Skessuhorn


Skessuhorn - 07.07.2004, Síða 20

Skessuhorn - 07.07.2004, Síða 20
20 MIÐVTKUDACiUR 7. JULI 2004 cmCiddlltlUu. Hert öryggi í millilandasiglingum Lok, lok og læs! Nú hefur Grundartangahöfn verið girt rammlega af og inn eða út fyrír þetta hlið fer enginn nema eiga gilt erindi. Þann 1. júlí tók gildi ný al- þjóðleg tilskipan sem varðar ör- yggi í millilandasiglingum og þurfa allar hafnir sem þjónusta skip í slíkum siglingum nú að framfylgja svokölluðum ISPS- kóða sem felur í sér mjög herta öryggisgæslu. Aðgengi að haífi- arsvæðinu er þannig heft til muna ffá því sem verið hefur og umferð um það í raun og veru stýrt, myndavélar vakta svæðið og sérstakir gæslumenn fara í reglulegar eftirlitsferðir, auk þess sem allir sem fara inn á svæðið verða að gera ítarlega grein fyrir sjálfum sér og erindi sínu fyrir hafhargæslumönnum. Klafi Fyrirtækið Klafi er í eigu Is- lenska járnblendifélagsins hf. og Norðuráls hf. og hefur umsjón með rekstri hafnarinnar við Grundartanga. Helstru verkefni eru uppskipun hráefna fyrir verksmiðjurnar, ásamt því að koma efhi inn á vinnslusvæði þeirra og útskipun fullunninnar vöru. Þá sér fyrirtækið einnig um daglegan rekstur hafnar- krana og löndunarkerfi Islenska járnblendifélagsins. Með til- komu ISPS-kóðans fá starfs- menn Klafa aukið hlutverk þar sem það hefur komið í þeirra hlut að framfýlgja kóðanum. Þar á bæ hafa menn unnið hörðum höndum að því síðustu vikurnar að koma tilskipuninni í gagnið. Vöm gegn hryðju- verkum Smári Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Klafa, segir upp- hafið að þessurn breytingum megi rekja til árásanna á Tví- buratumana í New York þann 11. september 2001 og hryðju- verkaógnunarinnar sem skapað- ist í kjölfarið. Arið 2002 vom samþykkt alþjóðleg lög um hafnarvernd og áðurnefndur ISPS-kóði setmr á. Það er rétt um mánuður síðan óskað var eft- ir því við Klafa að fýrirtækið tæki að sér gæslu á svæðinu í sam- ræmi við hinar nýju relgugerð og því er óhætt að segja að handtök- in hafi verið snör. Viku áður en til- skipunin gekk í gildi gerði Sigl- ingamálastofnun úttekt á aðstæð- um og í kjölfarið fékk Klafi vottun um að öllum regl- um væri fylgt. Stór höfn í tonnum talið Um höfhina á Grundartanga fara að jafnaði um 200 skip á ári og í tonnum talið er þetta næst stærsta höfnin á landinu. Lang flest þessara skipa em er- lend og krafan um að ffamfylgja ISPS-kóðanum því kannski ekki úr lausu lofti gripin. Hlutverk Klafa hefur verið að undirbúa gildistöku tilskipunarinnar, en til þess hefur þurft að ráða 7 starfs- inenn til gæslustarfa við höfnina, skipuleggja störf þeirra og ör- yggisgæslu á svæðinu, útbúa auðkenniskort fýrir þá sem mega fara um svæðið, koma upp hlið- um og myndavélum og öðm því sem tilheyrir. Grundartanga- höfn ber kostnað af öllum tækja- búnaði og áætlar Smári að bún- aðurinn sem til þarf kosti um 12- 15 milljónir. Rekstrarkostnaði verður mætt með auknum álög- um á vegfarendur um höfnina. Klafi hefur haft þennan undir- búning með höndum, dyggilega studdur af starfsmönnum Akra- nes- og Gmndartangahafhar. Flóknari samskipti Að sögn Smára verða öll sam- skipti manna á rnilli óneitanlega heldur þyngri í vöfum en verið hefur, en nú er til dæmis gerð krafa um það að skip á leið til hafnar látd vita af sér, gefi upp staðsetningu og áætlaðan komu- Smári og Sigurður Dagbjartsson öryggisvörður fylgjast grannt með allri umferð úr hliðinu. Allt í plati tíma með nákvæmari hætti en áður hefur tíðkast, sendi lista yfir áhafnarmeðlimi og gefi jafn- framt upp vegabréfanúmer þeirra, geri grein fýrir því hverj- ir komi til með að fara frá borði meðan skipið hefur viðdvöl og hverjir eigi erindi um borð. Þessar upplýsingar hafa gæslu- menn undir höndum og enginn sem ekki er skráður á lista fær að fara um eða frá borði. Á hinn bóginn telur Smári það til bóta að betur sé fýlgst með umferð um Grundartangahöfn, en stundum hefur verið rætt um að aðgengi að henni sé allt of auð- velt og óprúttnir aðilar geti auð- veldlega notfært sér það. Smári segist reyndar aldrei hafa vitað til þess að eitthvað misjafht hafi átt sér stað við höfhina, engu að síður sé þetta ákveðinn léttir fýr- ir starfsfólk og að hér með verði illmögulegt að skipa nokkru því upp sem ekki þolir dagsins ljós. Starfsfólk vel undirbúið Smári segir starfsfólk Klafa taka breytingunum vel, enda hafi mannskapurinn verið nokkuð vel undirbúinn. I vor var haldið námskeið á vegum Siglinga- málastofnunar og 'Ibllgæslunnar og farið )fir málin. Sex manns frá Klafa tóku þátt í því nám- skeiði. Smári segir fólkinu óneit- anlega hafa þótt svolítið skrítið að vera allt í einu komið á nám- skeið til að verjast hryðjuverka- mönnum þar sem meðal annars var kennt að nota málmleitar- tæki, en hryðjuverkamenn gera víst ekki boð á undan sér og láta til skarar skríða á ólíklegustu stöðum og því skiljanlegt að gripið sé til hertrar gæslu. ALS Eins og kunnugt er fór fyr- irtækja ratleikur fram á Jónsmessuskemmtun sem haldin var á Akranesi í lok júní. Aðdragandi keppn- innar fólst m.a. í því að starfmenn fyrirtækja skor- uðu á kollega sfna i öðrum fyrirtækjum í keppni og kepptu þannig tvö lið sín á milli. Starfsmenn íslands- banka skoruðu fyrir keppn- ina á vini sina i Lands- bankanum sem tóku á- skoruninni og bjuggu sig undir spennandi keppni. Þegar Landsbankastarf- menn mættu á staðinn var hinsvegar engan að sjá frá íslandsbanka! Landsbankinn fór því fýlu- ferð á staðinn. Þegar helg- in var liðin barst sending til starfsmanna l'slandsbanka. Þar var á ferðinni gjöf frá Landsbankastarfsfólki sem innihélt m.a. krús af fjölnota vítamíni ásamt gömlu, lúnu reiðhjóli sem þiggjendur máttu laga næsta árið, fyrír næstu keppni. Þannig var skorað á íslandsbanka að mæta til keppninnar að ári. Aðspurðar um ástæðu þess að þær mættu ekki til leiks, voru starfskonur íslandsbanka með vel á þriðja tug afsakana. Einhvers misskilnings hafði gætt í hópnum, sumar voru uppteknar og aðrar erlendis og því hafði botninn dottið úr áskorendahópnum og ekkert orðið af neinu. Spennandi verður að fylgjast með hverjir mæta að ári. MM LAhrifI wmmmmmmmmmmmm* Verið velkomin á sýningu okkar systra að Bakkatúni 20 á Akranesi. Við sýnum og seljum ný verk, Margrét hefur gert hörlöbera með þrykki og Jóhanna vatnslitamyndir. Það er opið frá 13-18, föstudag, laugardag og sunnudag. Kaffi á könnunni. Hlökkum til að sjá ykkur, kveðja Jóhanna og Margrét Olgu- og Leópoldsdœtur. www. leopold. is/glöggarsystur

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.