Skessuhorn


Skessuhorn - 28.01.2004, Qupperneq 12

Skessuhorn - 28.01.2004, Qupperneq 12
12 MIÐYIKUDAGUR 28. TANUAR 2004 jtttSSUtU;... Vífilfell veitir ÍA styrk Björgheiður Valdimarsdóttir gjaldkeri unglingaráðs, Sigumundur Amundason gjaldkeri meistara- og annarsflokks karla, Jóhannes Guðjónsson gjaldkeri kvennaknattspymunnar og Guðjón Guðmundsson frá Vífilfelli. Mánuður fram yfir „Hvað ertu tónfist?“ með Jónasi Ingi- mundarsyni Jónas I n g i - mu n d - a r s o n kemur í R e y k - h o 1 t laugar- daginn 31. janúar með tveggja tíma dagskrá sem hann nefnir „Hvað ertu tónlist?“ Hann hefúr farið með hana>víða um land við miklar vinsældir. Og nú er komið að Vestlending- urn að fá tækifæri til að njóta tónlistarinnar með Jónasi. Hann kynnir hvernig hægt er að nálgast tónlist á ýmsa vegu og gerir ráð fyrir að vera með sýnishorn af ýmsum verkum. Jónas mun sitja við flygilinn og spila og spjalla við áhorf- endur og velta fyrir sér hug- takinu tónlist og skoða það sem kemur upp hverju sinni. Skráning á dagskrána er hjá Símenntunarmiðstöðinni í síma 4372390. Samstarfsverkefni Vífilfells, verslunarinnar á Akranesi og KFIA skilaði þeim síðasttöldu dágóðri upphæð á síðasta ári. Vífilfell styrkti KFÍA um 5 kr. á hvern seldan lítra af Coke og söfnuðust með þessu móti 556.350. kr. Guðjón Guð- mundsson framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Vífilfells afhenti styrkinn s.l. fimmtudag. Styrknum var deilt niður á rekstrafélag meistara og annars flokks, kvennaboltann og ung- lingaráð og tóku gjaldkerar við- komandi félaga við styrknum. Forráðamenn KFIA voru að vonum mjög ánægðir og kemur þetta sér vel í að efla enn frekar starfið innan deildanna. Nú er verið að athuga að endurskoða þetta samstarf og taka jafnvel fleiri vörumerki Vífilfells undir, þá sérstaklega diet-coke og að sögn Guðjóns eru þeir hjá Víf- ilfelli einnig mjög ánægðir með þetta fyrirkomulag og merkja aukna sölu á Coke á Akranesi umfram annars staðar. Það eru því allar líkur til að þetta sam- starf verði endurnýjað fyrir árið 2004. Þegar ungur eiginmaður kemur heim eitt kvöldið tek- ur konan á móti honum með því að hlaupa upp um háls hans og segja: „Astin, ég er komin einn mánuð fram yfir. Eg er viss um að nú er ég ó- frísk, heimilislæknirinn okk- ar sagði að hann gæti ekki fullvissað mig um það fyrr en hann fengi niðurstöður úr rannsókninni á morgun og við skyldum þegja yfir þess þangað til“. Að morgni næsta dags kom maður frá Orkuveitunni til þess að loka fyrir rafmagnið, þar sem ungu hjónin höfðu ekki greitt síðasta reikning. Hann hringdi dyrabjöllunni og þegar unga frúin kom til dyra sagði hann; „Þú ert komin mánuð fram yfir“. „Hvernig í ósköpunum veist þú það?“ spurði unga frúin. „Nú allt svona er skráð kyrfilega í tölvukerfi Orku- veitunnar“, var svarið. „Þetta sætti ég mig ekki við og ég ætla að tala við mann- inn minn í kvöld og hann band við ykkur á morgun“, sagði unga frúin og skellti hurðinni. Þegar eiginmaðurinn kom heim fékk hann að heyra allt um persónunjósnir Orku- veitunnar og hann fór vitan- lega öskuvondur á fund Al- freðs Þorsteinssonar morg- uninn eftir. „Heyrðu Alfreð þetta er nú algjörlega út í hött. Hvað eiginlega í ósköpunum gengur að ykkur, þið eruð með það í skrám ykkar að við séuin kominn mánuð fram yfir, hvern andskotann kem- ur vkkur það við?“ „Slakaðu nú á þetta er ekkert mál, borgaðu okkur bara og þá tökum við þetta úr skrám okkar“ svaraði Alfreð. „Borga ykkur! Þú ert ekki í lagi, ef ég hafna því hvað þá?“ „Nú þá klippum við bara á og tökum þig úr sambandi." „Og hvað á þá konan mín þá að gera?“ „Nú hún verður þá bara að nota kerti.“ svaraði Alfreð.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.