Skessuhorn - 06.04.2004, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐTUDAGUR 6. APRIL 2004
jivtaatnu..
Til minnis
Við minnum á hagyrðingakvöld í
Þinghamri laugardaginn 10. apríl
kl. 21:00. Þar munu fimm valin-
kunnir hagyrðingar úr héraðinu
kveðast á, Helgi Björnsson, Unnur
Halldórsdóttir, Jón Björnsson
Þórdís Sigurbjörnsdóttir og Þor-
kell Guðbrandsson. Stjórnandi
verður hin landsþekkta eftir-
herma Jóhannes Kristjánsson.
Góð skemmtun fyrir alla fjöl-
skylduna. Minnum jafnframt á allt
annað sem er á döfinni áVestur-
landi þessa vikuna.
©@®
Er ekki þverfótandi
fyrir
útgerðarmönnum á
Akureyri?
Umsvif þeirra
eru allavega
orðin meiri en
almennt hefur
verið reiknað
með hingað til.
Gís/i brá sér af bæ og hélt norður
yfir heiðar, sem þykir vart tíðindum
sæta, nema hvað að Gisli lenti i
hörðum árekstri við bát á Drottn-
ingabrautinni á Akureyri. Hvorki
hlutust meiðsl á bátverjum né bil-
verjum og líklega verður Gísli því
fegnastur að komast aftur i sveita-
sæluna i Borgarfirði.
m Vecfyrhorfnr
Gert er ráð fyrir mildu veðri á
miðvikudag, skírdag og föstudag-
inn langa með hægri vestlægri átt
með dálítilli rigningu eða súld. A
laugardaginn og páskadag er gert
ráð fyrir hlýrri en votri suðvest-
lægri átt.
Spiirninj v’tMnnar
Skil á skattaskýrslum Vestlendinga
var til umfjöllunar í síðustu spurn-
ingu á fréttavefnum skessuhorn.is
Niðurstöður sýna að 48,1% skil-
uðu á réttum tíma, 36,1% sóttu
um frest á netinu og 15,7% voru
búin að steingleyma þessu. Að
þessu sinni er spurt hvort Vest-
lendingar hafi staðið við sin ára-
mótaheit.
I þessari viku spyrjum við::
Hefurðu staðið við áramótaheitið
frá síðustu áramótum?
Takið afstöðu á
skessuhorn.is
Vestlenciin^ar
í badminton í
tvíliðaleik kvenna og tvenndarleik.
Drífa hefur æft i Danmörku að
undanförnu en keppti fyrir hönd
IA. Til hamingju Drífa!
Sumarbústaðabyggð í Dölum
ið fari að gæta þegar á yfir-
standandi ári.
Dalabyggð stefnir að því að
ljúka vinnu við hönnun sumar-
bústaðabyggðar í Sælingsdals-
tungu og á Laugasvæðinu fljót-
lega. Fjárhagsáætlun sveitarfé-
lagsins gerir ráð fyrir að þessari
vinnu verði lokið í vor. Þannig
er stefnt að því að hefja úthlut-
un á lóðum í sumar. Með upp-
byggingu svæðisins á að skapast
mikil vinna fyrir heimamenn,
bæði við framkvæmdir við
svæðið sjálft og jafnvel við
byggingu sumarbústaða. Til
greina kemur að selja/leigja
lóðir bæði með og án sumarbú-
staða, þannig að heimaverktak-
ar gætu byggt sumarbústaði og
selt þá. I fréttabréfi Dalabyggð-
ar segir að vonir séu bundnar
við að áhrifa þessa á atvinnulíf-
íbúðarhús selt til
fjármögnunar
Samþykkt hefur verið að selja
íbúðarhúsið í Sælingsdalstungu
til hjónanna Haraldar Braga-
sonar og Guðbjargar Björns-
dóttur í Reykhólahreppi. Sölu-
andvirðið á m.a. að nota til að
greiða niður kostnað við skipu-
lagningu á sumarbústaðabyggð
í Sælingsdalstungu og að hluta
til vegna endurbóta á skólahús-
næðinu á Laugum.
MM
Ráðgjafarfyrirtækið Alta hef-
ur ákveðið að opna útibú í
Grundarfirði innan skamms.
Verið er að leita að hentugu
húsnæði fyrir starfsemina, en
það er Sigurborg Hannesdóttir
sem veita mun útibúinu for-
stöðu. Eigendur fyrirtækisins
sjá fyrir sér vöxt í starfseminni
næstu árin og er gert ráð fyrir
að starfsemi útibúsins í Grund-
arfirði munu fljótlega aukast og
verða meira en eitt stöðugildi.
Alta hefur verið leiðandi á sviði
samráðs af ýmsu tagi, en á því
sviði ber helst að nefna skipu-
lagningu íbúaþinga sem haldin
hafa verið í sveitarfélögum víða
um land undanfarin misseri,
m.a. í Stykkishólmi og á Akra-
nesi. MM
Frá íbúaþingi í Stykkishólmi fyrir skömmu.
Sorpflokkun aftur á Akranesi eftir
fjögurra ára hlé
Stefnt að aukinni samvinnu sveitarfélaga við Borgarfjörð í sorpmálum
Sorpmálin hafa verið í
brennidepli á Akranesi undan-
farin ár.
Hætt var að flokka sorp 1.
mars 2000, en fram að þeim
tíma höfðu Skagamenn flokk-
að fernur, dagblöð, og bylgju-
pappír frá og flutt til endur-
vinnslu í Sorpu. Það hefur
verið nokkuð sterk óánægju-
bylgja með sorpmálin á Akra-
nesi, en nú hyllir undir breyt-
ingar til betri vegar. Bæjarráð
hefur nú samþykkt stórtækar
breytingar á starfsaðferðum og
aðstöðu í Gámu og samþykkt
hluta af tillögum starfshóps
um sorpmál. Meðal annars er
gert ráð fyrir að sama fyrir-
komulag verði á móttöku
sorps hjá Gámu og starfssvæði
Sorpu um næstu áramót. I
þessu felst breyting á gjaldskrá
og flokkun. Þorvaldur Vest-
mann, sviðsstjóri tækni- og
umhverfissviðs Akraneskaup-
staðar ,sagði í samtali við
Skessuhorn að eðlilegt hefði
þótt að hafa sama verklag á
sorpmóttöku á Akranesi og í
Reykjavík. Aukin flokkun
mun kalla á einhverja aðstöðu
því til að sinna henni vel þarf
að hægt að vinna innandyra.
Umsjónamanni sorpmála,
Valdimari Þorvaldssyni, hefur
verið falið að taka saman
greinargerð um hver kostnað-
urinn verði við þessar breyt-
ingar. Valdimar sagði að um
einhvern kostnaðarauka muni
vera að ræða, en það liggi þó
ekki ljóst fyrir á þessari
stundu.
Tillögurnar gera einnig ráð
fyrir að sett verði upp bílvog
þannig að allar vigtanir færu
fram innan starfssvæðis Gámu
og malbikað verði svæði fyrir
flokkun á timbri í samræmi við
samning Akraneskaupstaðar
og GECA. Einnig er lagt til
að skoðað verði hvort æskilegt
sé að bjóða út sérstaklega
rekstur Gámu.
Stefnt er að því að taka upp
samvinnu við Borgarbyggð og
Borgarfjarðarsveit um útboð á
sorphirðu, leigu gáma og
akstri með sorp til eyðingar.
Embættismenn sveitarfélagana
hafa rætt þessi mál og telja að
þetta sé eitt af þeim málum
sem gæti verið mjög hagstætt
að hafa samstarf um. Oll
sveitarfélögin eru með ein-
hverja samninga um sorphirðu
í gildi, sem þó renna ekki allir
úr gildi á sama tíma. Það
verður því væntanlega skoðað
hvernig hægt verður að brúa
það bil sem er á milli samninga
og heildar paltkinn svo boðinn
út sameiginlega.
Félags-
málastjóri
sunnan
heiðar
Olöf Húnfjörð Samúels-
dóttir, félagsfræðingur og
kennari við fjölbrautarskól-
ann á Akranesi, hefur verið
ráðin félagsmálastjóri allra
hreppanna fjögurra sunnan
heiðar. Um er að ræða nýtt
starf sem og kemur það í
hlut Olafar að móta það.
Olöf hóf störf 1. apríl síðast
liðinn og mun sinna starfi
félagsmálastjóra í 30 %
starfshlutfalli.