Skessuhorn


Skessuhorn - 03.03.2004, Síða 8

Skessuhorn - 03.03.2004, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 3.MARS 2004 jotssuno... Nýr lyftubaðstóll á Dvalarheimilið Lionsklúbburinn Agla færði Dvalarheimili aldraðra í Borgar- nesi lyftubaðstól að gjöf nýlega. Helga Helgadóttir talsmaður Oglu lét þess getið við afhend- inguna að stóllinn væri íyrst og fremst gjöf frá íbúum sveitarfé- lagsins sem hefðu stutt ötullega við fjáröflun klúbbsins. Aðal- tekjulindin fólst í dansleik sem haldinn var 1. vetrardag og Lionsklúbburinn sá um. Fyrir hönd Dvalarheimilisins veitti Margrét Guðmundsdóttir stólnum viðtöku og þakkaði fyr- ir höfðinglega gjöf auk þess sem hún ítrekaði að Dvalarheimilið ætti íbúum sveitarfélagsins mik- ið að þakka fyrir stuðning og hlýhug gegnum árin. GE Ap,jún, sept, nóvjtrjátíu hver einn tíl hinir kjósa sér. Febriiar tvenna jjórtán ber, jrekar einn, þá hlaupár er. Eins og segir í vísunni góðu, kallast það hlaupár þegar febrú- armánuður telur 29 daga en slíkt er jafnan fjórða hvert ár eða þeg- ar talan fjórir gengur upp í ár- talið. Slíkur dagur var einmitt sl. sunnudag en um hlaupár eru settar reglur til að samræma fæðingardag lengd almanaksársins og árstíða- ársins. Arstíðaárið ræðst af gangi jarðar um sólu og er sem stend- ur 365 dagar, 5 stundir, 48 mín- útur og 45 sekúndur að meðal- tali. A hlaupársdegi fæðast jafnan svipað mörg böm og aðra daga ársins. Eitt slíkt barn fæddist fyr- ir réttum 20 árum síðan og var því sl. sunnudag að halda upp á affnæli sitt í tuttugasta skipti en einungis fimmta skiptið á réttum degi. Sæunn Jónsdóttir eigandi Skóbúðarinnar Borg í Borgarnesi. Skraut og skór Skóbúðin Borg í Hyrnutorgi í Borgarnesi hefur fært út kví- urnar en Sæunn Oddsdóttir hefur breytt búðinni og tekið in breiða vörulínu frá Ice in a bucket sem notið hefur mikilla vinsælda hér á landi og hefur verið fáanleg meðal annars í verslunum í Kringlunni og Smáralind. Meðal þess sem í boði er er hráskraut, veski, skartgripir, og ýmsir aðrir fyglihlutir á lágu verði. GE Sérstakur afinælisdagur Afrnælisbarnið heitir Kristín Þórhallsdóttir og er frá Lauga- landi í Stafholtstungum. Kristín stundar nám á náttúmffæðibraut Menntaskólans á Akureyri og Iýkur stúdentsprófi nú í vor. Að- spurð segist Kristín aldrei hafa verið mismunað vegna þess að ekki var hægt að halda upp á af- mæli hennar á réttum degi, nema fjórða hvert ár. „Hún mamma passaði vel upp á að mér væri ekki mismunað vegna þess að ég væri hlaupársbarn. Við héldum venjulega upp á afmælið einhverntíman á bilinu 20. til 28. febrúar og fundum okkur í stað- Fyrsta afmæiisveisian sem bar upp á réttan dag. Kristín (við borðend- ann) að undirbúa blástur á kertin fjögur. skýrslurnar annan hvorn daginn við, en hún hafi afþakkað það. Sækir um dýralæknanám Kristín var á barns- og ung- lingsárum afburða íþróttakona og náði langt í frjálsum íþrótt- um; æfði spretthlaup og náði langt í langstökki. Hún var m.a. Kristfn Þórhallsdóttir með hluta verðlaunagripa fyrir árangur f frjálsum f- þróttum. inn einhvern hentugan dag, t.d öskudag sem oft hefur verið á þessu tímabili,“ segir Kristín. „Það var bara gaman að eiga sér- stakan afmælisdag og ég hefði ekki viljað skipta. Það fannst öll- um þetta frekar skrýtinn eða merkilegur afmælisdagur", bætir hún við og upplýsir að þegar hún fæddist hafi mömmu hennar verið boðið að skrá fæðinguna í kjörin Borgarfjarðarmeistari í í- þróttum 15 ára, frjálsíþrótta- maður Borgarbyggðar a íK margra annarra viðurkenninga fýrir góðan árangur í íþróttum. Nú segist hún vera í pásu frá reglubundnum æfingum frá því í haust en passi þó að halda sér í góðu formi. En hvað hyggst afmælisbarnið gera eftir að stúdentsprófinu lýkur? „Ég er ákveðin í að láta gamlan draum rætast og er núna að undirbúa umsókn í Landbúnaðarháskólann í Kaup- mannahöfn og ætla að sækja um dýralæknanám. Eg hef alltaf haft gaman að dýrum og er þetta búin að vera stefnan hjá mér lengi. Það er að vísu erfitt að komast inn í þetta nám svo ég hef hóflegar væntingar um að það takist í fýrstu tilraun“, segir Kristín. Hún býr nú með Davíð Þór kærasta sínum á Ak- ureyri en hann er jafnframt að sækja um tónlistarnám í Kaup- mannahöfn. „Það sem við ætl- um að læra er hvorugt kennt hér á landi, þannig að það hent- ar ágætlega að sækja um á sama tíma út' í Köben.“ Kristín hélt upp á afmæli sitt á laugardaginn var með tvö- faldri veislu. „Ég hafði það verulega huggulegt og bauð vinkonum mínum í tvöfalda veislu; bæði fimm ára og tvítugs afmæli, þær máttu ráða í hvora veisluna þær mættu,“ sagði Kristín að lokum. Skessuhorn óskar Krisínu, sem og öðrum hlaupársbörn- um, til hamingju með daginn. MM Blómahúsið fer í nýtt húsnæði Blómahúsið flutti starfsemi sína yfir á Skagabraut 6 nú sl. fimmtudag. Blómahúsið hefur verið staðsett við Kirkjubraut 14 frá því að búðin opnaði í mars 2001. Nú stendur hins vegar til að rífa Kirkjubraut 14 eða Piccadilly og byggja þar Ásthildur Sölvadóttir eigandi Blómahússins. Það var margt um manninn á opnunardeginum i nýrri og bjartari búð. nýtt verslunar- og íbúðarhús- næði. Asthildur Sölvadóttir eigandi Blómahússins segir að flumingurinn hafi tekist vel og að viðtökur hafi verið ffábærar á opnunardaginn. „Við hefðum ekkert verið að flytja ef við hefðum haldið húsinu áfram, en nú erum við rosalega fegnar að vera komin á nýjan stað og erum viss um að þetta verði okkur til góðs. Þetta húsnæði er stærra og bjartara og býður uppá námskeiðahald.“ Að sögn Asthildar hefur starfsemin vaxið jafht og þétt frá byrjun og nú eru tveir fastir starfsmenn í búðinni auk íhlaupamanneskja. „Nú höfum við aukið vöruúr- valið og horfum björtum aug- um til framtíðar,“ sagði Asthild- ur að lokum. -háp Frá vinstri: Steinunn Ásta Guðmundsdóttir, Helga Helgadóttir, Þóra Björgvinsdóttir frá Lionsklúbbnurh Oglu, Elín Björg Magnúsdóttir og Margrét Guðmundsdóttir frá Dvalarheimilinu - með tyftubaðstóiinn á milli sín Mynd: Guðrún Vala Hlaupársbamið Kristín Þórhallsdóttir tekin tali Buðu mömmu að skrá annan

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.