Skessuhorn - 07.07.2004, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 27. tbl. 7. árg. 7. júlí 2004 Kr. 300 í lausasölu
Geitungur liggur í vainum
eftir að hafa hitt meindýra-
eyði hjá Öryggismiðstöð
Vesturlands.
Geitungar
fara á stjá
Undanfarið hefur borið á
að geitungar eru farnir að
skríða úr fylgsnum sínum.
Gera má ráð fyrir að eftir
mildan vetur og gott sumar
verði mikið af þessum
hvimleiðu skorkvikindum á
ferð, fólki til ama. Fjöl-
skylda ein á Ahranesi fékk
t.a.m. fimm stykkja fjöl-
skyldu geitunga í óboðna
heimsókn inn um svala-
hurðina hjá sér í síðustu
viku í lok góðviðrisdags, svo
kalla þurfti út meindýraeyði
til að farga kvikindunum.
Geitungabit getur reynst
mörgum hættuleg og er því
full ástæða fyrir þá sem
verða þeirra varir að komast
fyrir rót vandans og láta
eyða búunum sem þeir
koma úr. Einnig er hægt að
kaupa svokallaðar geitunga-
gildrur í verslunum þó að
fyrr nefnda ráðið sé mun
áhrifaríkara. MM
Búin líta út svipað og
ijósakrónur í IKEA.
«
- ■ ‘
.1
Nei, þetta er ekki meyjar í kvennabúrí soldáns í eldgömlu austurlensku ævintýri heldur hressar nútímakonur
af Akranesi sem skelltu sér á námskeið í magadansi hjá Helgu Brögu Jónsdóttur um helgina. Einsog sjá má
var stemningin góð og stelpurnar segja magadansinn ótrúlega góða og skemmtilega leið til að hrísta af sér
slenið og koma sér í form.
Fasteignaverð hækkaði
mest á Vesturlandi
Undanfarin ár hefur mátt
merkja talsvert jákvæðar vænt-
ingar fólks á Vesturlandi til bú-
setu á svæðinu. Þó svo að skipu-
lögð mæling væntingarvísitölu
eða ánægjustuðuls af einhverju
tagi hafi ekki farið fram meðal
íbúa, fyrirtækja eða stofnana, er
ljóst að menn trúa á að bjartir
tímar með blóm í haga séu
framundan með tilheyrandi
fjölgun íbúa næstu árin. Þetta
má m.a. merkja á því að sveitar-
félög skipuleggja íbúðahverfi,
verktakar byggja og víðast hvar
er góð eftirspurn eftir lóðum og
íbúðarhúsnæði, sala hefur því
aukist og verð hefur víðast hvar
hækkað í landshlutanum.
Ein marktækasta mæling á
væntingum fólks til tiltekinna
svæða landsins er fasteignaverð
og eftirspurn eftir íbúðarhús-
næði. Nýjustu upplýsingar um
þróun fasteignaverðs eftir lands-
hlutum, sem ná allt aftur til árs-
ins 1990, leiða í ljós að fasteigna-
verð hefur hlutfallslega hækkað
mest á Vesturlandi á þessu ára-
bili. Því næst er Reykjanes og
loks höfuðborgarsvæðið. Ef litið
er nær í tíma, eða til áranna 1997
til 2003 hækkaði fermetraverð í-
búðarhúsnæðis urn 60% á Vest-
urlandi. Elækkun á sama tímabili
á Suðurlandi var 70% og 80% á
höfuðborgarsvæðinu. A öðrum
svæðum landsins var hún minni
og minnst á Vestfjörðum þar
sem fasteignaverð stóð í stað á
þessu árabili. Þannig má segja að
höfuðborgarsvæðið, Suðurland,
Reykjanes og Vesturland lúti í
dag svipuðum lögmálum varð-
andi þróun fasteignaverðs og
helst það e.t.v. í hendur við
stækkað atvinnusvæði samhliða
bættum samgöngum. Því er ná-
grenni höfuðborgarinnar að
verða vænlegri fjárfestingakost-
ur en áður.
Skessuhorn tók púlsinn á fast-
eignamarkaðnum á Vesturlandi,
ræddi við nokkra fasteignasala,
kannaði verðþróun og annað er
snýr að fasteignaviðskiptum á
svæðinu. Sjdbls. 12-15.
Leitað
að báti
Björgunarskip Slysa-
varnafélagsins Landsbjarg-
ar, Björg frá Rifi, hrað-
björgunarbátur björgunar-
sveitarinnar frá Olafsvík á-
samt þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar voru kölluð út á
þriðja tímanum sl. laugar-
dag til eftirgrennslunar á 7
tonna Sómabáti; Eskey SF-
45, sem datt út úr sjálfvirku
tilkynningarskyldunni fyrr
um daginn en þá var hann
staðsettur um 13 sjómílur
norðvestur af Snæfellsnesi.
Ekkert samband náðist
við bátinn og svaraði hann
ekki neinum fjarskiptaköll-
um Tilkynningarskyldunn-
ar og ekkert símasamband
náðist við hann. Klukkan
16:10 fann þyrla Landhelg-
isgæslunnar bátinn á svip-
uðum stað og síðast var vit-
að um staðsetningu hans og
var hann þá á siglingu og
allt virtist í lagi hjá honum.
Eftir að þyrlan hafði sveim-
að yfir Eskey skamma stund
hafði skipverji á honum
samband gegnum talstöð
og spurðist fyrir um hvort
verið væri að leita að hon-
um, sendirinn fyrir sjálf-
virka tilkynningarskyldu-
kerfið væri dottinn út
vegna bilunar. I ljós kom að
skipverjar á Eskey höfðu
ekki opna rás 16, sem er
neyðarbylgja sem öllum
skipum og bátum ber að
hlusta á.
MM
kaue
Tilboðin gilda frá 8. júlí til og með 13. júlí eða meðan birgðir endast.
Þurrkr.lærissneiðar
Þurrkr.lambafr.hr.sn.
Grísabógur
Goða pylsur 10 stk.
Hamborgarar 10 stk.
Góð Kaup! Verð áður:
1.398 kg. 1.793 kg.
1.298 kg.
389 kg.
30% afsl.
989,-
1.649 kg.
Nýtt
868 kg.
1164,-
Kartöflusalat 500 gr. 229,-
Hvítlaukssósa köld 169,-
Piparsósa köld 169,-
Coke 6 x 0,5 Itr VCf|ð9 594,-
velkomin!
Góð Kaup! Verð áður:
288,-
248,-
248,-
690,-
Hyrnutorgi
Borgarnesi