Skessuhorn


Skessuhorn - 03.03.2004, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 03.03.2004, Blaðsíða 1
Vegafé notað til minkarannsókna Hneyksli, segir formaður Félags atvinnuveiðimanna - Kominn tími til að prófa nýjar leiðir segir forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands Náttúrustofa Vesturlands er nú að leggja lokahönd á skýrslu um fyrri hluta rannsókna á áhrif- um vegfyllingar í Kolgrafarfirði á minkastofninn á svæðinu. Rannsóknirnar eru eitt af þeim skiljtrðum sem sett voru inn í umhverfismat fyrir vegafram- kvæmdir í Kolgrafarfirði. Skessuhorn hefur ekki fengið nákvæmar upplýsingar um kostnað við rannsóknirnar en eftir því sem næst verður komist hleypur hann á bilinu 15-17 milljónir króna. Vegagerðin samdi við Nátt- úrustofn Vesturlands um fram- kvæmd rannsóknarinnar og er kostnaðurinn greiddur af vegafé en það eru ekki allir sáttir við. Snorri Jóhannesson bóndi og veiðimaður á Augastöðum í Borgarfirði er formaður nýstofh- aðst Félags atvinnuveiðimanna í ref og mink. Hann segir þessar rannsóknir ekki eiga neinn rétt á sér. „Það er náttúrulega hneiksli að á meðan verið er að undirbúa að útrýma minknum sé verið að eyða stórfé í að rannsaka áhrif og því hvemig einn vegspotti fer í skapið á honum," segir Snorri. „Ef menn hafa áhuga á að vita hvernig minkurinn hagar sér þá eiga þeir sjálfir að greiða þann kostnað en svona duttlunga á ekki að fjármagna með vegafé á meðan ekki era til peningar til að laga ræsi eða bera ofan í sveita- vegi,“ segir Snorri. Ingvi Arnason hjá Vegagerð ríkisins í Borgarnesi sem er eftir- litsmaður með ffamkvæmdum í Kolgrafarfirði, staðfesti í samtali við Skessuhorn að Vegagerðin kostaði umræddar rannsóknir en hvorki hann né Magnús Valur Jóhannsson voru tilbúnir til að gefa upp kostnaðinn. Snorri full- yrðir að hann sé um 17 milljónir króna en Róbert Stefánsson for- stöðumaður Náttúrastofu Vest- urlands sagði í samtali við Skessuhom í gær að hann væri nær því að vera um 12 milljónir án vsk. (15. milljónir með vsk.) en hafði ekki staðfesta tölu við hendina. Róbert segir ástæðu þess að farið var í umræddar rannsóknir vera þær að það hafi komið ffam stjórnsýslukæra á umhverfismat- ið á þeim forsendum að ekki hafi verið tekin með í reikninginn hætta á að mink myndi fjölga á svæðinu með tilkomu vegfyll- ingarinnar. „Umhverfisráðherra tók tillit til þessarar kæru með því að setja inn skilyrði um rann- sóknir á áhrifum vegfyllingarinn- ar á minkastofninn. Við tókum þessar rannsóknir að okkur fyrir eins lágt verð og okkur var unnt. Við erum núna að Ijúka fyrri hluta rannsóknarinnar sem felst í því að kanna stofhstærð svæðis- ins fyrir gerð vegfyllingarinnar en eftir fimm ár munurn við meta stöðuna aftur og fá þannig út niðurstöðu," segir Róbert. Aðspurður um núverandi stofnstærð minksins í Kolgrafar- firði segir Róbert að einungis einn minkur hafi veiðst í lífgildr- ur á meðan á rannsókninni stóð. „Það kom okkur reyndar mjög á óvart að sjá aðeins þennan eina sem var þarna eins og kóngur í ríki sínu. Um gagnrýni Snorra segir Róbert að þeir séu sammála um þau megin markmið að draga úr tjóni af völdum minks en ekki um leiðirnar. „Það er búið að reyna ffá því 1971 að útrýma mink með veiðum en án þess að árangurinn hafi verið ásættan- legur. Nú er kominn tími til að prófa nýjar leiðir og við þurfum fyrst að komast að því hvað við eram með í höndunum og það gerist fyrst og ffemst með rann- sóknum." GE Fegurstu fljóðin Fegurðarsamkeppni Vest- urlands verður haldin þann 20. mars n.k. og að vanda verða keppendur kynntir í Skessuhorni. Fyrstu fjórar stúlkurnar prýða blaðið að þessu sinni. Sjá bls. 9. Snæfellingar deildarmeistarar í Úrvals- deild fvrstir liða utan suðvesturhomsins Snæfell náði þeim glæsilega árangri síð- astliðinn sunnudag að tryggja sér deildar- meistartitil í Úrvais- deildinni í körfu- knattleik. Frá því úr- slitakeppni um Islands- meistaratitilinn var tek- in upp árið 1984 hafa Suðurnesjaiiðin skipst á að hampa honum utan eitt skipti sem KR varð deildarmeistari. Þetta var ekki eini deildarmeistaratitillinn sem kom á Vesturland um helgina því á föstu- dagskvöidið tryggðu Skallagrímsmenn sér deildarmeistaratitilinn í 1. deild. Sjá nánar á bls. 14 og 15. óð kauo - alla daga Tilboðin gilda frá 4. mars til 9. mars eða meðan birgðir endast. ve Góð Kaup! Verð áður Góð Kaup! Verð áður I \ Kjúklingur 1/1 frosinn 269 kg. 389 kg. X-tra Pasta skrúfur 500 gr. 59,- 79,- : Gourmet Bláberjalæri 1367 kg. 25% afsláttur X-tra Hafrakex 400 gr. 88,- 99,- ! Villisveppaofnsteik 1438 kg. 25% afsláttur X-tra Sorppokar 10 stk. 119,- 149,- X-tra Ofnfranskar 1 kq. 179,- 199,- X-tra Bómullarskífur 80 stk. 98,- 119,- X-tra Blómkálsblanda 1 kg. 189,- 229,- X-tra Shampoo 500 ml. 129,- 149,- ! X-tra Aprikósur 1/2 ds. 79,- 99,- X-tra WC Pappír 8 stk. 199,- 228,- |

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.