geysilega seigir og börðust vel allan leikinn. Það var eink- um fyrir tilstilli Steve Howard sem Skallarnir náðu að inn- byrða sigur. Drengurinn var _ # \ M ^ I B Valur Ingimundarson er á góðri siglingu með sína menn um þessar mundir. hreint óstöðvandi í leiknum og gerði 60 stig í leiknum, auk þess ber að minnast góðrar frammistöðu Davíðs Ásgríms- sonar en hann var feykisterk- ur í vörninni og varði m.a 5 skot. Þessi 60 stig Howard í leiknum eru að því er undirrit- aður kemst næst metjöfnun í fjölda stiga fyrir Skallagrím í einum leik. En fvar Webster (þá Dacarta Webster) gerði sama fjölda stiga í leik í kring- um 1980. R.G Góður árangur KAK Verðiaunahafar KAKá mótinu, þau Ása Katrín Bjarnadóttir, Ragnar Már Viktorsson, Bergþóra Sveinsdóttir og Una Harðardóttir. Karatefélag Akraness sendi sextán keppendur á Shotokanmeistarmót barna og unglinga, sem fram fór í Smár- anum í Kópavogi, sunnudag- inn 23. nóvember. Alls voru 211 keppendur á mótinu frá fjórum félögum. Átta komust í úrslit í einstaklingskata og þrjú lið komust í úrslit í hópkata, en það eru þrír í hverju hópka- taliði. Ragnar Már Viktorsson varð Shotokanmeistari 2003 í kata í flokki 11 ára. Bergþóra Sveinsdóttir lent í þriðja sæti í kata í flokki 12 ára og Una Harðardóttir lenti í þriðja sæti í kata í flokki 14 ára. í hópkata, í flokki 12-13 ára, eignuðust Skagamenn einnig Shotokanmeistara en þar sigr- uðu þau Ása Katrín Bjarna- dóttir, Bergþóra Sveinsdóttir og Ragnar Már Viktorsson. Þau Guðrún Birna Ásgeirs- dóttir, Tómas Árnason og Tómas Ævar Ólafsson lentu í fjórða sæti í hópkata í flokki 14-18 ára og þau Benedikt Valur Árnason, Dagný Björk Egilsdóttir og Margrét Guð- mundsdóttir lentu í fjórða til fimmta sæti í í hópkata í flokki 10-12 ára. Leikdeild Ungmennafélagsins Dagrenningar sýnir: eftir: Jón Thoroddsen Leikstjóri: Þórunn Magnea Aðalhlutverk: Guðmundur Þorsteinsson og Sigrún Sigurðardóttir 4. sýning föstudaginn 5. sýning sunnudaginn 6. sýning miðvikudaginn 7. sýning föstudaginn 28. nóvember 30. nóvember 3. desember § 5. desember Sýningar hefjast kl. 21:00 t Miðasala i sima 435 1391 netfang: madurogkona@vefurinn.is r l

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.