Skessuhorn - 28.01.2004, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 28.JANUAR 2004
aAtððUtU/u.
Sigraði söngkeppni Samfés
„Þetta er búin að vera skrýtin
helgi, fjölmiðlar alltaf að hringja
og eftir að fféttirnar fóru að ber-
ast þá hringdu ættingjarnir hver
af örðum til að óska mér til ham-
ingju. Þetta er auðvitað gaman
en líka skrýtið að fá svona mikla
athygli," sagði Rakel Pálsdóttir
söngstjarna þegar Skessuhorn
hitti hana ásamt félögum sínum í
félagsmiðstöðinni Arnardal á
Akranesi þar sem þau voru á fullu
í brjóstsykursgerð.
Skagamenn eignuðust í fyrsta
sinn sigurvegara í Söngkeppni
Samfés nú um helgina þegar
Rakel heillaði dómnefndina með
því að syngja lagið That's the
way it is með Celine' Dion. Rakal
skákaði keppendum ffá 62 félags-
miðstöðvun um allt land.
Rakel er 15 ára og í 10. bekk
Brekkubæjarskóla. Þetta var í
fyrsta skipti sem hún tók þátt í
Söngkeppni Samfés en hún
sigraði eins og kunnugt er
Hátónsbarkann í hæfileika-
keppni gunnskólanna á Akra-
nesi fyrr í vetur.
Rakel var með hálsbólgu og
kvef um helgina en engu að síður
vilja Skagamenn meina að hún
hafi borið af. „Þetta var rosalega
gaman, ég var með smá hnút í
maganum þegar ég var kölluð
inn en það hvarf um leið og ég
byrjaði," svaraði Rakel þegar hún
var spurð hvernig það væri að
syngja fýrir fulla Laugardalshöll.
Anna Margrét Tómasardóttir
tómstundafulltrúi Arnardals
sagði að Rakel væri alveg fædd í
þetta hlutverk og öryggið hefði
geislað af henni. „Hún er fyrir-
myndarfulltrúi okkar, rosalega
virk í öllu félagsstarfi hér og
hún hefur verið í Arnardalsráði
nú í vetur. Við erum mjög stolt
af henni. Við erum að spá í að
hafa hátíð hér þegar keppnin
verður sýnd á Popp-Tíví laug-
ardaginn 7. febrúar."
Sigurlag Rakelar verður með
á 10 laga diski með keppendum
úr Söngkeppninni en hún mun
svo syngja aftur í Laugardals-
höllinni í tvígang, á Samfésballi
í febrúar og svo á aðal Samfés-
hátíðinni sem haldin verður
með vorinu.
Það liggur beint við að spyrja
Rakel hvort hún ætli að taka
Idol næst. „Eg sé bara til alla-
vega ekki á næsta ári, ég þarf að
vera orðin 16 ára,“ sagði Rakel
og hélt áfram að gera brjóstsyk-
ur með félögum sínum.
Akraneskaupstaður
Auglýsinp um
deiliskipulag a Akranesi
Tillaga ab breytingu á deiliskipulagi
á Mibbæjarreit á Akranesi
Með vísan til 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með
auglýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á deiliskipulagi á
Miðbæjarreit á Akranesi.
Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir að á Miðbæjarreitnum verbi áfram
blönduð byggð verslunar, þjónustu og íbúðarhúsnæðis.
Gert er ráð fyrir að auk verslunarinnar Skagavers komi verslunar- og
ajónustuhús um 10.000 fm á einni til fjórum hæðum, tengt Skagaveri.
afnframt komi tvö fjölbýlishús 9 hæba auk kjallara og þakhæðar með
samtals 76 íbúðum. Heildarflatarmál hvors fjölbýlishúss er um 4.400 fm.
Samanlagt byggingarmagn á svæðinu er 18.720 fm og heildarnýtingar-
hlutfall 0,6.
Aðkoma að svæðinu verðurfrá Kalmansbraut, Stillholti og Dalbraut.
Við væntanlega gildistöku á auglýstri deiliskipulagstillögu fellur úr gildi
núverandi deiliskipulag á Miðbæjarreit, sem samþykkt var í bæjarstjórn
Akraness 7.12.1999.
Tilllagan, ásamtfrekari upplýsingum, liggurframmi hjá skipulagsfulltrúa
að Dalbraut 8, Akranesi, frá 28. janúar 2004 til og með 28. februar 2004.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að
gera skriflegar athugasemdir. Frestur til að skila inn athugasemdum er til
12. mars 2004 og skulu þær berast á bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar,
Stillholti 16-1 8, 3. hæð.
Þeir sem ekki gera athugasemdir vib tillögurnar innan tilskilins frests teljast
samþykkir þeim.
A
Akranesi 20. janúar 2004,
Olöf Cuöný Valdimarsdóttir
skipulagsfulltrúi Akraness
Þótt snjókoma sé ekki alveg nýtt jyrirbrigði hér á Vesturlandi þá er óvenjulegt
að það nái að snjóa í lognijafh hressilega oggerði á fóstudagskvöldið. Ekki er
ósennilegt að einhverjar hríslur hafi kiknað undan álaginu, íþað minnsta virt-
ust þessi tré sem standa í húsagarði í Borgamesi vera búin að fá nokkumveginn
sinn skammt.
Listamaðurinn með eitt verka sinna.
Konulandslag í
Borgamesi
Laugardaginn 31. jan. kl.,
14:00 opnar Axel Kristinsson
málverkasýningu í Listasafni
Borgarness. A sýningunni
verða urn 15 olíumálverk frá ár-
unum 2002-2004. Axel segir að
ólíkt mörgum öðrum máli hann
það sem honum þykir faliegt og
er myndefnið á sýningunni
konan frá ýmsum sjónarhorn-
um. Þá segir Axel að fyrir ve-
sælan karlpung sé konan álíka
óskiljanleg og landslagið en
hann geti engu að síður dáðst
að útlínum konukviðar á sama
hátt og hann hrífst af mikil-
fengleik Snæfellsjökuls.
Þetta er önnur einkasýning
Axels en sú fyrri var á sama stað
fyrir tveimur árum og kom
hann þá ekki fram undir nafni
af ótta við að vera sakaður um
dónaskap og að misnota að-
stöðu sína sem forstöðumaður
Safnahúss Borgarfjaðar en
Listasafn Borgarness er hluti af
því. Axel hefur nú látið af störf-
um og kveður Borgarfjörð með
þessari sýningu.
Fisléttar veitingar verða í
boði listamannsins á opnuninni
og eru allir velkomnir en eng-
inn boðinn. Listasafn Borgar-
ness er til húsa í Safnahúsi
Borgarfjarðar, Bjarnarbraut 4-
6, Borgarnesi, og verður sýn-
ingin opin virka daga kl. 13:00-
18:00 en til 20:00 þriðjudaga og
fimmtudaga. Sýningin stendur
til 25. febrúar.