Skessuhorn - 07.07.2004, Blaðsíða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 7. JULI 2004
jntaðunu...
Sundfélag Akraness meðal þeirra bestu
Hvorki fleiri né færri en
fimm Islandsmet voru sett á
metamóti Sundfélags Akraness
30. júní sl. Sundfélagið setti upp
lítið sundmót í þeim tilgangi að
reyna við Islandsmet. Mótið
gekk vel fyrir sig og metin féllu.
Það munaði ekki miklu að sjötta
metið hafði verið slegið, en
kvennasveitin fór 4x1 OOm
skriðsund á tímanum 4:00,59.
íslandsmetin fimm:
4x50m flugsund telpna
2:13,12 (gamla. metið var:
2:14,70) Það voru þær Gyða
Björk, Daisy, Ragna Lóa og Aþ-
ena Ragna sem syntu.
4x50m bringusund telpna
2:30,91 (gamla metið: 2:34,62)
Þær Díana, Aþena Ragna,
Hulda og Rakel syntu.
8x50m skriðsund kvenna
3:53,29 (gamla metið: 4:00,63)
Kolbrún, Aþena, Daisy, Gyða,
Hulda, Karitas, Elísa og Hildur
syntu.
400m baksund kvenna
4:55,33 (4:59,18) og það var hin
frækna Kolbrún Yr Kristjáns-
dóttir sem setti metið.
4x2 OOm skriðsund telpna
9:19,21 (9:23,21) Þær Daisy,
Gyða Björk, Hulda og Aþena
Ragna syntu.
Þriðja besta liðið
Sundfélag Akraness er nú
með 3ja besta félagið á AMI.
Félagið setti 4 Islandsmet, 17
Akranesmet og fékk alls 48
verðlaun og var auk þess valið
prúðasta liðið. Aldursflokka-
meistaramótið fór frarn á Akur-
eyri síðustu helgina í júní. Ar-
angur Sundfélag Akraness var
hreint frábær þar sem liðið end-
aði í 3. sæti í stigakeppni félaga.
Sundlið ÍRB sigraði með 1.543
stigum, í öðru varð SH með
Fasteignir á Akranesi
Akursbraut 22
86 m2 íbúð á miðhæð í þríbýli, 2
svefnherbergi, auk sameignar í
kjallara.
Bílskúr 19 m2. Gott útsýni yfir
höfnina.
Vailarbraut 1
Mikið endum 59 m2, 2ja herbergja
íbúð á fyrstu hæð. Endurn.:
Eldhúsinnrétting, baðinnr.,
innihurðir, gólfefni. Sér geymsla
í kjallara ekki innifalin í flatarmáli
íbúðar. Blokkin klædd með steni.
Stuttur afhendingartími.
Sandabraut 4
88 m2 íbúð á n.h. 2-3 svefnherbergi.
Mikið endurnýjuð eign. Stendur
við fáfama götu. Hús nýl. málað
að utan. Bílskúr 24 m2. Stuttur
afhendingartími.
Fasteignamidlun Vesturlands ehf.
Kirkjubraut 40, 300 Akranes
Sími 431 4144 Bréfsími 431 4244 GSM 896 2497
Soffi'a S. Magnúsdóttir
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Vegna leiks ÍA
og TVM Tallinn
Vegna leiks ÍA í Evrópukeppninni við svissneska
liðið TVM Tallinn, sem fram fer á Akranesi
15. júlí nk. verður einungis leyfilegt að selja
miða í sæti skv. reglum UFA.
i Sætin eru aðeins 752 sem hægt er að selja.
f Miðaverð er 1.500 krónur.
I Áríðandi er að fólk átti sig á því að bannað er að
vera annars staðar við völlinn á þessum leik.
Stjórn Meistaraflokks ÍA
\_____________________________________________y
1.392 stig, í þriðja sæti varð svo
Sundfélag Akraness með 965
stig sem er 147 stigum meira en
í fyrra þegar liðið endaði í
fjórða sæti. Sundfélagið Ægir
varð í fjórða sæti með 759 stig,
Sundfélagið Oðinn í fimmta
sæti með 658 stig og Sunddeild
KR í því sjötta með 455 stig.
Hrafn Traustason fór á kost-
um á mótinu þegar
hann vann gull í öll-
um sex einstaklings-
greinunum sem
hann keppti í, setti
tvö Islandsmet, sex
Akranesmet og varð
stigahæsti sveinninn
á mótinu.
Það er ljóst að
Sundfélag Akraness
er aftur komið í hóp
sterkustu liða á Is-
landi. A vef Sundfé-
lags IA kemur fram
að nú þurfi félagið
betri aðstöðu. Þar
segir m.a.: „Staða SA
í dag er sú að félagið
getur ekki tekið inn
fleiri iðkendur vegna
plássleysis í laugunum hér á
Skaga, en félagið þarf að geta
stækkað enn meira til að geta
keppt við risana frá Suðurnesj-
um og Hafharfirði.“ MM
Afinælishátíð STJÁ
Um þessar mundir fagnar
Starfsmannafélag Járnblendi-
verksmiðjunnar á Grundar-
tanga 25 ára afmæli. Af því til-
efni var á laugardaginn var
blásið til afmælishátíðar á Þór-
isstöðum, sem hefur skapað sér
sess sem nokkurs konar sumar-
dvalarstaður meðlima STJA. A
hátíðinni, sem var vel sótt þrátt
fyrir töluverða úrkomu, var
starfsmönnum sem unnið hafa
hjá fyrirtækinu í 25 ár fært
glæsilegt gullúr að gjöf. Hátíð-
ardagskrá var í golfskálanum,
leiktæki og skemmtilegheit
fyrir börnin og öllum afmælis-
gestum boðið í grillmat. Um
kvöldið var haldin kvöldvaka
og síðan dansleikur þar sem
gestir skemmtu sér fram eftir
nóttu, en fjölmargir gistu Þór-
isstaði í tjöldum eða bústað.
ALS
Ungfrú gæs 2004 var á vappi á
hátíðinni og sló á létta strengi.
Fékk afmælisgesti meðal annars
í létt Höfuð - herðar - hné og
tær með sér.
Allir krakkar, allir krakkar... Það var mikið fjör á rólóvellinum á Þóris-
stöðum.
Jón Sigurðsson var fyrstur til þess að gegna stöðu forstjóra Járn-
blendiverksmiðjunnar. Hann lét sig ekki vanta á hátíðina og skartaði
sem endranær einkennismerkinu sínu - þverslaufu. Með honum á
myndinni er Barði Friðriksson, sem var fyrsti stjórnarformaður ís-
lenska járnblendifélagsins, og eiginkonur þeirra.
Afmæisgestir létu rigningarúða ekki aftra sér frá því að mæta á af-
mælishátíðina.