Skessuhorn - 03.03.2004, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 3.MARS 2004
jníajimui..
• y?e/-)//iu/ ('(/‘tnutai'
Umsjón: Iris Arthúrsdóttir
HUSRAÐ
Til að koma í vegjyrir að púður-
sykurinn verði eins og steypuklump-
ur er gott að geyma brauðbita í
boxinu. Efþað gleymist og sykurinn
harðnar má stinga honum smá-
stund á vægum hita í örbylgjuna og
hann linast upp.
Opnir dagar í Fjölbraut
Perubomba
Þessi sælkeraterta er í uppá-
haldi á mínu heimili og fastur
liður í öllum afmælum. Þetta er
gömul og góð uppskrift sem
búið er að breyta og aðlaga að
smekk heimilismeðlima. Hún er
sæt og djúsí og bókað mál að
hún hverfur eins og dögg fyrir
sólu.
1 Svampbotn (aö eigin vali eða
úr búð)
1 Marengsbotn (að eigin vali
eða úr búð)
1 dós perur
1 Peli ijó?ni
Siíkkulaðikrem:
3 eggjarauður
4 mskflórsykur
100 gr. suðusúkkulaði
1 Peli rjómi
Eggjarauður og flórsykur
þeytt vel. Bræddu súkkulaði
bætt í og þeytt á meðan. Rjóm-
inn þeyttur og blandað í smá
skömmtum í súkkulaðihræruna.
úr því svo það hjúpi kökuna.
Skreytið síðan að vild td. með
marengstoppum, súkkulað-
iskrauti eða ávöxtum.
Fullt nafn: Hjörtur
Björgvin Amason
Fæðingardagiir og ár: 4. maí 1952
Starf: Fratnkvœmdastjóri Shell í Borgamesi
Fjölskylduhagir: Giftur og á jjögur börn
Hvemig bíl áttu: Toyota Hi Lux árg. 1988
Vppáhalds matur: Grillaðar lambalundir
Uppáhalds drykkur: Isköld léttmjólk (og Homeblest)
Uppáhalds sjónvarpsefni: Spaugstofan
Uppáhalds sjónvarpsmaður: Omar Ragnarsson
Uppáhalds leikari innlendur: Gunnar Eyjólfsson
Uppáhalds leikari erlendur: Tom Hanks
Besta bíómyndin: Shawshank Redemption
Uppáhalds íþróttamaður: Eiður Smári Guðjonsen
Uppáhalds íþróttafélag: Fram
Uppáhalds stjórmnálamaður: Davíð Oddsson
Uppáhalds tónlistarmaður innlendur: Egill Ólafsson
Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: Luciano Pavarotti
Uppáhalds rithöfundur: Einar Kárason
Ertu hlynntur eða andvígur ríkisstjórninni: Hlynntur
Hvað meturðu mest ífari annarra: Hreinskilni
Hvaðfer mest í taugamar á þér ífari annarra: Oheiðarleiki
Hver er þinn helsti kostur: Þolinmæði
Hver er þinn helsti ókostur: Óþolinmæði
Hefiir þú áður rekið hótel: Nei
Hvemig leggst fyrirhugaður hótelrekstur í þig: Mjög vel
Hyggist þið hjón halda áfi-am að reka Shellstöðina við
Brúarsporðinn: Já
Dagana 25.-27. febrúar fóru
fram opnir dagar við Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á
Akranesi. Þema daganna í ár
var sköpun og voru haldin fjöl-
mörg námskeið sem öll reyndu
á sköpunargáfu nemenda skól-
ans. Samtals var boðið upp á
32 námskeið þannig að allir
nemendur skólans ættu að hafa
fundið sér eitthvað við hæfi.
Meðal námskeiða sem var boð-
ir upp á var jeppaferð þar sem
farið var upp á Langjökul,
skrautskriftarnámskeið, köku-
skreytingarnámskeið, flug-
drekasmíði, sandkastalakeppni,
öskupokagerð, línudansnám-
skeið, gellunámskeið þar sem
ýmiskonar förðun var kennd
svo fáein námskeið séu nefnd.
Það voru bæði nemendur og
kennarar sem sáu um kennslu á
námskeiðunum en einnig var
fagfólk í ýmsum greinum feng-
ið til að sjá um sum námskeið-
in og viljum við nemendur
skólans þakka þeim fyrir að
gefa sér tíma til að koma og
leiðbeina okkur. Á föstudegin-
um voru verkin sem unnin
voru á opnum dögum til sýnis í
skólanum. Allir voru boðnir
velkomnir til að líta á afrakstur
þessara opnu daga sem tókust
einstaklega vel miðað við und-
irtektir nemenda sem skemmtu
sér vel.
Fréttir frá FVA á þessari
síðu eru unnar afnemendum
á Fjölmiðlanámskeiði á opn-
um dögum í skólanum í síð-
ustu viku og kann Skessu-
horn þeim bestu þakkir fyrir.
Það viðraði vel til sandkastalagerðar á Langasandi í síðustu viku.
Fjölbrautaskólanemar voru með sandkastalakeppni sem virkaði hvetj-
andi. Þessir tveir voru allavega mættir með réttu græjurnar í slíkar
byggingaframkvæmdir.
hönnun og leikmyndasmíði.
Það vekur athygli að leiklistar-
hópur skólans tekur þann pól í
hæðina að sýna barnaleikrit í ár
og sagði Þóra Geirlaug Bjart-
marsdóttir formaður Leiklistar-
klúbbs FVÁ, þegar blaðamaður
náði af henni tali, að megin
ástæðan fyrir því að leiklistar-
klúbbur skólans setji upp barna-
leikrit sé sú að aldrei áður hafi
verið sett upp barnaleikrit á veg-
uin skólans og þau hafi
viljað prófa eitthvað
nýtt.
Aðalhlutverk eru í
höndum Guðmundínu
Arndísar Haraldsdótt-
ur sem fer með hlut-
verk Soffíu frænku,
Þórs Bíno Friðriksson-
ar sem leikur Bastian,
og svo eru það þeir Sig-
urbjöm Gíslason, Hall-
ur Guðjónsson og Hjalti Heiðar
Jónsson sem fara með hlutverk
ræningjanna.
Þórður Birgisson
Lið FVA í sjónvarpið
I þriðja skipti í sögu Fjöl-
brautaskóla Vesturlands kemst
spurningalið skólans í átta liða
úrslit „Gettu betur-keppninnar“
vinsælu og þar með í sjónvarpið.
Einnig er þetta í fyrsta skipti sem
liðið vinnur tvær viðureignir í
röð.
Til að komast í átta liða úrslit
þurfti liðið að sigra Fjölbrauta-
skóla Norðurlands-Vestra í
fyrstu umferð og lið Mennta-
skólans á ísafirði í annarri um-
ferð. Báðar þessar viðureignir
voru æsispennandi og mjótt var á
mununum. I liði FVA em þrjú
ungmenni sem heita Heiðar
Lind Hansson, Þóra Geirlaug
Bjartmarsdóttir og Jóhannes
Guðbrandsson og em þau í óða
önn að undirbúa sig fyrir næstu
viðureign í keppninni sem verð-
ur þann 4. mars nk. Etja þau
kappi við lið Verslunarskóla ís-
lands. Keppnin fer fram á Akra-
nesi í íþróttahúsinu við Vestur-
götu og verður sjónvarpað há
viðureigninni í Ríkissjónvarpinu.
Stóra spurningin er svo, er þetta
liðið sem getur velt stórliði MR
af stalli sem sigurvegarar keppn-
innar?
Jóhannes Guðbrandsson, Heiðar Lind Hansson og Þóra Geirlaug
Bjartmarsdóttir skipa lið FVA í Gettu betur.
Gott að kæla
kremið í ískáp
þar til það
þykknar að-
eins.
Karamellu-
bráð:
25-30 tögg-
ur
1 dl rjómi
1 tsk smjör
Bræðið allt
saman í potti
og hrærið í á
meðan.
og Homeblest
Kardemomm u bæri n n
Nemendafélag Fjölbrauta-
skólans á Akranesi er nú um
þessar mundir að setja upp leik-
ritið Kardimommubæinn eftir
Thornbjörn Egner. Leikstjóri er
Jón Páll Eyjólfsson. Æfingar
standa yfir og er stefnt að því að
frumsýna leikritið 14. mars næst-
komandi. Að uppfærslunni koma
30 til 40 manns á einn eða annan
hátt, þ.e. leikarar og fólk sem
vinnur við ýmis önnur verk sem
tengjast verkinu, s.s. búninga-
Kakan sett
saman:
Setjið svambotninn á disk,
dreypið örlitlum perusafa á
hann og hellið megninu af kara-
mellukreminu yfir. Þeytið
rjómapelann, brytjið perurnar
niður í litla teninga, blandið
saman og setjið á kökuna. Hellið
restinni af karamellunni yfir
perurjómann. Setjið marengs-
botninn á, hellið súkkuðlaði-
kreminu varlega yfir og dreifið
Léttmjólk
Hjörtur Árnason
veitinga- og kaupmaður
í Borgarnesi hyggst feta
nýjar slóðir á þessu ári
og því næsta því
framundan hjá honum
er að heíja hótelrekstur í
Reykholti og byggja nýtt
hótel við Hamar í
Borgarbyggð. Þar
verður um að ræða fyrsta
golfhótel landsins.
Hjörtur er gestur
skráargatsins að þessu
sinni.