Skessuhorn


Skessuhorn - 28.01.2004, Síða 10

Skessuhorn - 28.01.2004, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 28. TANUAR 2004 aaisssunuw Blessuð sértu sveitin mín Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn að fara að skrifa um sameiningu sveitarfé- laga einn ganginn enn. En ég reyni að tileinka mér nýjan stíl og held geimverum utan við málefnið að þessu sinni. Nú er unnið að sameiningu sveitarfélaga á vettvangi þeirra sjálfra, Samband sveitarfélaga er að kynna hugmyndir og móta tillögur um sameiningu sveitarfélaga þar sem stefnt er að því að þeim fækki verulega en nú eru 104 sveitarfélög í landinu. Skömmu áður en þetta sameiningarátak hófst voru hafnar viðræður milli þriggja sveitarfélaga í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu um samein- ingu en enn liggur ekki fyrir hvort fleiri sveitarfélög muni bætast í þann hóp. Jafnframt eru sveitarfélög sunnan Skarðs- heiðar að huga að viðræðum um sameiningu. Mér hefur hinsvegar þótt bera óþarflega mikið á tortryggni inilli sveitar- félaga og hugmyndir um sam- einingu sveitarfélaga við Reykjavík sem lausn bendir til þess að menn vilji leysa gamlar væringar með því að vísa þeim frá sér. Mér er ekki fullkunnugt um það um hvað Skagamenn og nærsveitungar þeirra deila en þekki nokkuð til mála sem á undanförnum árum hafa orðið tilefni til „orðaskaks“, deilna og jafovel málareksturs milli þeirra sveitarfélaga sem nú eiga í sam- einingarviðræðum norðan Skarðsheiðarinnar. Oll eru þau lokkar í skeggi keisarans og eiga tilvist sína alfarið undir gömlu hreppamörkunum. Besta dæm- ið er deilan um eignarhald þess- ara sveitarfélaga (í gegnum hér- aðsnefndir) í Grundartanga- höfn en ótal fleiri mál mætti nefna sem ekki hafa náð jafn langt í dómskerfinu en eru af sama toga. Ekki er það ætlan mín að fara að blanda mér í deilur sveitar- stjórna um sameiginleg mál, samstarf eða sérmál. Eg bendi hinsvegar á að til þess að sam- einingarviðræður eigi sér ein- hvern raunverulegan tilgang verða menn að ganga til þeirra með það að leiðarljósi að hags- munir þeirrar heildar sem nýtt sveitarfélag yrði væru betur komnir í einu sveitarfélagi en mörgum. Einn einstaklingur, þröngur hópur einstaklinga, jafnvel allir íbúar í einu af þeim sveitarfélögum sem hyggjast sameinast kunna að tapa á sam- einingunni við fýrstu sýn. En ef ávinningur heildarinnar er verulegur hagnast allir að lok- um því kerfi sem er hliðhollt heildinni er að sjálfsögðu það kerfi sem á að vera grundvöllur opinberrar stjómsýslu. A hverjum tíma sitja að störf- um sveitarstjórnir í öllum sveit- arfélögum sem íbúum ber að gagnrýna, veita aðhald og jafh- vel hrósa ef menn mega til. Sveitarstjórnarmenn verða að bregðast við breyttum aðstæð- um með breyttu vinnulagi, fylgjast með tímanum ef svo má segja. Síðan getur það svo gerst og hefur gerst að aðstæður Finnbogi Rögnvaldsson breytast svo mjög að menn verða að gera meira en ræskja sig og skipta um sokka. Og þegar kemur að því að skipta um brókina verða menn að vera æðmlausir og víðsýnir! Það er ljóst að framundan er sameining sveitarfélaga. Þau verkefni sem sveitarfélögin hafa nú með hendi em þess eðlis að mörg sveitarfélög ráða ekki al- mennilega við að sinna þeim nú þegar. Ef verkefhum fjölgar er enn meiri ástæða til að sameina sveitarfélög. Eg er þeirrar skoðunar að Borgarfjörður og Mýrar eigi að verða eitt sveitar- félag, mögulega má stækka það sveitarfélag enn ffekar. Megin- markmið sveitarstjórnar á að vera að tryggja sem besta þjón- ustu við íbúa á svæði sem er eitt atvinnu- og þjónustusvæði. Um þetta þurfa menn að ræða opnum huga um leið og skýrt verður með lögum hver lög- boðin hlutverk nýrra sveitarfé- laga og tekjustofnar eigi að vera. Þetta ætti að tryggja markvissari stjórn og koma í veg fyrir óþarfa landamæradeil- ur! Með hækkandi sól og komu vorfuglanna trúi ég því að menn komi sér saman um verulega sameiningu sveitarfélaga á Vest- urlandi. Það kann að vera glámskyggni mín að þykjast sjá að innan fárra ára hafi mönnum auðnast að smíða eitt öflugt sveitarfélag úr mörgum minni sem vinni ötullega að hags- munamálum Borgfirðinga beggja vegna Skarðsheiðar. Tíminn mun leiða það í ljós. En hvort sem menn eru saman í einni sveitarstjórn eða í sam- vinnu við nágranna sína er alltaf mikilvægast að vinna að hag heildarinnar og glata ekki vfð- sýninni. Það sagði allavega kerlingin. Minnir mig. Finnbogi Rögnvaldsson formaður bœjairáðs Borgarbyggdar l/tuiófat'ai/A) Laxness trónir einn á efsta stalli Á þorrablóti í Bonn í febrú- ar 1988 var sungið eftirfar- andi erindi undir laginu „Oxar við ána“. Ekki veit ég hvort það hefur verið sungið fýrr en vafalaust síðar en um höfundinn veit ég því miður ekki: Fram skulu reiddar sauðkindur seyddar sýrðar og reyktar og höggnar í spað. Allt það er seðjar, augu sem hreðjar, innbyrði gestirnir þegar í stað. Namm, namm, lostœtið Ijúfa. Namm, namm, lundabaggi og svið. Tros og tormelt rengi tyggjum vel og lengi, á tanngörðunum vinnum við. Þorrablót og þorramatur virðist njóta sívaxandi vinsælda hjá íslendingum og sérstaklega yngri kynslóðinni. Margar fjölskyldur koma líka saman og borða hinn gamla og góða íslenska mat sem þá kallast sérstakur þorramatur án þess að um formlegt þorrablót sé að ræða. Arlega spyrja fjölmiðlar saklausa vegfarendur að því hvort þeir borði þorramat og virðast sumir líta á það sem sérstaka mannraun enda alltaf nokkrir sem svara á líkan hátt og drengurinn sem sagðist borða allan mat nema kjöt og fisk. Meðan hangiketið hét bara hangiket en orðið þorramatur var ekki uppfundið urðu einhverntíma orðaskipti tveggja manna á eftirfarandi hátt: „Hvað ertu að éta?“ „Hangiket „Hver gafþér það? “ „Frúin “. „Hvernig er það?“ „Gott ég get“. „Gefmér smakka“. „Búinn“. A þorrablótum er vissulega veislumat- ur af mörgu tagi og tæpast teljast þau hentugar samkomur fýrir þá sem hugsa stíft um línurnar. Eftirfarandi vísa gæti sem best hafa verið ort á þorrablóti þó ég hafi grun um að fæðing hennar hafi átt sér stað í húsmæðraorlofi austur á Lauga- vatni: Margt er hér um matarval mjög af tagifínu, ennþá bœta á sig skal einu kílóinu. Aðeins hefur það borið við að þorra- blót hafi verið bendluð við ógætilega meðhöndlun áfengra drykkja og þó þessi staka sé að vísu tæplega ort á þorrablóti er hún jafngóð fýrir því: Treystu djarft á drottinn þinn, drjúg er náðarausan. Sittu og drekktu drengur minn djöfulinn ráðalausan. Arnbergur Stefánsson orti um vinnu- félaga sína: Æla, sulla, emja hátt, ólánsbullularfar. Slœpast fuliir fram á nátt fúlir drulluskarfar. Mig minnir að það hafi verið Bjarni Asgeirsson sem orti í þingveislu við Jón á Akri: Drekkum austrœn, vestrœn vín, vodka og svartadauSa. Nú er áfeng ilman þín Akurliljan rauða. Oðru sinni er Bjarni þurfti nauðsyn- lega að ná tali af Þorsteini Þorsteinssyni sýslumanni Dalamanna og alþingismanni spurðist hann fýrir á eftirfarandi hátt: Hafið þið séS þrjótinn þann Þorstein Dalasýslumann. Kom ég víða en hvergi fann karlhelvítisandskotann. Ragnar Ásgeirsson varð fýrir svörum: Blótaðu ekki Bjarni minn, bíddu heldur vinurinn. Kannske bráðum kemur inn karlhelvítisandskotinn Eftir alþingiskosningar 1949 þegar Þorsteinn Dalasýslumaður féll fýrir As- geiri Bjarnasyni en komst þó inn sem uppbótarþingmaður og fleiri breytingar urðu á þingliði orti Bragi Jónsson frá Hofgörðum (Refur bóndi) allmikinn brag og þar í þetta: Heyrðu í Dölum höldar skell, hristist sérhver staður, þéttur að velli þegarféll Þorsteinn sýslumaður. Breytingar á þingliði eru raunar um hverjar kosningar óhjákvæmilega og sýn- ist vafalaust sitt hverjum hvort þær eru til bóta eður ei en svona er nú pólitíkin. Stundum finnst okkur vesölum meðal- jónum að hægt sé að gera furðulegustu hluti að stórpólitískum vandamálum eins og hvort einstakir ævisagnaritarar nota gæsalappir þar sem einhverjum öðrum finnst að þær eigi að vera. Nú fýrir stuttu barst mér þessi ágæti bragur eftir Jón Ingvar Jónsson en lesendur geta dundað sér við að giska á um hvern er ort: Laxness trónir einn á efsta stalli, aðrir hljóta vist í skugga hans. Þú munt síðar svara þínu kalli og setjast beint í stól hins gengna manns. Það er víst að þú átt framtíð bjarta, þú ert sjálfur Laxness innst í hjarta. Forðum varstu liðinn ansi illa, enginn skildi heldur boðskap þinn, vinstri menn sem vilja öllu spilla við þig klesstu Ijótan rógburð sinn. Víst er heimska þjóðar þinnar meinið. þú ert sjálfur Laxness inn við beinið. Frœðimenn þig hrokafullir hœddu, hröktu þig og mikluðust afsér, sífellt gegn þér blindir áfram œddu aldrei ná þeir samt að granda þér. Þú munt vega þar að fylking miðri, þú ert sjálfur Laxness undir niðri Brátt mun Laxness eigra meðal okkar, aðrir verða þá að bugta sig, sjálfumglaðir fúlir vinstri flokkar fá þá ekki að hnýta meir í þig. Þvílík dýrð að þú munt taka völdin þú ert sjálfur Laxness bak við tjöldin. Fagurlega öll þín aðföng dróstu upp úr brunnum þeirra er mest þig smá. Sigurviss til beggja handa hjóstu, höfuðfuku af mörgum boli þá. Þótt þú færir þarna yfir strikið þú ert sjálfur Laxness fyrir vikið. Með þökk fyrir lesturinn Dagbjartur Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykholt S 435 1367

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.