Skessuhorn - 04.08.2004, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 4. AGUST 2004
Lintasijnui..
Eftir
helgina
Það má kalla nokkuð merkilegt að eins ósamtaka og íslend-
ingar geta verið í ýmsum málum þá eru engir meiri hópsálir
þegar kemur að ferðalögum og sumardvalarstöðum. Það sést
meðal annars á helstu sumarhúsabyggðum landsins þar sem
byggðin er víða það þétt að ekki er með góðu móti hægt að
míga fram af útidyratröppunum í morgunsárið (sem er
grundvallarforsenda fyrir sumardvöl í sveit) án þess að bunan
lendi á eldhúsglugganum í næsta bústað.
Best kemur þó þessi félagsþörf Islendinga fram um verslun-
armannahelgi sem vill svo til að er árlega um land allt. Þrátt
fyrir það eru Islendingar alls ekki um land allt þessa helgi og
jaðrar meðal annars við að höfuðborgarsvæðið leggist í eyði í
þrjá til fjóra daga. Atgangurinn er líka svipaður, þegar lagt er
af stað á fimmtudegi og föstudegi, og búast mætti við ef Suð-
urlandsskjálftinn mundi ríða yfir.
Vissulega er ekkert eðlilegra, ef út í það er farið, en að þeir
sem allt árið um kring búa í nábýli við hundrað þúsund
manns kjósi að nota tækifærið þegar það gefst og flýja mann-
mergðina og næla sér í tilfinningalegt svigrúm eins og mað-
urinn sagði.
Sú er hinsvegar ekki raunin því um verslunarmannahelgina
hópast allir á sömu tvo þrjá blettina á landinu, hræddir um að
annars séu þeir að missa af einhverju.
Staðarhaldrar á umræddum blettum keppast vissulega um
að laða að sér lýðinn með loforðum um glæsilega dagskrá sem
enginn sér svo sem fyrir mannfjöldanum hvort eð er.
Þannig er það nú.
Vissulega hefur hegðun Islendinga um verslunarmanna-
helgi stórlega batnað síðustu ár, þ.e.a.s. eftir Eldborgarhátíð-
ina margumtöluðu. Kannski hefur þjóðarsálinni ofboðið þau
ósköp sem þar gengu á og skildi engan undra. Engu að síður
þykir manni undarlegt að sjá myndir frá útihátíðum helgar-
innar þar sem heilu bæjarfélögin eru útsvínuð en mótshaldar-
ar brosa í gegnum sorpið geislandi af hamingju yfir að ofbeldi
skuli hafi verið í sögulegu lágmarki.
Sjálfur er ég lagður af stað í útilegu í þessum töluðu orð-
um, þegar ég er nokkuð öruggur um að allir hinir séu komn-
ir heim til sín. Það er nefnilega lang skemmtilegast að vera
ferðamaður á Islandi þegar maður getur verið laus við alla
þessa ferðamenn.
Gísli Einarsson, ferðamaður.
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Sigriður Sigurðardóttir afhendir styrkinn.
Berserlár fá góða gjöf
Björgunarsveitinni Berserkj-
um f Stykkishólmi barst í gær
myndarlegur fjárstuðningur frá
einstaklingi í Hólminum. Gjöf-
Fyrirhuguð er ferð sveitar-
stjórnarmanna á Vesturlandi til
Suður Mæris í Noregi í byrjun
september. Páll S Brynjarsson
bæjarstjóri Borgarbyggðar, sem
tekur þátt í að skipuleggja ferð-
ina, segir að tilgangur ferðar-
innar sé sá að vestlenskir sveit-
arstjórnarmenn kynni sér rekst-
ur sveitarfélaga og byggðaþró-
un í Noregi. „Þar eru menn
Miðvikudaginn 28. júlí s.l.
opnaði Ragna Sólveig Scheving
sýningu á munum úr leir og
gleri í veitdngastaðnum Narfeyr-
arstofu í Stykkishólmi.
Sýningin samanstendur af
kertastjökum úr leir og gleri
sem prýða borð og gluggakistur
veitingastaðarins. Þá munu mat-
argestir fá veitingar sínar ffam-
reiddar á glermatardiskum eftir
Skagaleikflokkurinn hefur
nú ákveðið að ráðast í uppsetn-
ingu á Járnhausnum eftir bræð-
urna Jónas og Jón Múla Arna-
syni og er frumsýning áætluð
23. október næstkomandi.
Helga Braga Jónsdóttir leik-
stýrir sýningunni, en æfingar
hefjast í byrjun september.
Skagaleikflokkurinn fagnar í ár
þrjátíu ára starfsafmæli og þótti
vel við hæfi að velja þetta stykki
á afmælisárinu þar sem Skaga-
leikflokkurinn var formlega
stofnaður í kjölfarið á vel lukk-
aðri uppsetningu á Járnhausn-
in var ein milljón króna og gef-
andinn heitir Sigríður Sigurð-
ardóttir en styrkurinn er til
minningar um bróður hennar
eins og hér að velta fyrir sér
sameiningu sveitarfélaga og þá
hafa þeir nokkurra ára reynslu
af rekstri sem ætlunin er að
færa til sveitarfélaganna hér,
málefnum fatlaðara, heilsu-
gæslu og öldrunarþjónustu,"
segir Páll. Reiknað er með að
um tuttugu sveitarstjórnar-
menn af Vesturlandi fari í ferð-
ina. GE
Rögnu og eftir máltíðina geta
gestirnir keypt diskana ef þeir
óska. Þessi nýbreytni hefur
mælst vel fyrir hjá gestum og er
þetta upplagt tækifæri fýrir fólk
að eignast fallegan disk til minja
eða jafnvel að safha sér í matar-
stell.
Sýningin er opin alla daga á
opnunartíma Narfeyrarstofu og
stendur fram eftir ágústmánuði.
um vorið 1974. Að sögn Stein-
gríms Guðjónssonar, formanns
leikflokksins er yrkisefni
þeirra bræðra í Járnhausnum
sígilt - ástir og örlög í sjávar-
plássi - en verður þó poppað
eitthvað upp.
Þeir sem hafa áhuga á að taka
þátt í uppsetningunni, leikarar
jafnt sem söngvarar, eru hvattir
til að láta í sér heyra. „Við vilj-
um endilega fá sem flesta með
okkur í þetta, hvort sem það
eru gamlir raftar eða nýtt fólk,“
segir Steingrímur Guðjónsson.
ALS
Kristján Sigurðarson bónda á
Hálsi á Skógarströnd.
Stjórn Berserkja vill koma á
framfæri miklu þakklæti til Sig-
ríðar og að þeirra sögn mun
gjöfin nýtast til að fjármagna
kaup á nýjum björgunarbát sem
mikil þörf mun vera fýrir hjá
sveitinni. ,ir.
GE
Róleg
verslunar-
manna-
helgi á
Akranesi
Engin mál komu til kasta
lögreglunnar á Akranesi um
verslunarmannahelgina. Að
sögn Garðars Ajxelssonar,
hjá lögreglunni, var helgin
óvenju róleg enda fáir í bæn-
um og lítið um að vera.
ALS
Starfsmenn
Íífá
launabót
Verkalýðsfélag Akraness
og Sveinafélag málmiðnað-
armanna gengu nýverið frá
samkomulagi við forráða-
menn Islenska járnblendifé-
lagsins á Grundartanga um
arðgreiðslu Ij til starfsmanna
upp á samtals 6,7 milljónir
króna. Mun þessi greiðsla
koma til útborgunar í þess-
um mánuði. Um eingreiðslu
er að ræða og byggir hún á
samkomulagi urn arð-
greiðslu vegna hagnaðar
sem varð á rekstri fyrirtækis-
ins árið 2003. Vilhjálmur
Birgisson, formaður VLFA,
kvaðst í samtali við Skessu-
horn vera afar ánægður nteð
lyktir málsins fyrir hönd
starfsmanna.
AÍAÍ
Sveitarstj ómamienn
til Noregs
Gler- og leirlistarsýning
Jámhausinn
poppaður upp