Skessuhorn - 06.04.2004, Síða 7
ontaaunu...
ÞRIÐJUDAGUR 6. APRIL 2004
7
Arshátíð
Varmalandsskóla
Árshátíð Varmalandsskóla
fór fram í félagsheimilinu
Þinghamri fimmtudaginn 1.
apríl s.l. Nemendur fluttu þar
leikritið „Kverkatak" eftir Júlí-
us Júlíusson á Dalvík. Verkið
samdi höfundur fyrir nem-
endahóp sinn og eru hlutverk-
in mörg. Það byggist á draum-
um aðalleikarans og var dálítið
óraunverulegt og óhugnanlegt
á köflum. Æfmgar hófust á
leiklistarnámskeiði hjá Olöfu
Sverrisdóttur leikara, sem kom
tvisvar í viku til áramóta. Ingi-
björg Daníelsdóttir sá um æf-
ingar eftir áramót en Olöf kom
og leikstýrði verkinu ásamt
Ingibjörgu á lokasprettinum.
Leikendur voru sautján talsins
en hlutverkin voru um tuttugu.
Aðalhlutverkið, Henný, lék
Eva Dögg Davíðsdóttir. Leik-
endur stóðu sig vel í hlutverk-
um sínum og áhorfendur á öll-
um aldri virtust lifa sig vel inn
í sýninguna og hafa gaman af.
Þrjú tónlistaratriði voru flutt
á árshátíðinni. Þrjár hljóm-
sveitir fluttu hvert sitt lag. Ein
þeirra var eingöngu skipuð
stúlkum sem allar hafa stundað
nám hjá Tónlistaskóla Borgar-
þarðar. Orri Sveinn Jónsson
hefur leiðbeint þessu unga
fólki í vetur, en hann hefur
leikið í hljómsveitum um ára-
bil.
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi óskar eftir að ráða
skrifstofustjóra í Borgamesi í hálft starf frá 1. ágúst 2004.
Helstu verkefni:
Almenn skrifstofustörf og símsvörun.
Skráningar og utanumhald námskeiða.
Kynning og sala námskeiða.
Skipulagning námskeiða.
Hœfniskröfur:
Hœfni í mannlegum samskiptum.
Þjónustulipurð.
Sjálfstœði i vinnubrögðum.
Kunnátta í algengustu tölvuforritum.
Kunnátta i ensku œskileg.
Vinnutími getur verið óreglulegur í samræmi við
árstíðabundnar annir.
| Laun samkvæmt samkomulagi.
Skrifleg umsókn sendist til
Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi,
Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnesi fyrir 30. apríl nk.
V
Nánari upplýsingar á Símenntunarmiðstöðinni
Bjarnarbraut 8 Borgarnesi, sími 437 2390.
J
Til leigu skrifstofurými í nýju og glæsilegu
skrifstofuhúsnæði Hvanna ehf. á Hvanneyri.
Mjög góð sameiginleg aðstaða, fiindarsalir og kaffistofa.
Hentar jafnt einstaklingum, einkafyrirtækjum og
stofnunum sem vilja komast í rólegt og þægilegt
vinnuumhverfi.
Upplýsingar gefur Snorri Sigurðsson í síma 896 1995
Ferðablaðið Vesturland 2004
Ferdaþjón ustuadilar
á Vesturlandi athugiöl
Hið árlega ferðablað fyrir Vesturland
kemur út um næstu mánaðamót.
Vinnsla blaðsins er nú á lokastigi og því er þeim sem vilja nýta
sér það bent á að bregðast skjótt við og hafa samband við okkur.
Blaðið verður með hefðbundnu sniði; í A5 broti, litprentað á
u.þ.b. 90 bls. Meðal efnis verður þjónustuskrá, viðburðaskrá
sumarsins, héraðslýsingar, myndir og fróðleikur af ýmsu tagi.
Þeim sem skipuleggja viðburði og mannamót í sumar er
bent á að skrá viðburði inn á www.vesturland.is/adofinni í
síðasta lagi þann 13. apríl nk. svo skráningin komist inn í
viðburðarskrá ferðablaðsins.
Frestur til að panta auglýsingar í blaðið er einnig til 13. apríl
nk. Upplýsingar um auglýsingar eru gefnar í síma 437-1677
eða með tölvupósti á: vesturland2004@skessuhorn.is
Með sól .smnar í §inníf
Skessuhorn ehf
Sími 433 5500 - 4371677 - 894 8998
skessuhorn@skessuhorn.is