Skessuhorn


Skessuhorn - 21.04.2004, Page 4

Skessuhorn - 21.04.2004, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. APRIL 2004 §EES§>KJiiCv£Ki Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501 Skrifstofur blaðsins ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA virka daga Útgefandi: Skessuhorn ehf 433 5500 Ritstjóri og óbm: Gísli Einorsson 899 4098 Bloðomoður: Hrofnkell Proppé 892 2698 Auglýsingor: íris Arthúrsdóttir 696 7139 Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir 437 1677 Framkvæmdostjóri: Mognús Magnússon 894 8998 Prentun: Prentmet ehf. skessuhorn@skessuhorn.is ritstjori@skessuhorn.is hrofnkell@skessuhorn.is iris@skessuhorn.is gudrun@skessuhorn.is magnus@skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum. Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa i lausasölu. Áskriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með greiðslukorti. Verð i lausasölu er 250 kr. 433 5500 Símtala- skrá Gísli Einarsson, ritstjóri. Þann 15. apríl síðastliðinn fékk ég símtal snemma morguns. Á hinni línunni var móðir mín blessuð sem vildi að venju vita hvernig ég hefði það, hvort krakkarnir væru ekki jafh kolvitlaus- ir og venjulega og svo ffamvegis. Síðan ræddum við um vamar- samstarf Islands og Bandaríkjanna og fleiri hversdagslega hluti. Símtalið tók 8-10 mínútur. Þetta var gott samtal og mér þótti vænt um það. Þennan sama dag laust fyrir hádegi hringdi kunningi minn fyrir norðan og sagði mér að heldur hefði verið svalt í veðri síð- ustu daga. Hann tjáði mér einnig að sauðburður væri hafinn á einum bæ í sveitinni. Síðan ræddum við um ástandið í nustur- löndum þær og jafitvel nær, nýjan búvörusamning og vesenið á Becham og Díönu. Símtalið hefur líklega staðið í 18 eða 19 mín- útur. Þetta var gott símtal og mér þótti vænt um það. Rétt um það leyti sem ég var að vaska upp eftir hádegismatinn þennan ágæta fimmtudag hringdi bóndi nokkur í Borgarfirði og sagði mér að búið væri að hefla veginn sem hann taldi tíðindum sæta. Við ræddum um veginn, síðan um daginn, svo aftur um veginn og loks um veðurhorfur næstu daga. Símtalið tók um 9 - 11 mínútur. Þetta var gott símtal og mér þótti vænt um það. Um tvö leytið hringdi konan og spurði mig hvort ég ætlaði ekki að fara að koma mér til vinnu og þó töluvert fyrr hefði ver- ið. Eg sagði jú, með semingi reyndar. Fleira ræddum við ekki en símtalið tók engu að síður um hálf til eina mínútu. Þetta var stutt símtal og mér þótti vænt um það. Um fjögur leytið hringdu þeir á verkstæðinu og sögðu mér að demparinn væri kominn í bílinn. Símtalið tók um hálfa til eina og hálfa mínútu. Þetta var gott símtal og mér þótti vænt um það. Rétt fyrir kvöldmat hringdi Aðalbjöm á Isafirði. Við ræddum um leiki helgarinnar í ensku knattspyrnunni, kvótasölu, kart- öflurækt, heimaslátrun og sitthvað fleira. Síðan töluðum við svolida stund um það að ég þekki alls engan Aðalbjörn á Isafirði enda kom þá í ljós að hann hafði hringt í skakkt númer. Símtal- ið tók um 7-14 mínútur. Þetta var gott símtal og mér þóttí vænt um það. Þennan dag hringdi enginn í forsætisráðherra íslenska lýð- veldisins, nema Búss og það var líka bara innansveitarsímtal. Gísli Einarsson, á tali. s Arsreikningur Akraneskaupstaðar 2003 Tap semnemur 74 milljómim Ársreikningur Akraneskaup- staðar fyrir árið 2003 liggur nú fyrir. Helstu niðurstöður sam- antekins ársreiknings er nei- kvæður uppá 74 mkr. sem er um 20 mkr. minna en áætlun gerði ráð fyrir. Heildartekjur voru um 1.800 mkr sem er 70 mkr meiri en árið 2002. Heild- arútgjöld voru 1.910 mkr og jukust um um ríflega 150 mkr milli ára. Gísli Gíslason bæjarstjóri sagði í samtali við Skessuhorn að Akraneskaupstaður hafi staðið í miklum framkvæmdum á síðasta ári án þess þó að það hafi skilað sér í fjölgun íbúa. Gísli telur samfélagið á Akra- nesi nú tilbúið til að taka á móti töluverðri aukningu án þess að það hafi mikinn kostnaðarauka í för með sér, því hafi verið fjár- fest til framtíðar að undan- förnu. Gísli segir að almennt sé það ríkjandi sjónarmið að sveitarfélög fái ekki nægar tekj- ur til að standa undir hlutverk- um sínum. Bætt tekjuskipting milli ríkis og sveitarfélaga myndi hjálpa til, en samt sem áður þurfi sú umræða að fara fram hvort ekki þurfi að skerða umfang og gæði ýmissar þjón- ustu sem sveitarfélögin veita. Ymsar lykiltölur á hvem íbúa Tekjur..............323 þús kr. Eignir............1.028 þús kr. Eigið fé............614 þús kr. Skuldir............414 þús kr. Veltufjárhlutfall........0,98 Eignarfjárhlutfall ......0,60 Sldpulagið afgreitt Skipulags- og umhverfisnefnd Akraneskaupstaðar samþykkti á síðasta fundi sínurn tillögu að deiliskipulagi miðbæjarreits með nokkrum breytingum. Eins og áður hefur verið greint ffá hafa íbúar sem búa við Esju- velli og Dalbraut flestir hverjir verið andvígir skipulagstillögun- um sem gera ráð fyrir tveimur 10 hæða blokkum, verslunar- miðstöð og þjónustubyggingu. Þær breytingar sem skipulags- og umhverfisnefnd gerði voru að minnka umfang á þjónustu- byggingunni og lækka hana nið- ur í tvær hæðir. Síbrotnar bílrúður Síðastliðið laugardagskvöld var framrúðan brotin í bílnum á meðfylgjandi mynd þar sem hann stóð við Skólabraut á Akranesi. Þetta er í annað sinn á tæpum tveimur mánuðum sem rúður eru brotnar í þessum bíl að sögn Steingríms Guð- jónssonar en sonur hans er eig- andi bílsins. I fyrra skiptið var afturrúðan brotin. „Við höfum grun um að sami aðili hafi verið að verki í bæði skiptin en þótt fyrra málið hafi verið í rannsókn í vel á annan mánuð hefur engin niðurstaða fengist,“ segir Steingrímur. Hann biður hugsanleg vitni að gefa sig fram við lögregluna á Akranesi. Fyrr skömmu var skrif- að undir samning milli GT-Tækni á Grundar- tanga og Olíuverslunar Islands h.f.um kaup GT-Tækni á brennslu- olfu, smurolíu og á öðrum olfuvörur fyrir fyrirtækið. Samningurinn gildir til 2008, og er hann fram- hald af samningi sem var á milli ísl járn- blendifélagsins og Ol- fuverslunar íslands.h.f. Njarðtak lægst Njarðtak ehf átti lægsta tilboð í vinnu fyrir áhalda- hús Borgarbyggðar en fimm aðilar sendu inn sex tilboð. Á fundi bæjarstjórnar í gær var samþykkt að ganga frá samningi við lægstbjóðanda. Þess má geta að skiptar skoðanir voru um það í bæj- arstjórn Borgarbyggðar hvort verkið skyldi boðið út en einstakir bæjarfulltrúar vildu að ráðinn yrði starfs- maður á vegum bæjarins til að sinna viðhaldsverkefhum. Opið hús á Bifröst Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 22. apríl ffá kl. 13-17, verður opið hús í Viðskiptaháskólanum á Bif- röst. Þar gefst áhugasömum gott tækifæri til að kynnast námsffamboðinu og aðstöð- unni í háskólaþorpinu. Boðið verður upp á leiðsögn urn há- skólaþorpið; nemendagarð- ana, leikskólann, verslunina, kaffihúsið sem og alla aðra aðstöðu. Boðið verður upp á kaffi og vöflur og alveg grá- upplagt að nota daginn til að skreppa í Borgarfjörðinn og skoða uppbygginguna á Bif- röst (Tréttatilkynning) Virkjunar- styrkur Lýsuhólsskóli í Snæfells- bæ fékk nýverið úthlutað 200 þúsund kr. úr Þróunar- sjóði grunnskóla. Verkefnið sem Lýsuhólsskóli sótti styrk um heitir: Umhverfis- mennt - Stubbalækjavirkjun. Verkefnið felst í að byggja upp stíflu í læk og nýta orkuna til að dæla vatni í gróðurhús sem hugsað er sem liður í náttúrufræði- kennslu. Ljúka við að koma upp sjálfvirkri veðurathug- unarstöð sem knúin er sólar- orku, vinna garð til útirækt- unar og að lokum verða lagðir göngustígar á virkjun- arsvæðinu. Leiðrétting I frétt um samning um byggingu Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði í síðasta blaði var ranglega sagt að hann hljóðaði upp á 380 milljónir. Hið rétta er að verðmæti samningsins er um 280 milljónir. Biðjumst við velvirðingar á þessum mistökum.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.