Skessuhorn


Skessuhorn - 07.07.2004, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 07.07.2004, Blaðsíða 23
utttaaunu... MIÐVIKUDAGUR 7.JULI2004 23 Grundmjjarðarhöfn með þeimjyrstu til að uppjylla ákvæði um siglingavemd I maí sl. staðfesti Siglinga- stofhun Islands formlega vernd- aráætlun Grundarfjarðarhafnar, skv. ákvæðum alþjóðasamþykktar urn siglingavernd. I lok júní var svo staðfest að höfnin hefði upp- fyllt skilyrði skv. reglum um hafhavernd. Grundarfjarðarhöfn var þannig með fyrstu íslensku höfn- unum til að ljúka gerð verndará- ætlunar og fá staðfestingu á gildi hennar og tilheyrandi ráðstöfun- um. Siglingaverndin byggist á nýj- um alþjóðlegum ákvæðum sem gera kröfur uin tilteknar aðgerðir um borð í skipum og í höfnum; aðgerðir gegn ógnunum og ólög- mætum athöfnum. Siglingaverndin skiptist í skipavernd, farmvernd og hafna- vernd, en hafnaryfirvöld hafa tek- ið þátt í að uppfylla reglur og á- kvæði um hið síðastnefnda. Forsaga alls þessa er sú að í kjölfar hryðjuverkanna í Banda- ríkjunum lf. september 2001 fór af stað umræða á vettvangi Al- þjóðasiglingamálastofnunarinnar, IMO, um með hvaða hætti koma mætti í veg fyrir að skip yrðu not- uð til hryðjuverka á önnur skip, mikilvæg mannvirki eða jafnvel borgir. IMO, sem er ein af stofnunum Sameinuðu þjóðanna, samþykkti í desember 2002 kröfúr um sér- stakar ráðstafanir til að auka og efla siglingavernd í skipum sem eru í alþjóðlegum siglingum og hafhavernd í höfnum sem þjóna slíkum skipum. Þessi ákvæði eiga að vera komin að fullu til fram- kvæmda þann 1. júlí 2004. Ákvæðin um siglingavernd ná til allra skipa í alþjóðlegum sigl- ingum sem mælast stærri en 500 brúttotonn, önnur en fiskiskip og herskip. Þetta þýðir að almenn kaupskip, olíuflutningaskip, skemmriferðaskip og önnur slík skip sem eru í förum milli landa falla undir þessi nýju ákvæði. Að auki gilda þessi nýju ákvæði um allar hafnir sem þjóna fyrr- greindum skipum. Hér á landi eru um 30 hafnir eða viðlegu- kantar þar sem kaupskip í alþjóð- legum siglingum koma til hafnar. Aðeins hluti þessara hafna þarf væntanlega að fullnægja þessum kröfum að staðaldri. Þetta skýrist af því að sumar þessara hafna taka á móti skemmtiferðaskipum og það aðeins yfir sumartímann. Þá er umferð skipa um margar aðrar hafhir þannig að þangað koma kaupskip aðeins tilfallandi t.d. við útskipun á mjöli og lýsi. Það er háð ákvörðunum hafn- aryfirvalda á hverjum stað hvort höfnin undirgengst þessar reglur, en þær hafnir sem ekki gera það munu ekki geta tekið á móti og þjónað skipum í alþjóðlegum siglingum efrir 1. júlí 2004. Akvörðun hafnarstjórnar Grundarfjarðarhafnar um að undirgangast þessi ákvæði og leggja í umfangsmikla vinnu við innleiðingu reglnanna, byggðist á því að höfnin vill geta tekið á móti sldpum í alþjóðlegum sigl- ingum, t.d. skemmtiferðaskipum og farmskipum, s.s. skipum sem landa hér frosnum sjávarafurðum til vinnslu. Við ákvörðun um að leggja í kostnaðarsama lengingu stóru bryggju fyrir nokkrum árum var það einmitt haft í huga að höfnin yrði þá vel í stakk búin til að taka á móti slíkum skipum, sem gætu aukið tekjur hafnarinn- ar og annarra þjónustuaðila. A vef Siglingastofnunar Is- lands, www.sigling.is, er að finna ýmsan fróðleik um siglingavernd. Það sem Grundarfjarðarhöfn hefur þurft að gera til að uppfylla skyldur sínar skv. fyrrgreindum reglum er m.a. að vinna áhættu- mat og útbúa verndaráætlun fyrir höfnina. Það er áætlun og skipu- lag hafnarinnar um það hvernig eigi að framfylgja hafnaverndinni og starfa skv. þessum nýju regl- um. Áætlunin er samin af Haf- steini Garðarssyni hafnarverði og var mikil vinna lögð í hana. Haf- steinn er einmitt „verndarfull- trúi“ Grundarfjarðar en í því felst að hann hefur umsjón með fram- kvæmd hafnarverndarinnar. Haf- steinn hefur sótt sérstök nám- skeið og fundi vegna þessa. Höfhin þurfti að leggja í nokkrar ráðstafanir sem nú eru að verða fólki sýnilegar, t.d. þurfti að koma upp girðingu sem mun hafa það hlutverk að loka af hafnarsvæði þegar skip koma í höfii sem falla undir reglurnar. Þannig verður girt af ákveðið „verndarsvæði" fremst á stóru bryggju þegar skemmtiferðaskip koma í höfn, um 20 metrum ffá stefni skips sem liggur við bryggju. Umferð um þetta svæði verður takmörk- uð meðan á dvöl skipsins stendur. Einnig þurfti að koma upp eftir- litsmyndavél og gera ýmsar aðrar ráðstafanir til að ffamfylgja á- kvæðum reglnanna. Eg vil leyfa mér að geta þess að Grundarfjarðarhöfh hefur fengið sérstakt hrós ffá Siglingastofnun fyrir það hve vel og skipulega hefur verið unnið að innleiðingu þessara reglna og undirbúningi öllum. Höfnin er meðal fyrstu (ef ekki fyrst!) til þess að ljúka undir- búningi og uppfylla skyldur sínar skv. reglum um hafnaverdn. Vil ég fyrir hönd hafnarstjórnar sér- staklega þakka Hafsteini Garð- arssyni vel unnið verk og memað í þessum efnum. Ljóst er að reglur hafnavernd- ar og allt sem þeim fylgir, s.s. varnargirðingar, takmörkun um- ferðar og tilheyrandi varúðarráð- stafanir, eru okkur Islendingum ffamandi. I smtm máli má þó segja, að allt sé þetta afleiðing af breyttri heimssýn, efrir 11. sept- ember 2001, og hvað sem okkur kann að finnast um slíka viðhöfn, þá eru þær hluti af starfsskilyrð- um hafha í heiminum í dag, ís- lenskra líka. Björg Agústsdóttir, hajnarstjóri Grillsérfæðingarnir hjá Kötlu hafa þróað nýja kryddblöndu með okkur sem inniheldur húðað salt. Saltið er húðað með jurtafitu sem er náttúrlegt efni og hefur engin áhrif á bragðið. Húðað salt er þeim eiginleikum gætt að það byrjar ekki að virka fyrr en við matreiðslu á kjötinu. Þetta hefur það í för með sér að saltið dregur ekki safann úr kjötinu og tryggir að kjötið verður mun safaríkara. Borgarnes kjötvörur bjóða eftirfarandi grillkjöt þar sem notað er húðað salt. Þurrkryddaðar Lamba grillkótilettur Lamba framhryggssneiðar Lamba lærissneiðar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.