Skessuhorn - 31.03.2004, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 31.MARS 2004
jntasum/...
Landbúnaðarháskóli íslands í stað
RALA ogLBH
Landbúnaðarháskólinn á
Hvanneyri verður lagður niður
frá og með næstu áramótum og
einnig Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins, samkvæmt
lagafrumvarpi sem kynnt var á
þingflokksfundum á Alþingi í
dag. Ef frumvarpið verður að
lögum mun Landbúnaðarhá-
skóli Islands koma í stað þessara
tveggja stofnana og taka form-
lega til starfa 1. janúar 2005.
I febrúar s.l. skipaði landbún-
aðarráðherra vinnuhóp til að
móta tillögur um sameiningu
rekstrar Landbúnaðarháskólans
á Hvanneyri og Rannsóknar-
stofnunar landbúnaðarins.
Magnús Stefánsson, alþingis-
maður Framsóknarflokksins í
Norðvesturkjördæmi, er for-
maður vinnuhópsins sem skilaði
tillögum sínum til landbúnað-
arráðherra á mánudag í formi
fyrrgreinds lagafrumvarps.
Gert er ráð fyrir að háskóla-
rektor Landbúnaðarháskóla Is-
lands verði skipaður frá og með
1. ágúst n.k. og háskólaráð frá
sama tíma. Miðað er við að öll-
um starfsmönnum RALA og
Landbúnaðarháskólans verði
sagt upp en boðin störf hjá
hinni nýju stofnun, Landbún-
aðarháskóla Islands. Þá á breyt-
ingin ekki að koma niður á
nemendum sem stunda nám við
skólann.
„Það eru alltaf ýmsar leiðir
sem koma til greina, en okkur
þótti hreinast og klárast að báð-
ar stofnanirnar yrðu lagðar nið-
ur og að ný stofnun leysti þær af
hólmi. Astæðan fyrir því að við
viljum skipa háskólaráð og há-
skólarektor þetta snemma er til
að menn hafi tímann fyrir sér til
að móta stofnuninni framtíð,“
segir Magnús.
I kjölfar þeirrar ákvörðunar
að sameina Landbúnaðarhá-
skólann og RALA skapaðist
umræða um hugsanlegan flutn-
ing síðarnefndu stofnunarinnar
að Hvanneyri en Magnús segir
að vinnuhópurinn hafi ekki
fjallað um þau mál. „Það er
seinni tíma mál sem eðlilegt er
að stjórnendur hinnar nýju
stofnunar fjalli um,“ segir
Magnús.
ERTU
ÁSKRIFANDI
•
SÍMINNER
433 5500
Banaslys við Akraneshöfa
Banaslys varð á Akranesi um
miðjand dag í gær þegar fólks-
bifreið fór í höfnina við sem-
entsbryggjuna á Akranesi.
Tvennt var í bifreiðinni, roskin
hjón, en þau létust bæði.
Kl. 15:20 var tilkynnt til
Neyðarlínu að bifreið heíði far-
ið í Akraneshöfn framundan
svoneíndri sementsbryggju. Allt
tiltækt neyðarlið var kallað til og
flutti þyrla Landhelgisgæslunnar
íjóra kafara á slysstað, tvo frá
slökkviliði höfuðborgarsvæðis-
ins og tvo frá Landhelgisgæslu.
Voru kafarar kornnir í sjóinn að-
eins um 20 mínútum eftir að út-
kall barst og búið var að ná fólk-
inu úr bifreiðinni um 10 mínút-
um síðar.
Fra slysstað í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu benda fyrstu vísbend-
ingar til að bifreiðinni hafi verið
bakkað ffarn af bryggjunni en
tildrög slyssins eru í rannsókn.
Lögreglan á Akranesi annast
rannsóknina í samvinnu við
rannsóknarnefnd umferðarslysa.
Frá undirskrift samnings milli Sparisjóðs Mýrasýslu og Eignarhaldsfélagsins Fasteignar. Fv. Ragnar Guð-
mundsson og Jónas Þór Jónsson frá Fasteign, Sigurður Már Einarsson stjórnarformaður SPM og Gísli
Kjartansson sparisjóðsstjóri.
Byggt fyrir Sparisjóð Mýrasýslu
Síðastliðinn laugardag var
undirritað samkomulag um
byggingu nýs húss fyrir starf-
semi Sparisjóðs Mýrasýslu við
Brúartorg í Borgarnesi. Það er
Eignarhaldsfélagið Fasteign í
Reykjavík sem byggir húsið en
SPM tekur það á leigu til 30
ára. Eignarhaldsfélagið Fast-
eign sérhæfir sig í útleigu á
húsnæði fyrir sveitarfélög og
opinbera aðila.
Húsið verður 1200 m2 á
þremur hæðum og er áætlað að
þar verði tilbúið til afhending-
ar í lok maí á næsta ári. „Við
vildum byggja vandað hús án
þess að það fygldi því eitthvað
bruðl. Þetta verður falleg
bygging og til sóma fyrir
byggðarlagið enda er þetta á
þannig stað, þarna við Brúar-
sporðinn, að ekki er hægt ann-
að en að byggja veglegt hús,“
sagði Gísli Kjartansson spari-
sjóðsstjóri SPM eftir undir-
skriftina á laugardag.
Að sögn Ragnars Guð-
mundssonar framkvæmda-
stjóra Eignarhaldsfélagsins
Fasteignar verður bygging
hússins boðin út innan tíðar.
Skattaráð-
stefna á
Bifröst
Föstudaginn 26. mars sl.
stóð lögfræðideild Viðskipta-
háskólans á Bifröst fyrir á-
hugaverðu málþingi um
skattamál. Þarna tókust á
ýmsir lykilmenn úr skattageir-
anum - Indriði H. Þorláksson
ríkisskattstjóri og skattaráð-
gjafarnir Arni Harðarson hjá
Deloitte, Bernhard Bogasons
hjá KPMG, Elín Árnadóttir
hjá Pricewaterhouse Coopers
og Jón Elvar Guðmundsson
hjá Taxis. Rætt var um skatt-
svik, skattasniðgöngu, skatta-
fyrirhyggju, skattaskjól, al-
þjóðlega skattlagningu, sam-
starf við skattayfirvöld, ábyrgð
skattaráðgjafa o.fl. Fram fóru
hressileg skoðanaskipti, í
bundnu máli og óbundnu.
Loðnuver-
tíðinni lokið
Yfirstandandi loðnuvertíð
er nú lokið og komu 44.403
tonn á land hjá síldar- og fiski-
mjölverksmiðju HB. Vinnsl-
an gekk vel og má ætla að
framleidd hafa verið 7.300
tonn af mjöli og 2.800 af lýsi.
Einnig var hreinsað og fryst
711 tonn af loðnuhrognum
og er það aðeins meira magn
en á síðustu vertíð. Afli Ing-
unnar AK 150 var 21.381
tonn á vertíðinni. Afli Víkings
AK 100 er 16.998 tonn og
Faxi RE 9 aflaði 18.723 tonn.
Hagnaður
hjá Grund-
artanga-
höfh
I ársreikningi Grundar-
tangahafhar fyrir árið 2003
kemur fram að hagnaður árs-
ins var 67,4 m.kr. Arðsemi
eigin fjár var 16%, veltuhlut-
fall var 2,25 og eigið fé hafn-
arinnar nam 421 m.kr.
Grundatangahöfn er sam-
eignarfyrirtæki í eigu sveitar-
félaga á Vesturlandi, þar af eru
35% í eigu Akraneskaupstað-
ar. Eins og fram hefur komið
í Skessuhorni var nýlega und-
irrituð viljayfirlýsing eigenda
hafnarinnar um sameiningu
hennar frá 1. janúar 2005 við
Reykjavíkurhöfn, Akranes-
höfn og Borgarneshöfn og þar
með gert ráð fyrir að ffá þeim
tíma verði hafnirnar fjórar
reknar sem sameiginlegt
hafnasamlag.