Skessuhorn - 03.03.2004, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 3.MARS 2004
unójunui..
Til minnis
Gleðigjafann Ingimar sem spil-
ar kl. 23.00 á föstudag í Mat-
stofunni í Borgarnesi.
Þarf að minnka
minkarannsóknir?
Án vafa en auka veiðarnar.
Það er ástæðulaust að rann-
saka dýr sem aetlunin er að
útrýma.
Snorri Jóhannesson, bóndi
og skotveiðimaður á Augastöð-
um hefur mótmælt rannsókn-
um á mink í Kolgrafarfirði.
m VeðurhorfMr
Það verður þurrt og
hálfskýjað á föstudag og
laugardag, fremur stillt og gott
veður. Á sunnudaginn á hins
vegar að rigna. Hiti 2-6 stig.
Túnavinnufólk hjá Akraneskaup-
stað fær sína desemberuppbót
Anægjuleg niðurstaða segir formaður Verkalýðsfélags Akraness
Eins og fram hefur komið í
Skessuhorni mótmælti Verka-
lýðsfélag Akraness því að Akra-
nesbær greiddi ekki orlofsbætur
og desemberuppbót til tíma-
vinnufólks fyrir árið 2003.
Akranesbær vísaði til túlkunar
samstarfsnefndar launanefndar
sveitarfélaganna og Starfs-
greinasambands Islands og
bókunar þar að lútandi frá 23.
desember s.l.
Málið var tekið fyrir á fundi
samstarfsefndarinnar þann 25.
febrúar s.l. og þar var afstaða
nefndarinnar endurskoðuð og
fallist á röksemdir Verkalýðsfé-
lags Akraness. Tímavinnufólki
hjá Akranesbæ verða því
greiddar orlofsbætur og desem-
beruppbót eins og verið hefur.
„Við höfðum rétt fyrir okkur
og höfum fengið það staðfest
og erum ánægð fýrir hönd okk-
ar skjólstæðinga,“ segir VII-
hjálmur Birgisson formaður
Verkalýðsfélags Akraness.
Hann segir að um sé að tefla
mikla fjármuni þar sem maður í
fúllu starfi eigi rétt á 53.700
krónum í desemberuppbót og
10.000 kr. í orlofsuppbót.
„Fólki rnunar um minna þannig
að þetta er ánægjuleg niður-
staða“
Förum eftir
leikreglum
„Samningaumboðið okkar er
hjá launanefnd sveitarfélaga og
þar fer fram túlkun á samning-
unum. Verkalíðsfélag Akraness
var ekki sammála túlkun launa-
nefndarinnar og ekki heldur
sammála sínu fólki í Starfs-
greinasambandinu, því það var
sameiginleg niðurstaða LN og
SGS í desember að okkur bæri
ekki að greiða orlofsuppbót og
desemberuppbót til tímavinnu-
fólks,“ segir Jón Pálmi Pálsson
bæjarritari Akraneskaupsstaðar.
„Þegar erindið kom til okkar að
nýju eftir mótmæli Verkalýðsfé-
lagsins varþví vísað til samn-
ingsaðila. Þeir hafa nú breytt
fýrri samþykkt sinni og komist
að því að okkur beri að greiða
þessar bætur og við unum því
að sjálfsögðu. Við erum ekki að
Vilhjálmur Birgisson
Jón Pálmi Pálsson
brjóta á neinum heldur förum
eftir leikreglum á hverjum
tíma.“
GE
Samið við Sveinbjöm um upp-
byggingu við Kirkjubraut
Spnmin^ vikijnnar
( síðustu viku var spurt þess-
arar persónulegu spurningar:
„Ertu hrædd(ur) við myrkrið?
Já, ofboðslega, svöruðu 9,9%,
já dálítið sögðu 12,3%, Nei og
þó sögðu 13,6%, Nei ekkert
svo svöruðu 17,3% og Nei,
hreint ekki sagði mikill meiri-
hluti, eða 46,9%. Af því drög-
um við þá ályktun að Vest-
lendingar séu yfirhöfuð ekki
sérlega myrkfælnir og ekki
slæmt að vita það.
I þessari viku spyrjum við:Til
hvoða fjármálastofnunar I land-
inu berð þú mest traust?
Takið afstöðu á
skessuhorn.is
Vestlendiri^ijr
vikijnnar
Er að sjálfsögðu Bárður Ey-
þórsson þjálfari Snæfells í
körfubolta og hans menn sem
urðu deildarmeistarar í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik á
sunnudag.
Samið hefur verið við bygg-
ingafýrirtækið Sveinbjörn Sig-
urðsson hf um byggingu versl-
unar- og íbúðabyggingar á svo-
nefndum Hvítanesreit á Akra-
nesi í samræmi við þær hug-
myndir sem lagðar hafa verið
fýrir skipulags- og umhverfis-
nefnd. Bæjarráð staðfesti sam-
komulagið á síðasta fundi sín-
um. Samkvæmt samkomulag-
inu er stefnt að því að nauðsyn-
legum undirbúningi ljúki eigi
síðar en í maí n.k. Þar innifalið
eru uppkaup eigna og vinna við
gerð deiliskipulags ofl. Tillag-
an skal unnin í samvinnu og
höfðu nánu samráði við skipu-
lags- og umhverfisnefnd. Mið-
að við samkomulagið munu svo
eiginlegar byggingafram-
kvæmdir hefjast eigi síðar en í
júlí nú í sumar.
Leitast verður við að útlit
bygginga og umhverfi þeirra
falli vel að aðliggjandi byggð og
að aðgengi verði gott. -háp
Setíð um
eittog
hálítár á
fundum
í síðustu viku hélt bæjar-
ráð Akraness fund nr. 2800.
Gísli Gíslason bæjarstjóri
hefur sinnt starfi bæjarstjóra
og áður bæjarritara nú í
rúmlega átján ár. A þeim
tíma hefur hann setið um
1.010 bæjarráðsfundi og 350
fundi bæjarstjórnar og er ó-
líklegt að aðrir á Akranesi
hafi setið fleiri slíka fundi.
Ef miðað er við 2 klst að
meðaltali á hvern fund þá
hefiir Gísli setið 2.720 tíma
eða 68 vikur, sem gerir 17
mánuði eða tæpt eitt og hálft
ár. Geri aðrir betur.
-háp
Þýtt á
pólsku
Grundarfjarðarbær ásamt
Fjarðarbyggð og Isaíjarðar-
bæ hafa þýtt staðlaða húsa-
leigusamningi á pólsku. Pól-
verjar eru langfjölmennasti
hópur innflytjenda hér á
landi en nokkur fjöldi þeirra
býr í Grundarfirði. Við
kornu þessa fólks til landsins
er eitt af fýrstu verkum þess
að gera leigusamninga um
húsnæði og því er um mjög
gagnlega vinnu að ræða fýrir
það. Imyndið ykkur bara ef
þið væruð nýkomin til Pól-
lands, kynnuð ekki málið,
þyrftuð að leigja hús og ætt-
uð að skrifa undir pólska
pappíra!
MM
Aðstoð-
arskóla-
meistari
ráðiim
Gengið hefur verið frá
ráðningu aðstoðarskóla-
meistara við Fjölbrautaskóla
Snæfellinga og hefur Pétur
Ingi Guðmundsson verið
ráðinn í stöðuna. Hann hef-
ur störf í marsmánuði og
mun aðstoða skólameistara
við undirbúning skólastarfs-
ins.
Sambýliskona Péturs
Inga er Guðbjörg Gunnars-
dóttir þjóðgarðsvörður
Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls.
(Af heimasíðu FS)