Skessuhorn - 28.01.2004, Blaðsíða 7
«ir,33umj..
MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 2004
7
Til sölu á Akranesi
Deilt á nýtt sldpurit
Vegagerðarinnar
Menn eru að misskilja þetta viljandi og óviljandi
segir samgönguráðherra
Skipurit Vegagerðar ríkisins
mun breytast frá og með 1. mars
nk. og verður m.a. aðlagað
breyttri kjördæmaskipan. I stað
sjö umdæma verða þau fjögur í
framtíðinni. Suðvestursvæði nær
yfír höfuðborgarsvæðið og Suð-
urnes og verður miðstöð þess
svæðis í Reykjavík. Norðvestur-
svæði nær yfir Norðvesturkjör-
dæmi og verður miðstöð þess
svæðis í Borgarnesi. Norðaust-
ursvæði nær yfir Norðaustur-
kjördæmi og verður miðstöð
þess á Akureyri og að síðustu
Suðursvæði sem nær yfir Suður-
kjördæmi og verður miðstöð
þess á Selfossi.
Sú ákvörðun að hafa yfirstjórn
Norðvesturumdæmis í Borgar-
nesi hefur vakið hörð viðbrögð á
Isafirði og meðal einstakra þing-
manna Norðvesturkjördæmis.
Þannig segir Halldór Halldórs-
son þæjarstjóri í Isafjarðarbæ í
samtali við Bæjarins besta að
skipuritið sé ekki í samræmi við
gildandi byggðaáætlun ríkis-
stjórnarinnar. Kristinn H.
Gunnarsson varaformaður sam-
göngunefndar Alþingis segir í
sama miðli að tillögurnar stingi í
augu og verið sé að gengisfella
Isafjörð. Þá gagnrýnir Jón
Bjarnason alþingismaður Vinstri
grænna í Norðvesturkjördæmi
að ekki skuli hafa verið haft sam-
ráð við þingmenn kjördæmisins
við undirbúning málsins.
Sturla Böðvarsson sagði í sam-
tali við Skessuhorn að rnenn
væru greinilega að misskilja mál-
ið, bæði viljandi og óviljandi.
„Kristinn H og Jón Bjarnason
kvarta undan því að ekki skuli
haft samráð. Eg veit engin dæmi
um haft hafi verið samráð við
þingmenn vegna skipulagsbreyt-
inga í einstökum stofnunum.
Það hefur verið unnið af mikilli
fagmennsku við undirbúning
þessa máls af hálfu yfirstjórnar
Vegagerðarinnar og sérfræðinga.
Markmiðið var að aðlaga stofn-
unina að breyttu umhverfi, m.a.
INGI TRYGGVASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
FASTEIGNIRIBORGARNESI
KJARTANSGATA 17, Borgarnesi
íbúð á efri hæð í
tvíbýlishús, 148,8 ferm.
og bílskúr 28 ferm.
Forstofa dúklögð,
skápur. Stofa,
borðstofa og hol
teppalagt. Fjögur
herbergi, þrjú teppalögð og eitt dúklagt. Eldhús
dúklagt, spónlögð viðarinnr. Baðherbergi með flísum
á gólfi en dúkur á veggjum, kerlaug/sturta, viðarinnr.
Geymslur og sameiginl. þvottahús á neðri hæð. Góð
staðsetning og mikið útsýni.
Verð: 13.300.000
BORGARBRAUT 4, Borgarnesi
Iðnaðar- og
verslunarhúsnæði á 1.
hæð, samtals 185,7
ferm. Húsnæði í ágætu
ástandi. Góð aðkoma.
Til afhendingar strax.
Verð: 10.000.000
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu.
Ingi Tryggvason hdl.
löggiltur fasteigna- og skipasali
Borgarbraut 61, 310 Borgarnes,
s. 437 1700, 860 2181, fax 437 1017,
netfang: lit@isholf.is - veffang: simnet.is/lit
vegna breytinga á kjördæmum.“
Sturla segir það hafa verið mat
Vegagerðarinnar að innan hvers
kjördæmis ætti að vera einn yfir-
maður starfsins alls og einnig að
auka þyrfti verkaskiptingu. „Það
birtist m.a. þannig í þessu nýja
kjördæmi að ísfirðingar fá ný-
framkvæmdir á meðan skilamat
og eftirlit fer á Sauðárkrók en
allsherjarþjónustan verður í
Borgarnesi. Með þessu skapast
betra tækifæri til að stækka þessa
vinnustaði. Það hefur verið ein af
bábiljunum í ríkisrekstrinum að
ekki væri hægt að færa verk
vegna þess að vinnustaðir væru
fámennir. Þetta breytta skipulag
bregst við þeirri kröfu minni sem
ráðherra frá landsbyggðarkjör-
dæmi að flytja verkefni út á land.
Ef menn eru ekki tilbúnir til að
vinna að því verkefni er ég afar
undrandi,“ segir Sturla.
Til sölu er fasteignin Breiðagata 1a.
Fasteignamatsnúmer er 210-2496
Húsið er upphaflega 96 m2 byggt árið 1957
en er með 192 m2 steyptri viðbyggingu frá 1982.
Byggingin stendur á lóð við hafnarsvæðið.
Ýmsir möguleikar eru á rekstri í þessari byggingu
tengt hafnasvæðinu.
Þeim sem hafa áhuga á að skoða fasteignina er
bent á að hafa samband við
Kristján Sveinsson i síma 6603286.
Óskað er eftir tilboðum og skulu þau berast
Guðmundi Tryggva Sigurðssyni
hjá Otíufélaginu ehf. Sími 560 3300.
Akraneskaupstaður
Húsverndunarsjóður
Akraneskaupstabar
Húsverndunarsjóður Akraneskaupstaðar auglýsir eftir umsóknum til
Húsverndunarsjóðs, sbr. ákvæði í 1. gr. 2 mgr. reglna fyrir
Húsverndunarsjóð Akraneskaupstaðar en þar segir: "Hlutverk sjóðsins
er að veita styrk til endurgerða eða viðgerða á húsnæði eða öðrum
mannvirkjum á Akranesi sem sérstakt varðveislugildi hafa af listrænum
eða menningarsögulegum ástæðum, enda séu framkvæmdir í
samræmi við upprunaíegan byggingarstíl húss og í samræmi við
sjónarmið minjavörslu".
Veittir eru styrkir til að greiða hluta kostnaðar vegna:
1. Undirbuningsframkvæmda, áætlanagerðar og tæknilegrar
ráögjafar.
2. Framkvæmda til viðhalds og endurbóta.
3. Byggingarsögulegra rannsokna og útgáfu þeirra.
4. Húsakannana.
Umsóknum um styrki úrsjóðnum skulu fylgja greinargóðar verklýsingar
og teikningar af fyrirhuguðum framkvæmdum. Byggingarnefnd
getur kallað eftir frekari gögnum og upplýsingum eftir því sem þurfa
þykir að mati nefndarinnar. Byggðasafn Aki
veita umsögn um styrkumsóknir.
Akraness og nærsveita skal
Að gefnu tilefni er hlutaðeigendum bent á aö leita eftir áliti
Húsverndunarsjóðs Akraneskaupstaðar og sækja um styrk áður en
framkvæmdir hefjast.
Umsóknir skulu berast eigi síbar en 27. febrúar 2004 á skrifstofur
Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 3. hæð.
Frekari upplýsingar veitir byggingarfulltrúi að Dalbraut 8 eöa í síma
433 1051. Reglur fyrir húsverndunarsjóðinn er hægt að skoða í heild
sinni á heimasíðu Akraneskaupstaðar www.akranes.is
A
Akranesi, 21. janúar 2004.
Skúli Lýösson,
byggingarfulltrúi.