Skessuhorn - 07.07.2004, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 7. TÚLÍ 2004
úaU9Unu<>
Sumarbústaðir
og frístundahús
óskast á Vesturlandi!
Á Fold fasteignasölu er á skrá fjöldi áhugasamra
sumarbústaðakaupenda. Staðgreiðsla í boði
fyrir réttar eignir. í sumum tilvikum má semja
um langan afhendingartíma.
Nánari upplýsingar í síma 552 1400,
694 1401 eftir lokun og á skrifstofu Foldar.
FQTvD
FASTEIGNASALA
Fold ehf. • Laugavegi 170 • 105 Reykjavík • Sími 552 1400
Fax 552 I -405 • fold@fold.is • www.fold.is
Steinsstaðaflöt 25-27
3ja (113,6 fm) og 4ra (142,6 fm
+ geymsluloft). íbúðum skilað
fullbúnum með gólfefnum.
Innréttingar frá Trésmiðju
Akraness. Hornbaðkar með nuddi
í öllum íbúðum + sturtuklefi (með
s nuddi, gufu, síma, útvarpi) í 4ra herbergja. Öryggiskerfi.
Sameiginlegur salur í miðrými. Frágengin lóð og bflastæði.
FALLEGAR OG RÍKULEGA BÚNAR ÍBÚÐIR.
Akranesi • Sími 431 4045 • www.hakot.is
Sveinafélag málmiðnaðar-
manna á Akranesi
Kirkjubraut 40, 300 Akranes
Súni: 431-2380 Fax : 431-2389
Netfang: sma@rl.is
Framhaldsaðalfundur
Framhaldsaðalfundur S veinafélags
málmiðnaðarmanna áAkranesi verður
haldinn á Hótel Barbró Kirkjubraut 11,
fimmtudaginn 8.júlí kl 20.00
DAGSKRÁ
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Lýst úrslitum sameiningarkosninga
við Félag iðn og tæknigreina
3. Kosning 1 manns í stjórn Fit og 3ja
manna í trúnaðarráð.
4. Önnur mál
Kaffiveitingar
Stjórnin
J
Glæsileg dagskrá írskra daga
Um næstu helgi verða írskir
dagar haldnir á Akranesi í
fimmta sinn. Dagskráin hefur
nú verið borin í hvert hús á
Vesturlandi en hana er einnig
að finna í formi PDF skjals á
www.akranes.is. A föstudag
verður götugrill bæjarbúa sem
sló í gegn á síð-
asta ári. Heyrst
hefur að nú
þegar séu íbúar
hinna ýmsu
gatna bæjarins
farnir að tala
sig saman til
þess að skipu-
leggja enda
góðir vinningar
í boði fyrir
bestu skreyt-
ingarnar og
ekki síður bestu
stemninguna.
Margir bestu skemmtikraftar
þjóðarinnar munu leggja leið
sína á Irska daga. Þeirra á með-
al eru Eivör Pálsdóttir, Skíta-
mórall, Paparnir og Dan
Cassidy, Kalli Bjarni, Kristján
Arsælsson, Yesmine Olson og
Páll Óskar. Eitt stærsta knatt-
spyrnumót sumarsins, Skaga-
mótið, fer fram þessa sömu
helgi auk þess sem Bylgjulestin
verður á staðnum. Því er fyrir-
fram ljóst að mikið líf og fjör
verður í bænum.
Meðal annarra dagskrárliða
á írskum dögum er lopapeysu-
ball þar sem Paparnir og Skíta-
mórall munu halda uppi ekta
írskri stemningu, dorgveiði-
keppni, skemmtisiglingar
verða um Hvalfjörð, strand-
blakmót, keppni í sandkastala-
byggingum, íslandsmeistara-
keppni í sæþotuakstri, sund-
laugarpartý, menningar- og
markaðstjald og margt, margt
fleira. Boðið verður upp á sigl-
ingar milli Reykjavíkur og
Akraness alla helgina en það er
Eldingin sem sér um fólks-
flutningana.
SÓK/RÓ
Leifshátíð um næstu helgi
Fjölskylduhátíð Dalamanns-
ins Leifs Eiríkssonar verður
haldin að Eiríksstöðum í Hauka-
dal dagana 9. til 11. júlí. Um er
að ræða fjölskylduhátíð með
léttu yfirbragði, fræðslu og ým-
iss konar afþreyingu. Dagskráin
hefst kl. 17:00 á föstudagskvöld-
ið með því að víkingar koma sér
fyrir í víkingabúðum og verður
síðan formlega sett þá um kvöld-
ið af Höllu Steinólfsdóttur, Ytri-
Fagradal. Hátíðinni lýkur svo á
sunnudaginn kl. 15:00. A svæð-
inu verða víkingar að störfum
við handverk, myntslátt, járn-
smíði, útskurð o.m.fl. Einnig
verða þeir með forna leiki, spil
og þrautir, lesa í rúnir og við
eldunarstörf. Þeir verða með
sölu á handunnum munum.
Eldað verður að víkingasið. Auk
þessa verða víkingarnir með
ýmsar uppákomu meðan á há-
tíðinni stendur. „Eiríkur rauði“
með konu sinni og syni mun búa
í tilgátubænum
að Eiríksstöðum
meðan á hátíð-
inni stendur og
tileinka sér lifn-
aðarhætti þess
tíma er Eiríkur
rauði lifði.
A laugardag-
inn mun Ingi-
björg Guð-
mundsdóttir,
skólameistari
Kvennaskólans,
flytja hátíðar-
ræðu hátíðarinnar í ár.
A hátíðinni verður einnig
boðið upp á ýmis skemmtiatriði
og fróðleik. Meðal þess sem
boðið verðtu- upp á er að Oddur
Helgason, ættfræðingur, rekur
ættir gesta til Eiríks rauða,
stoppleikhópurinn sýnir leikritið
Landnám Islands, Erla Stefáns-
dóttir horfi aftur í tímann,
„Gunnar, Njáll og Kolskeggur“
heimsækja heitmey Gunnars,
farið verður í víkingakappleiki
og ratleik og „Halli Reynis og
band“ flytja nokkur lög. Dans-
leikur verður bæði á föstudags-
og laugardagskvöldið. A laugar-
dagskvöldið mun Brennu-Flosi
tendra í bálkesti. Þess ber að
geta að á meðan á hátíðinni
stendur verður frí veiði í Hauka-
dalsvatni. MM
mmshús
Einbýlishús á Brekkuflöt 2, 3, 5 og 7
Lítil og hagkvæm hús með
2 svefnherbergjum og inn-
byggðum bílskúr á Brekkuflöt
• Viðhaldsfrí veggklæðning.
• Innangengt í bílskúr.
Stærð: íbúð 89,6 m2
Bílskúr 28,8 m2
II Sl
■■
Nánari upplýsingar fást á
skrifstofu okkarað
Smiðjuvöllum 9.
Trésmiðjan AKUR ehf.
Smiðjuvöllum 9 • 300 Akranes • Sími: 430 6600 • Fax: 430 6601
Netfang: akur@akur.is • Veffang: www.akur.is