Skessuhorn - 04.08.2004, Side 10
10
MIÐVIKUDAGUR 4. AGUST 2004
oui:s9ijnu>.
„Listhlaup í eitt ár“
Laugardaginn 7. ágúst nk.
hefst í Listasetrinu Kirkju-
hvoli, Akranesi sýning Bjarna
Þórs Bjarnasonar ogkonu hans
Astu Salbjargar Alfreðsdóttur.
Þar sýna þau málverk, skúlp-
túra, glerverk og skartgripi.
Þau voru í nánii Engelsholm
kunsthöjskole á Jódandi síða-
sliðið ár og eru verkin á sýn-
ingunni affaksturinn af þeirri
dvöl.
Bjami Þór er fæddur árið
1948.
Hann stundaði nánt við Iðn-
skólann á Akranesi 1964-1970,
Myndlistarskóla Reykjavíkur
1975-1980, Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1975-
1980 og Engelsholm kun-
sthöjskole 2003-2004.
Bjarni Þór hefiír haldið 22
sýningar og heíúr gert 3 útí-
listaverk.
Asta Salbjörg er fædd árið
1956.
Hún stundaði nám við CPH
1998-2002 og Engelsholm
kunsthöjskole 2004. Þetta er
hennar fyrsta sýning.
Sýningin stendur til 5. sept-
ember. Listasetrið er opið alla
daga nema mánudaga frá kl.
15-18.
(Fréttatilkynning)
Kolgrafaríj örður á undan áædun
Framkvæmdir við nýjan veg yfir Kolgrafarfjörð eru á undan áættun. Að sögn Magnúsar Vals Jóhannssonar
umdæmisstjóra Vegagerðinnar á verktakinn að skila veginum færum fyrir haustið. „Það stefnir hinsvegar i að
verktakinn geti skilað veginum með bundu slitlagi einhverntiman i haust og við vonum að það gangi eftir,"
segir Magnús. Ljósmynd: Mats Wibe Lund
Munaðssjúkan meður búk
Heima því ég ekki er sjaldan eina felld vib fjöl,
- úti á kvennafari. „fari þab hreina kolab"
l/tuióhe'wút)
Að aflokinni
verslunarmanna-
helginni með til-
heyrandi útihátíð-
um þar sem vafa-
laust hefur verið
stofnað til nokk-
urra varanlegra
skyndikynna er
við hæfi að rifja
upp vísu sem mig
minnir að Stefán Steinsson hafi stungið að
vini sínum eftir vel heppnaða útihátíð í
Atlavík fyrir margt löngu:
Sú kostameyja Kristín Freyja
kann ab teygja snagann á þér
og öbrum peyja satt ab segja
seint mun ieigja magann á sér.
Það hefur lengi verið talinn höfuðkost-
ur á hverjum ungum manni, ekki síst yfir
verslunarmannahelgina að eiga þokkaleg-
an bílskrjóð. Amerískir voru lengi í tísku
en Volvo er alltaf vel frambærilegur svo
sem Magnús Olafsson kvað:
Volvoinn er vandab „car"
vel sœmandi konum.
Æbisgengib ástafar
ibka má í honum.
Eftirfarandi kveðskapur var á sínum
tíma festur á dyr heimavistarherbergis eins
skólabróður míns sem var reyndar manna
stilltastur og ólíklegastur til að leggja hart
að sér við hið ljúfa líf, rétt á meðan hann
skrapp í kaffi. Væntanlega þætti mörgum
ungum manni gaman að þurfa á svona
leiðbeiningaskilti að halda:
Leitib ekki lengi ab mér
Ijúfi meyjaskari.
Stundum verða fjárhagsástæður til að
standa í vegi fyrir framþróun mála þó öll
fáum við nú álíka stóran reit að lokum.
Gísli Olafsson ffá Eiríksstöðum mun hafa
ort eftirfarandi um vinkonu sína sem ung-
ur maður en ekki veit ég hve mikil alvara
lá á bak við:
Vonarhjólib valt er hér
á veikleik stólar enginn,
aubarsól er ofdýr mér,
ung og skólagengin.
Veit nokkur hver yrkir svo? Umræddur
Os gæti vel verið Blönduós:
Sé ég Ijós á brekkubrún,
býr þar drósin fögur.
Vítt um Ósinn vefur hún
vonaljósakögur.
Fleiri hafa gert sér góðar vonir á
Blönduósi. Maður nokkur var þar staddur
eftir gleðskap og var að kveðja félaga sína
sem spurðu hvar hann hefði hugsað sér
næturstað. Svarið kom um hæl:
Kannske fá nú sumir senn
sem þá hefur langab.
Þab er Ijós hjá Línu enn,
líklega fer ég þangab.
Ein ung og ægifögur og þar af leiðandi
eftirsótt heimasæta hafði að orðtæki „fari
það hreina kolað“. Þetta orðalag mun hafa
orðið tilefni eftirfarandi vísu og langar
mig að biðja lesendur ef þeir geta að upp-
lýsa mig um höfundinn:
Ég hef sveina batab böl,
burtu meinum skolab,
Lengi var sá góði siður iðkaður að yrkja
amorsljóð og mansöngva til kvenna. Eftir-
farandi kveðskapur mun vera eftir Stein
Steinarr:
Mína píu nú á ný
nœri ég hlýju versi.
Róms úr kvíum rennur frí
rœban skýlaus þessi.
Munabssjúkan mebur búk
má ég húka á sessu.
Eyjan dúka eblissjúk
eg vil Ijúka þessu.
Það hefur lengi verið nauðsynlegt að
afla sér verðmæta sem mölur og ryð fá
ekki grandað og samkvæmt því hvorki
fyrnast heldur né fúna. Hrönn Jónsdóttir á
Djúpavogi kvað um mann sem láðist að
hafa þetta í huga:
Kyntröllib Þórarinn Þorn
í þarabing vestur vib Horn
varb fabir ab barni
bjáninn sá arni
því verjan var fúin og forn.
Sigurður Hansen velti einnig fyrir sér
afdrifum hinna veraldlegu verðmæta:
Viskíflaskan virbist mér
veraldlegur aubur,
ioks þá henni lokib er
liggur mabur daubur.
Pétur Pétursson læknir mun hafa ort
þessa ágætu lofvísu um Sverri Her-
mannssson en ekki þarf nema eina kommu
til að vísan breyti nokkuð merkingu sinni:
Fróma dóma fellir víst,
forbast hjóm og blabur,
róm í dróma reyrir síst
rakinn sómamabur.
Pétur varð sem kunnugt er þekktur af
orðahnippingum sínum við vaxtarræktar-
menn og áhrifum meintrar steranotkunar
á undirvöxt þeirra og kynhvöt. Því miður
man ég ekld í svipinn hver er höfundur
eftirfarandi vísu. Gæti sem best verið Pét-
ur sjálfur, en í henni merkir orðið sterking
að verða sterkur af sterum:
Hvab má duga svíri sver
og sollin lceri af sterkingu
ef áttu lítib undir þér
í orbsins fyllstu merkingu.
Annar læknir sem að minnsta kostí um
tíma var á Blönduósi, Hannes Finnboga-
son hafði um skeið verið læknir á Húsavík
og fékk þessa jólakveðju ffá Agli Jónassyni:
Eiginlega ekki telst
ab ég neinum hrósi
þó ég vildi vera helst
veikur á Blönduósi
Karl Friðriksson brúarsmiður mun vera
höfundur eftirfarandi vísu og látum við
það verða lokaorðin að sinni:
Oft mitt þynnir amaský
og ab hlynnir vonum
Ab lifa og finna unun í
endurminningonum
Meb þökk fyrir lesturinn
Dagbjartur Dagbjartsson
Refsstöbum 320 Reykholt
S 435 1367 dd@hvippinn.is