Skessuhorn


Skessuhorn - 03.03.2004, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 03.03.2004, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2004 auliSSUlIUt. WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fdx: 433 5501 SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf 433 5500 Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 899 4098 Blaðamaður: Hrofnkell Proppé 892 2698 Auglýsingar: íris Arthúrsdóttir 696 7139 Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir 437 1677 Fromkvæmdostjóri: Magnús Mognússon 894 8998 Prentun: Prentmet ehf. skessuhorn@skessuhorn.is ritstjori@skessuhorn.is hrofnkell@skessuhorn.is iris@skessuhorn.is gudrun@skessuhorn.is mognus@skessuhorn.is Skessuborn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 ó þriðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum. Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu. Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitt með greiðslukorti. Verð i lausasölu er 250 kr. 433 5500 Minnkandi vegabætur Fyrir fáum dögum varð ég fyrir því óláni að aka bifreið minni eftír vegar- slóðum í minni gömlu heimasveit, Lundarreykjadalnum. Þegar ég var skammt á veg kominn inn þennan bráðfagra borgfirska dal lentí ég í samskipskiptaörðugleik- um við þúst sem þar var á veginum, og var á þeim tíma hluti af vegakerfi sveitarinnar. Lauk okkar viðskiptum á þann veg að bif- reiðin varð fyrir umtalsverðu hnjaski sem lýstí sér í því að eitthvað stykki sem bifvélavirkinn kýs að kalla spyrnu mun hafa brostið og er bifreiðin nokkru niðurlútari á eftír, í norðausturhorninun vel að merkja. Umrædd ójafna á veginum slapp hinsvegar ósködduð á eft- ir en tíl að forða henni frá hugsanlegu hnjaski hefur hún verið fjar- lægð af veginum að því að mér er tjáð. Þar sem ég og umrædd bifreið höfum víða velkst um vegi lands- ins og samið allbærilega er ekki laust við að ég finni nokkuð tíl með henni þar sem hún stendur hnýpin og spymubrotin og bíður lækn- ingar. Á tímabili varpaði ég ábyrgðinni yfir á Vegagerðina fyrir að hirða Iítt um vegabætur í minni uppáhaldssveit. Var ég meira að segja á tímabili búinn að byggja mér upp ágætis skammt af reiði í garð þessarar annars ágætu stofnunar. Það var reyndar ekki fyrr en núna rétt áðan sem Vegagerðin fékk loks uppreisn æru í mínu hugskoti en þá las ég frétt á forsíðu Skessuhoms, hér litlu framar, þar sem fjallað er lauslega um afar gagnmerkar og löngu tímabærar rannsóknir á viðbrögðum minks nokkurs á Snæfellsnesi við bættum samgöngum í hans heimasveit. Fyrir þessar rannsóknir þarf Vegagerðin víst að greiða haug af pen- ingum, sem hefði annars verið hægt að nota til að fjarlægja fyrr- nefiidan aðkomuhól á veginum í Lundarreykjadal og jafhvel ýms- ar fleiri ójöfnur á þeirri leið. Þessi uppgötvun dugði mér fulkomlega og sannfærði mig um að Vegagerðin væri alls ekki svo slæm. Að vísu fór ég aðeins að velta fyrir mér nauðsyn þessara rannsókna ekki síst í Ijósi þess að sjálfur framkvæmdi ég fyrir mörgum árum sambærilega atferlisrannsókn á mink, nákvæmlega einum eins og í fyrrnefndu tilfelli. Niðurstöð- ur úr þeirri rannsókn skulu hér með birtar ef þær kynnu að hafa í för með sér einhvern sparnað í framtíðinni. Rannsóknin var tvíþætt og skilaði eftírfarandi niðurstöðu: Minnkurinn var æstur og órólegur þangað til ég náði honum. Eft- ir það var hann afar rólegur og hefur verið síðan að því er ég best veit. Þetta var ekki flókin rannsókn og alls ekki kostoaðarsöm. Sannað var það sem ég velti aðeins fyrir mér í tengslum við nýj- ustu minkaransóknirnar en það er hvaða gildi það hefur að vita hvernig minkurinn hefur það þegar það er yfirlýst stefna að útrýma honum. Það er reyndar svolítíð svipað og að spyrja mann sem leiddur hefur verið fyrir aftökusveit, hver hans ff amtíðaráform séu. Gísli Einarsson, minkarannsóknarmaður Gísli Einarsson, ritstjóri. Ný málningarbúð Fleiri fyrirtæki verða framvegis f húsinu að Þjóðbraut 1. Unnið er að uppsetningu nýrrar verslunar í húsinu að Þjóðbraut 1 á Akranesi. Versl- unin, sem bera mun nafnið Slippfélagið - Litaland, verður opnað í því rými sem áður hýsti bílasöluna Bílás en á sama tíma og hún opnar hætt- ir Málningarþjónustan sem til margra ára hefur verið við Stillholt. Bílás hefur nú flutt sölustarfsemi sína í næsta rými norðar í húsinu en auk þessara tveggja fyrirtækja er Eldvörn til húsa að Þjóðbraut 1. MM Fiðlusveitin var með atriði á kaffitónleikum í sal Fjölbrautaskólans Blómlegt tónlistarlíf á Akranesi Opnu dagar Tónlist- arskóla Akraness voru haldnir 26. - 28. febrúar sl. Að sögn Lárusar Sig- hvatssonar skólastjóra Tónlistarskólans tókust Opnu dagarnir mjög vel í alla staði. Milli 80 - 90 manns komu í hádeginu sl. fimmtudag, hlýddu á tónlist og gæddu sér um leið á gómsætri súpu. Eftir matinn fóru svo nemendur skólans og spiluðu fyrir þakkláta á- heyrendur á Höfða, E- deild SHA og Fjöliðj- um á sal FVA. Þar var boðið upp á stanslausa tónlist í tvo og hálfa klukkustund eða á milli 40 -50 atriði. Að sögn Lárusar er mikil aðsókn í Tónlistarskól- ann og hann fullsetinn. Nú stunda yfir 300 nemar nám undir handleiðslu 17 kennara. Nú eru 50 manns á biðlista en mest er ásóknin í gítar og pí- anónám. I skoðun er hvort hægt sé að fjölga nemendum án þess að fjölga kennurum og segir Lárus að það muni skýrast á næstu dögum. -hdp unm. A föstudegmum var svo stanslaus dagskrá frá morgni til kvölds sem byrjaði með námskeiðum fyrir nem- endur Tónlistarskólans sem eru á grunnskólaaldri. A námskeið- unum var lögð áhersla á hrynj- anda, takt og hreyfingu og s.k. stomp þar sem hversdagslegir hlutir eru nýttir sem hljóðfæri s.s. strákústar og hrognatunnur. Eftir hádegi bauðst gestum og gangandi að skoða skólann, prófa hljóðfærin og fá ráðlegg- ingar hjá tónlistarkennurum. Opnum dögum lauk svo með kaffitónleikum á sunnudegin- Þessi unga stúlka mætti auðvitað uppá- búin í tónlistarskólann og blés af fullum krafti í hornið. Forsíða blaðsins á sfðasta ári Vestur- land 2004 Stefnt er að útgáfu hins árlega ferðablaðs; Vestur- lands 2004 fyrir lok apríl í vor. Þetta er í sjötta skipti sem blaðið kemur út og er það fyrir löngu orðinn fastur liður í kynningu og mark- aðssetningu ferðaþjónustu á Vesturlandi. Blaðið verður prentað í 18.000 eintökum og dreift til allra sumarhúsa- eigenda á Vesturlandi auk þess sem það liggur frammi á upplýsingmiðstöðvum, verslunum og öðrum við- komustöðum ferðafólks. Um dreifingu blaðsins sér Upplýsinga- og kynningar- miðstöð Vesturlands. Efnis- tök í blaðinu verða með svipuðutn hætti og undan- farin ár þar sem í bland fer umfjöllun um athyglisverða staði, viðburðadagatal sum- arsins, þjónustuskrá og ýmis annar fróðleikur. Blaðið er einvörðungu fjármagnað með sölu auglýsinga en um sölu þeirra sér að þessu sinni Þuríður Jóhannsdóttir. Hún hefur tölvupóst: vesturl and2 004@skessuhorn .is Sími 433-5500. Umsjón með efni hefur Magnús Magnússon; tölvupóstfang: magnus@skessuhorn.is og farsími 894-8998. MM / Aframhald- andi upp- sveifla I pistli byggingafulltrúa Akraneskaupstaðar sem er á heimasíðu bæjarins kemur ffam að árið 2003 voru 112 íbúðir í byggingu. 55 nýjar íbúðir voru teknar í notkun sem er örlítið rneira en árinu áður. Við síðustu áramót voru 57 íbúðir í byggingu og búið að veita byggingarleyfi fyrir 47 örðum. Það er því útlit fyrir að áframhald verði á uppsveiflu í byggingariðn- aði á Akranesi. -háp

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.