Skessuhorn - 14.04.2004, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 14. APRIL 2004
^ssunuK.
Til mirmis
Við minnum á miðilsfund
sem haldinn verður á Hvann-
eyri fimmtudaginn 15 apríl kl.
20:30. Þar munu þeir Val-
garður Einarsson miðill og
Hermundur Rósinkranz
talnaspekingur og miðill flytja
skilaboð að handan. Minnum
jafnframt á allt annað sem er
á döfinni á Vesturlandi þessa
vikuna.
Varð ykkur um sel
Ásgeir?
Nei okkur varð eiginlega ekki
sel, allavega ekki þennan. Ég
hélt reyndar fyrst að það
væri verið að atast í okkur og
þegar ég lét neyðarlínuna vita
hvað við værum að gera þá
trylltust menn úr hlátri á þar.
Asgeir Sæmundsson
er formaður Björgunarsveitar-
innar Brákar sem fékk það ó-
venjulega verkefni í síðustu
viku að vísa blöðrusel á brott
úr Borgarnesi.
Veðwhorftvr
Nú er hann lagstur í norðan-
átt, á fimmtudaginn má búast
við nokkuð stífri norðaustan
átt en úrkomulausri. Á föstu-
daginn er gert ráð fyrir að
hann hægi nokkuð. Um helg-
ina á hann einnig að kula að
norðan. Það má því búast við
björtu og fallegu inniveðri
næstudaga. Rétt er að vekja
athygli þeirra sem komnir
eru á sumardekkin að búist
er við næturfrostum og gera
má ráð fyrir hjélu á vegum og
götum síðla dags og fram
eftir morgni.
VestlenoTtrujivr
víkijnnar
Er Tinna Rut
Wiium á
Akranesi.
Tinna varð
Islandsmeist-
ari í 4. flokki
stúlkna í
keilu nú á dögunum. Tinna
sem er á tólfta ári byrjaði að
æfa með Keilufélagi Akraness
nú í haust og landaði Islands-
meistaratitli á sínu fyrsta Is-
landsmóti, geri aðrir betur.
Stækkun fyrirhuguð á
Dvalarheimilinu Jaðri
Fyrirhugað er að stækka
Dvalarheimilið Jaðar í Olafsvík
um allt að tólf vistrými á næsta
ári ef samningar nást við heil-
brigðisráðuneytið. I dag er rými
fyrir tólf einstaklinga á Jaðri en
þörfin er mun ineiri að sögn
bæjaryfirvalda í Snæfellsbæ.
„Það eru komnir sex á
biðlista og ljóst að þörfin á eftir
að aukast,“ segir Kristinn Jón-
asson bæjarstjóri Snæfellsbæjar.
„Þetta er málaflokkur sem þarf
að huga betur að enda fjölgar
öldruðum og því þarf að finna
viðeigandi úrræði.“
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar
óskaði eftir fundi með heil-
brigðisráðherra í desember en
sá fundur hefur ekki enn farið
fram. „Við viljum byggja sér-
staka hjúkrunarálmu við dval-
arheimilið og því sem fyrir er
þannig að þar verði eingöngu
íbúðir eins og fyrirhugað var í
upphafi. Hluti af núverandi
húsnæði hefur verið tekinn
undir sjúkrarými en það var
ekki hannað til þess. Ætlunin
er að eftir stækkunina höfum
við pláss fýrir25 - 27 einstak-
linga.“
Kristinn segir að stefnt sé að
því að ljúka hönnun á þessu ári
þannig að framkvæmdir geti
hafist á næsta ári en tekur fram
að það sé háð því að samningar
náist við heilbrigðisráðuneytið.
GE
Drullumall á Kaldadal
Umferð beint inn á lokaðan veg
Gríðarleg umferð var á
Langjökli um páskahelgina og
samkvæmt upplýsingum Skessu-
horns er talið að, þegar mest var,
á föstudaginn langa hafi verið
þar á milli sex og áttahundruð
bílar á sama tíma.
Töluvert var um að ferða-
menn lentu í vandræðum vegna
aurbleytu á Kaldadalsvegi á
föstudag og á tímabili voru
menn að draga hvern annan
fram og til baka í drullusvaðinu
eftir því sem einn heimilda-
manna Skessuhorns komst að
orði.
Það vakti athygli að Kalda-
dalsvegur og Uxahryggjavegur
voru auglýstir opnir í útvarpi en
hins vegar voru skilti við veginn
þar sem stóð að hann væri lok-
aður.
„Það var sett óheppileg aug-
lýsing í útvarpið sem ég veit ekki
hvaðan er komin og það varð til
þess að beina umferðinni á Uxa-
hryggjaveg og Kaldadal að
sunnanverðu,“ segir Bjarni
Johansen hjá Vegagerð ríkisins í
Borgarnesi. „Eg gaf sjálfur und-
ir fótinn með það að vegurinn
frá Húsafelli upp að Langjökli
væri fær, þ.e. Kaldidalur að
norðanverðu, enda hefur sá
vegur aldrei skorist mjög djúpt
og er fær nánast allan ársins
hring. Vegurinn á sunnanverð-
um Kaldadal verður mun blaut-
ari enda var lokað þeim megin.
Uxahryggjavegur skemmdist
einnig mikið í flóði um daginn
og því voru lokunarmerki við
Þingvelli og því voru þeir sem
komu þá leiðina orðnir lög-
brjótar urn leið og þeir óku
framhjá Þjónustumiðstöðinni á
Þingvöllum. Það virtist hins
vegar ekki skipta fólk neinu
máli,“ segir Bjarni.
Bjarni segir það hafa verið
óheppilegt að fólki hafi verið
beint inn á veg sem var lokaður
en hins vegar hefðu menn átt að
virða skiltin í stað þess að aka
fram hjá þeim eða yfir þau.
Hann telur þó að Kaldadalsveg-
ur hafi ekki farið mjög illa þrátt
fyrir að þar hafi sumir bílar ver-
ið djúpt sokknir ef þannig má að
orði komast. „Það er nánast
enginn ofaníburður á þessum
vegi og þess vegna ekki um það
að ræða að verið sé að skemma
eitthvað sem búið er að eyða
miklum fjármunum í.“
Bjarni segir ennffemur að vet-
urinn hafi verið erfiður, ekki að-
eins fyrir fjallvegi heldur alla
malarvegi. „Við höfum fengið
þrjár vorleysingar og erum farn-
ir að vonast efrir að vorið komi
loks endanlega.“
Andrea enn á ný á Akranesi
Sjóstangveiðibát-
urinn Andrea er nú
lagstur að bryggju
við Akraneshöfn og
komin í eigu Skaga-
manna á ný. Gunn-
ar Leifur Stefáns-
son athafnamaður
keypti, ásamt bróð-
ur sínum Andreu
um sl. áramót.
Gunnar Leifur
sagði í samtali við
Skessuhorn að þetta
sé í þriðja sinn sem
hann eignist bátinn
og nú yrði Andrea
ekki seld aftur. Til
stendur að hefja sjóstangveiði-
útgerð af miklum krafti nú í
sumar og gera þá út bæði frá
Akranesi og Reykjavík. Gunn-
ar Leifur ætlar að tengja
sjóstangveiðina við veitinga-
staðinn Cafe 67 og verður þar
boðið uppá að fá afla dagsins
eldaðan að veiðiferð lokinni.
Að sögn Gunnars Leifs verður
auk sjóstangveiði hægt að
leggja út gildrur og ná þannig í
ýmislegt sjávarfang til að hafa í
forrétt s.s. krabba og ígulker
sem þykja sérlega góð til að
lífga uppá náttúruna. Unnið er
nú að markaðssetningu og seg-
ir Gunnar Leifur að sjóstang-
veiði sé orðin þekkt afþreying í
dag og ýmis tækifæri séu að
tengja þetta annarri afþreyingu
á Akranesi s.s. golfi. Mögu-
leikarnir eru margir enda hafi
Akranes allt upp á að bjóða til
að taka á móti mörgum ólíkum
hópum.
Hlutafélag
umland-
námssafii
Stefrit er að því að stofn-
fundur fyrir nýtt hlutafélag
um Landnámssafri í Borgar-
nesi verði haldinn á næstu
dögum að sögn Páls S
Brynjarssonar bæjarstjóra
Borgarbyggðar. Eins og ffam
hefur komið í Skessuhorni
hefur Kjartan Ragnarsson,
leikstjóri, unnið á vegum
Borgarbyggðar að þróun
hugmynda sinna um Land-
násmssafn í vetur. Kjartan
lýkur þeirri vinnu fyrir 1. maí
en stefrit er að því að safriið
opni sumarið 2005. Að sögn
Páls er miðað við að safriið
verði fyrst uin sinn í gamla
pakkhúsinu við Búðarklett
sem verið er að ljúka endur-
bótum á en síðan er gert ráð
fyrir að byggja undir það
stærra húsnæði.
Milli
bæja
Eyþór Björnsson, sem
gegnt hefur starfi bæjarstjóra í
Grundarfirði að undanförnu,
hefur flutt sig á milli bæjarfé-
laga og er orðinn bæjarritari í
Snæfellsbæ. Eyþór leysir Lilju
Olafardóttur af á meðan hún
er í bamseignarfríi.
Eyþór starfaði sem skrif-
stofustjóri Grundarfjarðar-
bæjar frá 1998 og hefur tví-
vegis leyst Björg Agústsdótt-
ur bæjarstjóra af á þessum
tíma. Jafnframt var hann
framkvæmdastjóri ITeilsu-
gæslustöðvar Grandarfjarðar
ffá nóvember 2002.
Bílslys í
Norður-
árdai
Umferðarslys varð í
Norðurárdal, neðan við
Fornahvamm, á fimmudag.
Orsök slyssins var sú að öku-
maður bifrðeiðar, sem kom
úr norðurátt reyndi framúr-
akstur en fór of utarlega og
lenti í lausamöl. Afleiðing-
arnar urðu þær að bifreiðin
fór út af veginum og
stöðvaðist fremur harkalega.
Fjórir voru í bifreiðinni og
voru þeir allir fluttir með
sjúkrabifreið á sjúkrahús í
Reykjavík. Meiðsli þeirra
reyndust hins vegar ekki al-
varleg.