Skessuhorn


Skessuhorn - 21.04.2004, Síða 11

Skessuhorn - 21.04.2004, Síða 11
31SESSUHÖBH MIÐVIKUDAGUR 21. APRIL 2004 11 Aþena Ragna í þriðja sæti í 100m skriðsundi Liðið endaði í 3.sæti í stigakeppni félaga Aþena og Gunnar syntu mjög vel á lokadegi CIJ móts- ins í Luxemborg en Gunnar Smári synti 100m skriðsund á tímanum 56,09 sem skilaði honum inn í úrslit. Hann átti 57,80 í þessu sundi fyrir þannig að um mjög góða bæt- ingu var að ræða. Hann náði sér svo ekki alveg á strik í úr- slitunum og synti á tímanum 56,92 sem skilaði honum í 8. sætið. Aþena Ragna synti mjög vel í undanrásunum í 100m skrið- sundi og kom í mark á tíman- um 1:00,64. Hún átti best fyrir 1:05,42. Aþena synti ágætlega í úrslitunum þegar hún kom 3ja í mark á tímanum 1:01,10. u Þess má geta að tími Aþenu í undanrásunum var undir lág- marki SSÍ fyrir Evrópumeist- aramót unglinga sem fer fram í Lissabon í júlí, en Aþena er of ung til að taka þátt í ár. í heild sinni var árangur liðs- ins ágætur og endaði liðið í 3. sæti í stigakeppni landsliða rétt á eftir landsliði Finnlands. Bridds í Borgarfirði Nú stendur yfir Opna Borgarfjarð- armótið í tvímenningi sem er samstarfsverkefni Briddsfélag- anna á Akranesi, í Borgarnesi og í Borgarfirði. Tuttugu pör taka þátt í mótinu sem spilað er til skiptis á fyrrnefndum stöðum. Mótsstjóri og skipuleggjandi er Guðmundur Ólafsson í Lamb- haga en keppnisstjóri er Hafdís Guðmundardóttir og er fram- kvæmdin þeim báðum til sóma. Fyrsta kvöldið var spilað á Akra- nesi 15. apríl og svo í Logalandi 19. apríl. Staðan eftir tvö kvöld er þessi: 1 Sveinbjörn - Lárus - Þorvaldur... ...........................65 2. Guðmundur Ólafsson - Hallgrím■ ur Rögnvaldsson...............53 3. Alfreð Viktorsson - Þórður Elías- son...........................49 4. Tryggvi Bjarnason - Þorgeir Jós- efsson........................42 5. Dóra Axelsdóttir - Rúnar Ragn- arsson........................38 Síðasta kvöldið verður spilað á Mótel Venus miðvikudaginn 28. apríl. Skaga- stelpur í U-19 Skagastúlkurnar Hallbera Guðný Gfsladóttir og Helga Sjöfn Jóhannesdóttir eru í U- 19 hópnum sem er nú í Pól- landi þar sem liðið er í fjögurra liða undanriðli fyrir EM. Auk íslands eru Pólland, Ungverja- land og Þýskaland í riðlinum. íslensku stelpurnar unnu fyrsta leik sinn við Ungverja með fjórum mörkum gegn engu. Jafntefli við ÍBV ÍA lék síðasta leik sinn í riðla- keppninni í deildarbikarkeppni karla síðastliðinn sunnudag. Skagamenn gerðu þá marka- laust jafntefli við ÍBV en liðið endar í 2. sæti í riðlinum með 16 stig, einu stigi færra en Keflavík. Skagamenn eru þar með komnir í átta liða úrslit en leikdagar eru 28. og 29. apríl n.k. Á sunnudag lék Víkingur Ó- lafsvík einnig í deildarbikarn- um, neðri deild. Ólsarar töp- uðu þá 2 - 1 fyrir HK sem er í efsta sæti C riðils. Ejub Purisevic skoraði mark Vík- ings. Víkingur er í 2. sæti riðilsins. Rætt um viðbyggingu við íþróttamiðstöðina í Borgarnesi Bæjarstjórn Borgarbyggðar hefur skipað vinnuhóp til að fjalla um hugsanlega viðbygg- ingu við íþróttamiðstöðina í Borgarbyggð. í vinnuhópnum eru fulltrúar frá sveitarfélaginu og UMSB og Skallagrími en meðal þess sem hópurinn mun fjalla um er að skrifstofur tveggja hinna síðasttöldu verði fluttar í íþróttamiðstöðina. Þá verður einnig rætt um að í hugsanlegri viðbyggingu verði búningsklefar fyrir íþróttamið- stöðina en aðsókn að íþrótta- mannvirkunum er það mikil yfir háannatímann að núverandi búningsaðstaða annar henni varla. Vinnuhópurinn skilar nið- urstöðu í haust. Páll Brynjarsson bæjarstjóri Borgarbyggðar sagði í samtali við Skessuorn að gert væri ráð fyrir umtalsverðri fjárveitingu til uppbyggingar íþróttamann- virkja í sveitarfélaginu árið 2005 og þá gæti stækkun íþrótta- miðstöðvarinnar komið til fram- kvæmda. Það ár segir Páll að einnig væri horft til fram- kvæmda við sundlaugina á Varmalandi. Á þessu ári er einnig gert ráð fyrir töluverðum framkvæmd- um við íþróttamannvirki í Borg- arbyggð. í maí hefjast fram- kvæmdir við endurnýjun á gólfi íþróttahússins en sett verður parket á gólfið í stað dúks. Þá hefur Borgarbyggð lagt inn um sókn um styrk til byggingar lítils gervigrasvallar við Grunnskól- ann í Borgarnesi í tengslum við sparkvallaátak KSÍ. Vonast er til að völlurinn verði tilbúinn fyrir haustið. Loks má geta þess að á veg- um Borgarbyggðar og hesta- mannafélagsins Skugga er vinnuhópur að störfum til að fjalla um byggingu reiðskemmu í Borgarnesi. Hugsanlegt er að farið verði í þær framkvæmdir strax á næsta ári. H CÖNCUM TIL HEILBRICÐIS Fjöruganga í tiiefni af degi umhverfisins laugardaginn 24. apríl kl. 15 frá tjaldstæöinu við Kalmansvík. Tómstunda- og forvarnarsviö hefur nú verkefnið Cöngum til heilbrigöis með gönguferb í tilefni af degi umhverfissins. Farnar verba 10 ferbir í sumar þar sem allir finna sér eitthvab vib hæfi. Þetta er í annab skiptib sem verkefnib Göngum til heilbrigbis fer fram. Markmib þess er ab hvetja fólk til ab njóta náttúrunnar í gönguferbum og fræbast á sama tíma. Færir leibsögumenn verða í hverri ferb. Fjörugangan (í tilefni afDegi umhverfisins) verbur gengin ó laugar- daginn og gönguleiðin er sem hér segir: Tjaldstcebi Akraness - Kalmansvík - Elínarhöfbi - Höfbavík - Mibvogur og til baka. Leibsögumabur er Hannes Þorsteinsson, líffrcebingur sem fræbir göngufólk um gróburtegundir, fjörudýrin og fuglana sem á vegi verba. Göngufólki er boöið í Jabarsbakkalaug ab lokinni gönguferbinni. Nœstu 5 ferbir „Göngum til heilbrigbis": 21. maí Fuglaskobunarferb (varptíminn) 12. júní Glymsganga 25. júní Mibnæturganga á Akrafjall í tilefni af jónsmessunni 15. júlí Saga Akraness 24. júlí Síldarmannagötur Tómstunda- og forvarnarnefnd - Skipulags- og umhverfisnefnd VERKALÝÐSFÉLAG AKRANESS AÐALFUNDUR Fimmtudaginn 29. apríl 2004, kl. 19:00, að Kirkjubraut 40, 3. hæð. Dagskrá: 1. Fundargerð síðasta framhaldsaðalfundar. 2. Skýrsla stjómar fyrir liðið starfsár. 3. Ársreikningar félagsins fyrir 2002 og 2003 lagðir fram. 4. Breytingar á reglugerðum félagsins: Tillögur um breytingar á reglugerð Sjúkrasjóðs félagsins. 5. Kosningar sem ffarn þurfa að fara á aðalfundi: a) Kosning stjómar Sjúkrasjóðs. b) Kosning stjómar Orlofssjóðs. c) Kosning kjörstjómar. d) Kosning skoðunarmanna reikninga. 6. Ákvörðun félagsgjalda. 7. Önnur mál Ársreikningar félagsins vegna áranna 2002 og 2003 munu liggja ffammi á skrifstofu félagsins eftir kl. 13:00 miðvikudaginn 21. apríl 2004. (Afmeeli Jenni R. Ólason íBorgarnesi verður 70 ára þann 26. apríl næstkomandi. Hann tekur á móti gestum í Safnaðarheimilinu (Félagsbæ) sunnudaginn 25. apríl frá klukkan 15 til 18. AÐALFUNDUR Aðalfundur Ferðamálasamtaka Mýra- og Boraarfjarðarsýslu verður naldinn í Hótel Borgarnesi mánudaginn 3. maí 2004 kl. 14:00 Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Önnur mál Stjórnin Nýkomið er í sölu mjög vandað og fjölskylduvænt 205 fm. einbýli á frábærum útsýnisstað í Borgarnesi. Parket á stærstum hluta hússins. 5 herberai. Ný eldhúsinnrétting. Glæsilegur garður. Eign fyrir vandláta. V. 15,9 m. Berg fasteignasala Haaleitisbraut 58 Sími 588 5530

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.