Skessuhorn - 07.07.2004, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 7. JULI 2004
ú&iissunuk.
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi
Fax: 433 5501
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf 433 5500
Framkv.stj. og blm. Magnús Magnússon 894 8998
Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 899 4098
Augl. og dreifing: íris Arthúrsdóttir 696 7139
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir 437 )677
Prentun: Prentmet ehf.
skessuhorn@skessuhorn.is
magnus@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
iris@skessuhorn.is
gudrun@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 ó
þriðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega.
Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé qri
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr.
greitt með
433 5500
Fótbolta-
foreldri
Fyrir stuttn urðu þau tímamót í í- Gisli Einarsson,
þróttasögu míns heimilis að átta ára ritstjori.
sonur minn tók í fyrsta sinn þátt í knatt-
spyrnumóti. Fyrir þennan viðburð var vissulega þó nokkur eftir-
vænting á heimilinu, þó nokkur hjá knattspyrnumanninum sjálf-
um en mun meiri hjá föðurnum. Þess ber þó að geta að eftirvænt-
ing okkar feðga var ekki á alveg sömu forsendum. Sonurinn batt
miklar vonir við að liðið hans myndi vinna þó ekki væri nema einn
leik enda búinn að sjá það í sjónvarpinu að það eru ekki alltaf
stærstu stjörnurnar sem vinna stærstu sigrana. Sjálfur lét ég mér
þær vangaveltur í léttu rúmi liggja. Eg gerði mér að sjálfsögðu
grein fyrir að strákurinn þyrfti ekki að leggja hart að sér til að vera
föðurbetrungur á fótboltavellinum án þess að ég ætli að fara frek-
ar út í þá sálma. Fótboltaleikirnir framundan voru heldur ekki það
sem vakti áhuga minn varðandi þetta mót.
Skömmu áður hafði ég sumsé lesið um það í dagblöðum hvert
væri hlutverk foreldra í íþróttakeppni barna og það var ekki svo
lítilvægt. Þá höfðu foreldrar barna sem þátt tóku í golfmóti
lumbrað hvert á öðru með golfkyffum þar sem úrslitin voru ekki
eins og foreldrarnir höfðu ætlast til. Þá höfðu umræddir foreldrar
notað golfkylfurnar á bifreið kollega sinna í íþróttaforeldrastétt og
skildu síðan krakkana eftir grenjandi, enda voru þeir að sjálfsögðu
aukaatriði ef út í það var farið.
Það var því kannski ekki skrítið þótt ég væri orðinn svolítið
spenntur að komast loks á alvöru íþróttamót með börnum mínum
og fá að ganga í skrokk á öðrum foreldrum enda skildist mér að
stemningin á fótboltamótum væri ekki mikið síðri en í golfinu.
Það sem þetta var mitt fyrsta barnaíþróttamót þá ákvað ég að vera
vel undirbúinn og síðustu vikurnar fyrir mótið notaði ég vel og
undirbjó mig bæði andlega og líkamlega. Eg gerði ótal armbeygj-
ur, hoppaði, sippaði hljóp og lamdi sandpoka og þegar stóra
stundin rann upp taldi ég mig geta látið hvaða foreldri sem er lúta
í gras.
Síðan komu stóru vonbrigðin.
Á knattspyrnumótinu voru foreldrar í friði og spekt að horfa á
krakkana í fótbolta og hvetja þau til dáða. Engin ofbeldisverk,
ryskingar eða einu sinni almennileg rifrildi. Lið sonar míns náði
að vísu ágætum árangri en fyrir mér var mótið ónýtt því þrátt fyr-
ir að ég reyndi ítrekað að espa aðra fótboltaforeldra upp þá kom
það allt fyrir ekki neitt og þarna var mígandi hamingja frá morgni
til kvölds.
Síðustu daga hef ég hugleitt að snúa mér að pólitík. Þar er belli-
brögðum beytt, bæði hægri og vinstri, menn stungnir í bakið,
tæklaðir og hvergi til sparað til að koma góðu höggi á andstæðing-
inn. Þar er líka engu skeytt um þó kjósendur sitji eftir grenjandi
enda eru þeir algjört aukaatriði.
Gísli Einarsson, vonsvikinn.
Gestastofa opnuð
í ÞJÓÐGARÐÍNN SNÆFELLSJÖKUL
Davíð Egilsson forstöðumaður Umhverfis-
stofnunar, Siv Friðleifsdóttir umhverfis-
ráðherra og Guðbjörg Gunnarsdóttir
þjóðgarðsvörður. Mynd: Guðrún Bergmann
Gestastofa Þjóðgarðsins Snæ-
fellsjökuls var opnuð sl. sunnu-
dag. Hún er í húsi Menningar-
miðstöðvarinnar að Hellnum.
Við opnunina voru ýmsar uppá-
komur og gátu gestir t.d. reynt
með sér í styrk og listrænum til-
burðum. Landverðir sýndu
gestum líffíkið í fjör-
unni og buðu einnig
upp á stutta göngu-
ferð þar sem áhersla
var lögð á söguna.
A sýningunni í
gestastofunni er lögð
áhersla á náttúrufar
svæðisins undir Jökli
og lífsskilyrði ver-
manna áður fyrr.
Reynt er að tvinna
þessa þætti saman
þannig að nútíma-
maðurinn geti betur
sett sig í spor vermannanna.
Starfsmenn þjóðgarðsins hafa
unnið að sýningunni í vetur og
vor og notið aðstoðar ýmissa
sérfræðinga. Hönnuður sýning-
arinnar er Björn G. Björnsson
hjá List og sögu. MM
Ný lögreglustöð
Nýja lögreglustöðin í Ólafs-
vík var vígð 9. júní sl. og batnar
til niuna aðstaða lögreglunnar á
staðnum við það. Meðal annars
bætist við bílgeymsla en bílar
embættisins hafa fram að þessu
þurft að standa úti. Það var
dómsmálaráðherra, Björn
Bjarnason sem vígði stöðina
sem stendur við Bankastræti la.
Það var Loftorka ehf í Borgar-
nesi sem hafði umsjón með
byggingu hússins en hafði til
liðs við sig ýmsa undirverktaka
af Snæfellsnesi. Það var Magn-
ús H Ólafsson arkitekt sem
T
1 ŒDjjj j Qfc
Nýja stöðin stendur við Banka-
stræti 1a. Ljósmynd: ERR
teiknaði húsið, Bragi Sigur-
dórsson teiknaði raflagnir og
Verkhönnun sá um burðarþol-
steikningar.
MM
Polarhav er komið út undir bert loft. Skipið verður sjósett fljótlega og
afhent í þessum mánuði.
Polarhav brátt sjósett
Nú líður að því að smíði tog-
arans Polarhavs ljúki hjá Þ&E á
Akranesi. Sigurður Guðni Sig-
urðsson framkvæmdastjóri
sagði í samtali við Skessuhorn
að smíðin hafi gengið vel og að
skipið yrði sjósett fljótlega.
Einungis er eftir að koma fyrir
hluta af spilbúnaði. Afhending
til kaupandans verður í þessum
mánuði en skipið fer til Rúna-
víkur í Færeyjum.
Hér er um fyrsta nýsmíða-
verkefni skipasmíðastöðvarinn-
ar að ræða í 12 ár. Skrokkur
skipsins var smíðaður í Póllandi
og dreginn hingað til lands í
vetur ásamt öðrum eins
skrokki, en systurskip Polar-
havs er jafnframt í smíðum hjá
skipasmíðastöðinni Ósey í
Hafnarfirði. Skipin eru 36,5
metra löng og 8,5 metra breið
togskip. Þetta eru svokölluð
tvíburaskip sem þýðir að tvö
eins skip eru smíðuð og munu
þau draga eitt troll saman en
með því næst meiri hagræðing í
veiðum þar sem ekki þarf að
nota eins stórt skip við veiðarn-
ar. Einnig er hægt, ef svo ber
undir, að senda skipin á sitt-
hvora veiðislóðina ef ekki á að
veiða í tvíburatroll.
Sigurður Guðni segir að
verkefnastaða hjá Þ&E sé góð
um þessar mundir og útlit fyrir
að svo verði áfram. MM
Fjósið vígt
6. ágúst
Framkvæduin við bygg-
ingu og innréttingar nýja
kennslu- og rannsóknafjóss-
ins á Hvanneyri hafa gengið
vel og er nú fyrirhugað að
byggingin verði formlega
tekin í notkun föstudaginn
6. ágúst næstkomandi að
landbúnaðarráðherra við-
stöddum.
Með nýja fjósinu verður
mikil breyting á allri
kennslu- og rannsóknaað-
stöðu í nautgriparækt við
skólann. Boðið verður upp á
nútímalega aðstöðu fyrir
gripi og fólk; kýr og uppeldi
verður á legubásum, en kálf-
ar í hálmstíum með sjálf-
virkri mjólkurfóðrun. Kýrn-
ar verða mjólkaðar í 2x6
mjaltabás, sem um leið mun
þjóna sern kennsluaðstaða
fyrir bændaefni og endur-
menntunaraðstaða fyrir
starfandi bændur. Fjósið
verður rúmgott og bjart og
sérstaklega hefur verið hug-
að að móttöku hópa. Loft-
ræsting verður náttúruleg,
þannig að hvinur frá viftum
mun ekki trufla kennslu eða
leiðsögn.
MM
Nýr læknir
Hjalti Guðmundsson
læknir tók til starfa á Heilsu-
gæslustöð Grundarfjarðar
fimmtudaginn l.júlí sl.
Hann mun starfa þar í 2
mánuði, eða til 1. september
nk.
(w'ww.grundarjjordur. is)
Skógræktar-
félag í
heimsókn
Stjórn Skógræktarfélags
Islands ásamt starfsmönnum
og mökum komu í heimsókn
til Akraness 30. júní sl. Bæj-
arráð ásamt bæjarstjóra og
umhverfisfulltrúa áttu fund
með stjórninni ásamt stjórn
Skógræktarfélags Akraness
þar sem kynnt voru framtíð-
aráform bæjaryfirvalda í
skógræktarmálum á Akra-
nesi, uppbygging ýmissa
svæða undanfarin ár og sam-
vinna við Skógræktarfélag
Akraness. Rætt var einnig
um samstarf skógræktarfé-
lagsins við bæjaryfirvöld í
nútíð og framtíð. Að fundi
loknum var farið í skoðunar-
ferð í Garðalund, Slögu og
Klapparholt.
(www.akranes.is)