Skessuhorn - 21.04.2004, Síða 5
-jAtasunu...
MIÐVIKUDAGUR 21. APRIL 2004
5
Atta milljóna tap á rekstri
Borgarbyggðar
Batamerki í rekstrinnm segir bæjarstjóri
Arsreikningur Borgarbyggðar
fyrir árið 2003 var lagður fram
tíl fyrri umræðu í bæjarstjórn í
gær.
Samantekinn rekstur bæjar-
sjóðs og B-hluta fyrirtækja sýnir
að heildartekjur á árinu 2003
voru 1.019.850 mkr, en rekstrar-
gjöld og afskrifrir voru 969.811
mkr. Rekstrarniðurstaða án fjár-
magnsgjalda var jákvæð um 50
mkr. en á árinu 2002 var niður-
staðan neikvæð um 2,9 mkr. Að
teknu tíllití til fjármagnsliða er
rekstrarniðurstaðan neikvæð um
8,4 mkr., en áætlun hafði gert
ráð fyrir að rekstur bæjarsjóðs
og B-hluta fyrir-
tækja myndi skila
afgangi upp á
14,7 mkr.
„Megin skýr-
ingin á lakari af-
komu liggur fyrst
og fremst í því að
eignasala sveitar-
félagsins var um
37 mkr. lægri en
áætlað hafði ver-
ið. Hins vegar er
þessi niðurstaða
nokkru betri en
árið 2002, en þá
var niðurstaðan
neikvæð um 14,3 mkr,“ segir
Páll S Brynjarsson bæjarstjóri
Borgarbyggðar.
Skuldir hækka
Fastafjármunir hækkuðu á
milli ára um tæpar 56 milljónir
og veltufjármunir um tæpar 20
milljónir. Eignir sveitarfélagsins
eru því alls metnar á 1.809.753
eða 699 þkr. á hvern íbúa.
Skuldir og skuldbindingar eru
alls 1.454,7 mkr. eða 561 þkr. á
hvern íbúa. Eigið fé Borgar-
byggðar er því 355 mkr
Veltufé frá rekstri var 46,7
mkr. sem er mun betri niðurstað
en áætlun gerði ráð fýrir, en
samkvæmt henni var áætlað
veltufé 3,4 mkr.
Ný langtímalán voru tekin
fyrir 220 mkr., en afborganir
langtímalána voru 111,8 mkr. og
skammtímalán lækkuðu um
40,6. Skuldabyrði sveitarfélags-
ins hækkaði því um 64,4 mkr.
Fjárfestíngar á árinu 2003 voru
111 mkr. Helstu fjárfestingar
voru kaup á skólahúsnæði á
Varmalandi, kaup á byggingar-
landi í miðbæ Borgarness og
kaup á húsnæði undir Tónlistar-
skóla Borgarfjarðar.
„Það er ljóst að sé ársreikn-
ingur ársins 2003 borinn saman
við ársreikning fyrir árið 2002
má greina ýmis batamerki í
rekstri sveitarfélagsins. I fyrsta
lagi er rekstrarniðurstaða án
fjármagnsgjalda jákvæðari sem
nemur tæpum 53 milljónum.
Veltufé frá rekstri er rúmum 30
milljónum hærra en árinu 2002.
Loks er rétt að nefna að skulda-
byrði hækkar um 64 milljónir,
sem er minni skuldaaukning en
undanfarin ár,“ segir Páll.
Frumgreinadeild Vibskiptaháskólans á Bifröst er ætluð fólki
sem ekki hefur lokið stúdentsprófi og veitir eins árs
undirbúning fyrir háskólanám á Bifröst. Starfsreynsla er
metin til eininga við inntöku og almenntganga þeirfyrir
sem eru eldri en 25 ára.
Nánari upplýsingar veitir Birna Þorbergsdóttir
í síma 433 3000 eða á birna@bifrost.is
HÚSAKLÆÐNINGAR
VELJIÐ VARANLEGT Á HÚSIÐ
Einangraðar utanhússklæðningar
úr þunnum múrsteini. Mikið
litaúrval - 10 ára reynsla á
íslandi. Prófað og samþykkt af
Rannsóknarstofnun
Byggingariðnaðarins
Kúrant ehf,
Suðurlandsbraut 14, Rvk.,
S. 553-1111
kurant@kurant.is
www.kurant.is
Aasitl hltaffeil
Aðalfundur Fiskmarkaðs íslands hf. verður
haldinn 23. apríl 2004 kl. 20.00
á Hótel Framnesi Grundarfirði.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf skv. 15. gr. samþykkta
félagsins
2. Tillaga stjórnar um að félaginu verði
heimilað að kaupa eigin hluti sbr. 2. og 3.
mgr. 55. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélog.
3. Önnur mál löglega upp borin.
Stjórn Fiskmarkaðs íslands hf.
Fiskmarkaður Islands hf.
3
SIMGNNTUNARMIÐSTOÐIN
Á VESTURLANDI
"\
Símenntunarmiðstöðin á
Vesturlandi óskar eftir ráðgjafa til
starfa í hálft starf frá 1. ágúst 2004
Helstu verkefni:
Ráðgjöf við gerð símenntunaráætlana íJyrirtœlgum
og stofnunum
Skipulagning námskeiða
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun æskileg
Hæfni í mannlegum samskiptum
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Þekking á rekstrarumhverfi fyrirtœkja og
starfsmannaþróun
Ráðgjafinn mun fara í þjálfun í notkun Markviss
, (Markviss uppbygging starfsmanna) sem er aðferð í
1 kerfisbundinni vinnu að starfsmannaþróun í
! fyrirtækjum (www.markviss.com). Viðkomandi þarf
! að vera tilbúinn að vinna sveigjanlegan vinnutíma
Laun samkvæmt samkomulagi.
Skrifleg umsókn með upplýsingum um nám og fyrri
störf sendist til Símenntunarmiðstöðvarinnar á
Vesturlandi, Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnesi fyrir 7.
maí nk.
Nánari upplýsingar hjá Ingu Sigurðardóttur
framkvæmdastjóra í síma 863 0862 (eftir 25. apríl)
og hjá Þóreyju Jónasdóttur stjórnarformanni í síma
437 1000 og 892 5761