Skessuhorn


Skessuhorn - 21.04.2004, Side 12

Skessuhorn - 21.04.2004, Side 12
PÓSTURI N N . .’ : www.poslur.is Þú pantar. Pósturinn afhendir. Heimsending um allt land HÁHRAÐA INTERNET TIL SjÁVAR OG SVEITA Þráðlausar netlausnir fyrir heuviili og fyrirtæki SÍMI 544 4454 ÖLVUBONDINN S(MI 894 4980_ ^www.spm.is Vel heppnaður dráttarvéladagur Dráttavélardagurinn var haldinn á Hvanneyri sl. laugar- dag og tókst með ágætum þrátt fyrir að hann blési nokkuð köldum vindi að norðan. Um 400 manns komu að Hvanneyri til að taka þátt í og fylgjast með dagskránni, sem bútækniklúbb- ur LBH stóð fyrir. Sýndar voru eldri dráttarvélar sem gerðar hafa verið upp í Borgarfirðinum. Menn spreyttu sig í dráttarvéla- leikni auk þess sem Ungmenna- samband Borgarþarðar stóð svo fyrir dráttarkepnni þar sem stærstu dráttarvélum héraðsins var beitt fyrir 40 tonna áburð- artrukk. Nemendur veittu vöflukaffi og var svo góðum degi lokið með grillveislu. Stækkun Norðuráls orðin að veruleika Síðasta laugardag var skrifað undir samning milli Norðuráls, Hitaveitu Suðurnesja og Orku- veitu Reykjavíkur um raforku- sölu vegna stækkunar Norðuráls úr 90 þúsund tonnum í 180 þúsund tonn. Þar með er orð- ið alveg ljóst að farið verður í stækkun Norðuráls. I samn- ingnum er gert ráð fyrir að af- hendingu raforku til álfram- leiðslu vorið 2006. Samning- urinn markar mikil tímamót því bæði er þetta í fyrsta sinn sem önnur orkuöflunarfyrir- tæki en Landsvirkjun gera svo stóran samning auk þess sem um mikla innspýtingu í samfé- lagið á Vesturlandi verður að ræða. Gert er ráð fyrir að fjár- festing við stækkun álversins verði 23 milljarðar króna og að allt að 800 manns muni starfa við uppbyggingu álversins og orkuveranna. Eins og greint hefur verið frá í Skessuhorni er gert ráð fyrir að starfsmönnum Norðuráls fjölgi um 130 þegar stækkunin er gengin í garð auk þess sem margfeldisáhrif munu leiða enn fleiri störf af sér. Sveinn Kristinsson forseti bæjarstjórnar Akraness og stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur var að vonum á- nægður þegar Skessuhorn spurði hann tíðinda. „Þetta eru mikil tímamót og þessi fram- kvæmd mun hafa gífurleg áhrif á allt suðvestursvæðið og vonandi verður stærsti hlutinn á okkar svæði. Við höfum reynt að und- irbúa Akraneskaupstað fyrir fjölgun, rekum nútímalegt bæj- arfélag með memaðarfúllri þjón- usm og era tilbúin til að taka á móti nýju fólki. Oll fjölgun mun skila sér í sterkara samfélagi hvort heldur hún verður hér eða í Borgarbyggð. Eg spái því einnig að þessi stækkun sé ekki síðasta skrefið í þróun Norðuráls auk þess sem þeir hlutir sem hafa verið að gerast að undanfömu munu gera Grandartangasvæðið enn fysilegra í augum annarra fyrirtækja." Sveinn segir að ffamkvæmdir sem heþast nú í vor munu ekki bara hafa bein efnahagsleg áhrif á samfélagið heldur blása aukinni bjartsýni í brjóst Vestlendinga. Fjórar námsbrautir •/ til BS prófs úvísindi (BS) ölbreytt nám, með áherslu á • \4búQárræktJarðrækt og bútækni auk argra valgreina. ; *vr ***■*• ■-•’' Landnýting (landgræðslaj(BS) Skipulag, nýting og umhirða lands með áherslu á landgræðslu og náttúruvernd við íslenskar aðstæður. Velkomin að Hvanneyri Skógrækt (BS) Fjallað er m.a. um umhirðu og ræktun skóga, hönnun og ræktun útivistarskóga og búskaparskógrækt. Einnig er fjallað um ferskvatnsnýtingu, náttúruvernd og auðlindahagfræði. Umhverfisskipulag (landslagsarkítektúr) (BS) Námið er fýrri hluti náms í landslagsarkítektúr og öðrum skipulags- eða umhverfisfræðum. Kandidatsnám - meistaranám (MS) Boðið er upp á eins árs viðbótarnám og rannsóknafajálfun til kandidatsprófs í búvísindum og landnýtingu að loknu BS námi. Einnig meistaranám til 60 eininga í búvísindum og landnýtingu. Inntökuskilyrði er BS-gráða í búvísindum, landnýtingu, líffræði, landafræði eða öðru sambærilegu BS-námi. Umsóknarfrestur um háskólanám er til 10. júní og um búnaðarnám til 30. júní 2004. nrnam —. fntanám á framhaldsskólastigi með áherslu á almenna náttúrufræði, búfjárrækt og nýtingu landsins. Nemendur purfa að vera orchir 18 ára, hafa lokið grunnskólaprófi og minnst 36 einingum í grunnáföngum framhaldsskóla. Fjarnám Einnig er boðið upp á búnaðarnám í fjarnámi. Námið getur jafnt náð til einstakra námsgreina sem námsins í heild, fannig getur hver og einn ákveðið hversu langan tíma námið tekur. Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri - www.hvanneyri.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.