Skessuhorn


Skessuhorn - 04.08.2004, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 04.08.2004, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 4. AGUST 2004 6 jntíaunu,.. BORGARBYGGÐ CSJ Starfsmabur í heimaþjónustu Starfsmabur óskast í heimaþjónustu frá 1. september n.k. Um er að ræða ríflega 50% starf. Umsóknarfrestur er til 23. ágúst. Upplýsingar hjá félagsmálastjóra á skrifstofu Borgarbyggðar eða í síma 437 1224. Border Collie hvolpar Til sölu 10 vikna hreinræktaðir Border Collie hvolpar. Ættbókarfœrðir. Upplýsingar gefur Gunnar í síma 435 0130 og 695 9450. Afvinna ! Óskum eftir duglegu, stundvísu og hressu fólki sem er til í að vinna með okkur til framtíðar. Verkkunnátta við handflökun eráskilin. Umsóknum verður ekki svarað í síma. Vinsamlega sendið umsóknir á edalfiskur@edalfiskur.is eða í pósti á neðangreint heimilisfang: Eðalfiskur ehf Sólbakka 6 310 Borgarnesi r BORGARBYGGÐ Auglýsing L Deiliskipulag fyrir Gamla mibbæinn i Borgarnesi Um er að ræða skipulag á svæði sem afmarkast af Egilsgötu og Brakarbraut niður að Brákarpolli í Borgarnesi. Samkvæmt ákvæðum 26. gr skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, er nér með lyst eftir athugasemdum við ofangreint deiliskipulag. Tillagan mun liggja frammi á bæjarskrifstofu Borgarbyggðar frá 4. ágúst 2004 til 2. september 2004. Athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofuna fyrir 16. september 2004 og skulu þær vera skriflegar. Borgarnesi 23. júlí 2004 Bœjarverkfrœbingur Borgarbyggbar. „Hafmeyjan“ á Breiðafirði Syndir í hina áttína Viktoría Áskelsdóttir, sem syndir nú fyrst manna yfir Breiðafjörðinn, kom til Flateyjar á miðvikudaginn í síðustu viku eftir að hafa synt 5,7 km þann daginn. Þá mun hún hafa þreytt um 21,7 km leið suður yfir fjörðinn frá Lambanesi við Brjánslæk. Vegna slæmrar vind- áttar og stórra strauma við Flat- ey, auk þess sem Flatey er við mesta úthafið, mun Viktoría snúa afgangi leiðarinnar við og halda frá Stykkishólmi á morgun og ljúka sundinu í Flatey. Vikt- oría hefur einsett sér að ljúka hinni 62 km löngu sundleið á tveimur vikum og ákvað því að synda ffá Stykkishólmi, í stað þess að bíða eftir að aðstæður myndu batna við Flatey. Skorradals- skotta Meðal þess sem í boði er fyrir ferðamenn í Borgarfirði í sumar er ferð sem kölluð er Skorradalsskotta en þeir sem dvelja á Hótel Glym í Hval- firði hafa tekið þessari nýjung fagnandi. Tekið er á móti hópnum við Hvalfjarðar- göngin , fjallað um Skessuna í Skessuhorni og ýmsa aðra áhugaverða staði á leið inn að landnámsjörðinni Ind- riðastöðum í Skorradal. Skipt er í lið, farið í leiki og keppt í ýmsum skemmtileg- um greinum sem ekki komast í íþróttatíma sjónvarpsstöðv- anna! Með sundinu skorar Viktoría á fólk að gerast heimsforeldrar og þannig styrkja þurfandi börn um allan heim. Heimsforeldrar er leið fýrir einstaklinga til að styrkja verkefni UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóð- anna, um allan heim og þar með fá tækifæri til að breyta lífi barna sem líða skort vegna fátæktar, þjást af sjúkdómum og heilsu- leysi eða eru fórnarlömb stríðsá- taka og náttúruhamfara. Samkvæmt upplýsingum frá UNICEF hafa fjölmargir ís- Þriðjudagskvöldið 10. ágúst kl. 20:30 sest Björn Steinar Sólbergsson organisti við org- el Reykholtskirkju og flytur verk eftir Johann Sebastian Bach, Felix Mendelssohn Bart- holdy, César Franck og Pál Is- ólfsson. Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð sumarsins í sam- vinnu Orgel og söngmálasjóðs Bjarna Bjarnasonar frá Skáney og Félags íslenskra organleik- ara. Þriðju og síðustu tónleik- lendingar hringt á skrifstofu stofhunarinnar eða sent tölvu- póst og lýst yfir stuðningi við Viktoríu og hvatt hana til dáða. Hefur sund Viktoríu einnig vak- ið athygli meðal starfsmanna UNICEF erlendis. Að jafnaði syndir Viktoría, sem er 47 ára gömul, fjóra km á dag á leið sinni yfir Breiðafjörð- inn en lengst hefur hún synt 5,7 km sem er svipuð vegalengd og Grettir heitinn Ásmundarson synti á leiðinni ffá Drangey. arnir í sumar verða þriðjudag- inn 17. ágúst með þeim Herði Áskelssyni organista við Hall- grímskirkju í Reykjavík og Ingu Rós Ingólfsdóttur selló- leikara. Björn Steinar Sólbergsson hefur verið organisti Akureyr- arkirkju síðan 1986. Hann hlaut íslensku bjartsýnisverð- launin 2001 og var valinn bæj- arlistarmaður Akureyrar 2002. GE Tónleikaröð við orgelið í Reykholtslárkju // 'e/ó/nif Maríutoppar Þessir toppar er algjört hnossgæti og eru alltaf bakaðir fýrir jólin á mínu heimili í fjór- faldri uppskrift. En auðvitað má gæða sér á þessu allan ársins hring. Best er að ffysta toppana þegar þeir eru tilbúnir og eiga í kistunni. Þeir smakkast best þegar þeir eru næstum þiðnaðir og ískaldir, þá eru þeir eins og litlar íssamlokur. 3 eggahvítur 3 dlflórsykur Þeytið eggjahvíturnar. Bætið flórsykrinum í og þeytið mjög vel þar til blandan er orð- in alveg stíf. Setjið bökunar- pappír á plötu. Best er að nota sprautupoka og sprauta inar- engsinum í litla toppa á plöt- tma. Bakið á 130°C í 45 mín. Ef þið Umsjón: Iris Arthúrsdóttir. viljið hafa toppana alveg þurrk- aða þá er gott að baka þá á 100°C á blæstri í 3 tíma. Súkkulaðikrem : 100 gr suóusúkkulaói 1/2 dl sterkt kajfi (gott að skipta lít 1 msk af kaffi útfyrir koníak) 1 eggjarauða 2 1/2 dl rjótni Bræðið súkkulaðið með kaff- inu og koníakinu ef þið notið það. Kælið aðeins og hrærið eggjarauðuna saman við. Þeyt- ið rjómann og hrærið varlega saman við í nokkrum skömmt- um. Sprautið fýllingunni á milli tveggja toppa og ffystið. HÚSRAÐ Ef Avocadóið er óþroskað er hœgt aðflýtafyrir þroska með því að geyma það í íláti með eplum. Þeir sem hafa áhuga á að láta birta uppáhalds uppskriftina sína geta sent hana inn ásamt ljósmynd af sjálfum sér eða réttinum (500 kb eða stærri), fullu nafini, heimilisfangi og síma á netfangið iris@skessuhom.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.