Skessuhorn - 21.04.2004, Síða 7
SSESSIÍHOÍSIKI
MIÐVIKUDAGUR 21. APRIL 2004
7
Stykkishólmi
Stofnaður hefur verið Um-
hverfishópur Stykkishólms sem
er félag áhugamanna um um-
hverfismál og opið er öllum þeim
er vilja láta sig umhverfið varða.
Það voru hjónin Menja von
Schmalensee og Róbert Arnar
Stefánsson sem stóðu að stofnun
Umhverfishópsins en þau eru
bæði líffræðingar og starfa hjá
Náttúrustofu Vesturlands. „Á í-
búaþinginu sem var haldið í vetur
hér í Stykkishólmi þá kom í Ijós
mikill vilji meðal íbúanna að efla
umhverfisvitund í sveitarfélaginu.
Þar kom einnig fram það sjónar-
mið að lítil grasrótarsamtök væru
best til þess fallin og það var
kveikjan að stofhun þessa hóps,“
segir Menja. Markmið félagsins
eru meðal annars að félagsmenn
líti í eigin barm og leitist við að
haga lífi sínu þannig að athafnir
þeirra valdi sem minnstum spjöll-
um á umhverfinu. Menja segir
viðtökur íbúa hafa verið mjög
góðar og að þegar hafi á þriðja
tug manna skráð sig í hópinn.
Næsti fúndur verður haldinn 6.
maí og þeir sem skrá sig fyrir
þann tíma gerast stofnfélagar.
jVElKAHLEIKAR
FMA 0« SKUGGA
verða haldnir í
Borgarnesi 24. aprfl og
hefjast kl. 13
Skráning á milli
kl. 12:00-12:40 í
félagsheimilinu.
Keppt er í öllum flokkum
, á beinni braut. .
Kræklingaræktendur á námskeiði
Um síðustu helgi var haldið
námskeið á Hótel Borgarnesi
fyrir kræklingaræktendur en
kræklingarækt er nú stunduð á
12 stöðum við landið.
Þar af á þremur stöðum við
Vesturland, í Hvalfirði,
Kolgrafarfirði og Breiðafirði en
stærstu ræktunarstöðvarnar eru
í Arnarfirði og Eyjafirði.
Kræklingarækt er enn á til-
raunastigi hér við land og hefur
árangur verið misjafn enn sem
komið er. Samkvæmt upplýsing-
um eru þeir sem fyrstir hófu til-
raunir með kræklingarækt um
það bil að loka hringnum, þ.e.a.s.
að þeir eru komnir með öfluga
báta og færanlega vinnsluvél til
að taka kræklinginn af línunum
og vinna með hann þar sem
hann er ræktaður. Þá eru fjár-
festar byrjaðir að koma inn í
fyrirtækin og gefur það fyrirheit
um að þessi grein kunni að efl-
ast á næstu árum. Má því segja
að það hylli undir að kræklinga-
rækt á íslandi komist af til-
raunastiginu og verði jafnvel að
fullgildri atvinnugrein.
Hjón stofiia
félag um
umhverfismál í
Góð afkoma hjá Mjólkur-
samlagimi í Búðardal
Mjólkursamlagið í Búðardal
fagnar 40 ára afmæli sínu á þessu
ári og verður þess minnst seinni
part sumars.
Velta og umsvif Mjólkursam-
lagsins hafa verið að aukast und-
anfarin ár að sögn Sigurðar
Rúnars Friðjónssonar samlags-
stjóra. Síðasta ár var fyrsta heila
árið ffá yfirtöku á verkefnum
mjólkursamlagsins á Hvamms-
tanga var innvegin mjólk 6,5
milljón lítrar sem þýðir 27%
veltuaukning á milli ára. Störf-
um fjölgaði um þrjú ársverk og
eru í dag 50 ársverk hjá fyrirtæk-
inu sem er stærsti vinnuveitandi
Dalabyggðar að sveitarfélaginu
frátöldu.
Sigurður Rúnar segir afkom-
una síðasta ár hafa veið mjög
góða líkt og reyndar hafi verið
undanfarin ár. „Við njótum þess
meðal annars að á okkar svæði
eru mjög góðir framleiðendur
og skilyrði til mjólkurfram-
leiðslueru góð. Það kemur með-
al annars fram í því að við erum
með lægstu frumutöluna að
meðaltali yfir landið og við erum
mjög stolt af því.“
Þá segir Sigurður Rúnar að
vöruþróun í samlaginu hafi
gengið mjög vel og nefnir að af
24 nýjum vörumerkjum hjá
Mjólkursamsölunni á síðasta ári
hafi sex verið úr Búðardal.
„Merkilegasta nýjungin frá okk-
ur er að mínu mati LH, afurð
sem er náttúruleg- hjálp við
lækkun blóðþrýstings. Þessi vara
hefur að vísu farið hægt af stað í
sölu en sambærilegar vörur eru
að gera það mjög gott erlendis
en þar er þessi markaður stór og
fer vaxandi.“ GE
í tHefni af útgáfu geisladisksins Hljómur frá Aðalvík, halda Snorri
Hjálmarsson og Helga Bryndfs Magnúsdóttir útgáfutónleika í Loga-
landi Reykholtsdal, miðvikudaginn 28. apríl, klukkan 20:30.
Útgáfutónleikar
BORGARBYGGÐ
AUGLÝSING
Tæknideild Borgarbyggóar óskar eftir tilbobum
í 110m2 viðbyggingu á einni hæð við
leikskólann Klettaborg í Borgarnesi ásamt
breytingu á húsnæði sem erfyrir. Gögn verða
afhent þriðjudaginn 27. apríl nk á bæjar-
skrifstofu Borgarbyggðar og hjá
verkfræðistofunni Hönnun á Akranesi. Tilboð
verða opnuð á bæjarskrifstofu Borgarbyggðar
þriðjudaginn 18. maí n.k. kl.14.00 og skal skila
inn tilboðum fyrir þann tíma.
Bœjarverkfrœbingur Borgarbyggbar.
Auglýsing
um deiliskipulag í Hvítársíðuhreppi
Mýrasýslu.
Samkvæmt ákvæðum 25 gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með lýst eftir
athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi fyrir
stækkun á frístundabyggð um 6 lóðir að Bjamastöðum
Hvítársíðuhreppi Mýrasýslu. Um er að ræða 0,4-0,6
hektara lóðir sem tengjast eldra svæði.
Tillagan ásamt byggingar og skipulagsskilmálum liggur
frammi hjá oddvita Sámsstöðum frá 23. apríl til 21.
maí 2004 á venjulegum skrifstofutíma.
Athugasemdum skal skila fyrir 3. júní 2004 og skulu
þær vera skriflegar.
| Þeir sem ekki gera athugasemd innan tilgreinds frests
teljast samþykkir tillögunni.
jj Skipulags og byggingarfulltrúi.
Atvinna
Starfskraft vantar í hlutastarf.
Upplýsingar hjá Ásthildi í Blómahúsinu.
h? W
Skagabraut 6 - 431 5500
>dbv Heimauinnsla
og sala afurda
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri ásamt
Landbúnaðarráðuneytinu, Bændasamtökum íslands og Félagi
ferðaþjónustubænda standa fyrir ráðstefnu um heimavinnslu
og sölu afurða, föstudaginn 30 apríl næstkomandi í mötuneyti
Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. Ráðstefnan hefst klukkan
12:30 með skráningu en Hkur um 18:00.
Kynntir verða möguleikar og hindranir sem felast í lögum og
reglum um heimavinnslu landbúnaðarafurða og staða þessara
mála hér á landi kynnt sem og í Noregi. A ráðstefnunni munu
þrír norskir fyrirlesarar kynna ýmis átaksverkefni sem eru í
gangi þar í landi til að efla smávinnslur og svæðisbundna
sérstöðu í framleiðslu. Auk þeirra verða sex íslenskir fyrirlesarar
sem tengjast þessu umræðuefni með beinum hætti.
Þátttökugjald er innheimt en ráðstefnan er öllum opin.
Skrá þarf þátttöku fyrir 28. aprfl hjá
Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri í síma: 433-7000