Skessuhorn - 11.08.2004, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 2004
Axcl Gústafsson:
Agœti viðskiptavinur,
bestu þakkir!
Eins og margir af mín-
I um viðskiptavinum hafa
eflaust orðið varir við hjá
mér undanfarin misseri,
þá hef ég ekki alltaf getað
sinnt þeim vörum nógu
vel sem verslunin hefur í
mörg ár og áratugi reynt
að þjóna sínum viðskipta-
vinum með. Það er margt
sem hjálpast þar að.
Margt hefur breyst á und-
! anförnum árum. Sam-
I göngur hafa breyst og
styttra er að skreppa í bæ-
| inn eins og menn segja
oft. Margt fólk fer auk
þess daglega suður í vinnu
og skóla.
Ég er oft spurður..
Eftir að tvær stórar bygg-
| ingavöruverslanir komu á
Akranes fyrir um það bil
einu ári, hafa margir af mín-
um traustu og góðu við-
skiptavinum spurt mig
hvernig reksturinn gangi.
Og margir hafa sagt það við
mig og sýnt það í verki að
þeir vilja halda tryggð við
verslun mína og önnur inn-
anbæj arfyrirtæki.
Langar mig til að segja frá
tveimur nýlegum tilfellum
þar sem íbúar hafa sýnt
verslun minni tryggð:
Það komu til mín hjón um
I daginn. Þau búa hér á Akra-
nesi, en gerðu sér ferð til
Reykjavíkur að skoða reið-
hjól. Þau fengu bækling í
versluninni sem þau fóru í,
völdu sér hjól og komu síð-
an aftur upp á Akranes.
Komu til mín niður í búð og
báðu mig að panta hjólið
fyrir sig. - Þau gátu verslað í
Reykjavík, en gerðu það
I ekki.
Kona nokkur hringdi í
I mig um daginn úr Reykja-
| vík. Hún býr hér á Akranesi
en vinnur í Reykjavík. Hún
sagði við mig: Eg er stödd í
Reykjavík, var að skoða vör-
ur sem ég hef áhuga á. Viltu
vera svo góður að panta
þetta fyrir mig, ég sæki það
til þín á morgun. - Hún gat
verslað í Reykjavík, en gerði
| það ekki.
Þetta eru aðeins tvö dæmi
| af mörgum sem ég hef upp-
lifað í minni verslun. Sem
betur fer er margt fólk sem
hugsar svona og met ég það
að sjálfsögðu mikils.
Það hefur stundum komið
I í huga minn hvort eitthvað
þurfi að laga eða breyta í
verslun minni. Er vöruverð
of hátt? Er verslunin óaðl-
aðandi? Er verslunin á
slæmum stað? Er of oft
vöruskortur? Þarf að opna
verslunina meira inn? Er
þetta út af bílastæðaleysi?
Eða er eitthvað annað? Mér
þætti vænt um það ef þú,
lesandi góður, segðir mér
þína skoðun.
Ekki misskilja
orð mín!
Það hefur ekki farið fram-
hjá neinum öll sú þróun sem
hefur orðið hér undanfarin
ár í verslunarrekstri á Akra-
nesi. Eg hef stundum leyft
mér að rifja upp þær versl-
anir sem hafa hætt hér í
bænum á fáum árum. Mér
finnst það ekki eðlileg þróun
í bæjarfélagi eins og okkar,
þar sem íbúar eru hátt í
6000, að u.þ.b. 15 verslanir
hafi hætt síðan göngin opn-
uðu. Eg hef leyft mér að
spyrja sem svo; miðað við
hvað margar verslanir hafa
hætt hér á Akranesi á stutt-
um tíma, hvaða verslun
hættir næst? Verður það Ax-
elsbúð?
Þessar hugleiðingar mínar
eru ekki á jákvæðum nót-
um, ég veit það vel sjálfur.
En hvað veldur þessu?
Mín reynsla er sú að eftir
að göngin komu, þá hefur
daglegur rekstur þyngst.
Þótt göngin hafi verið bylt-
ing, þá hafa þau einnig orð-
ið Akranesbæ í óhag að
sumu leyti.
Mér líður ekki vel að
þurfa að segja nei við kúnn-
ann minn. Mér hefur verið
kennt það, að verslunar-
rekstur þarf ákveðinn veltu-
hraða til að allt gangi eðli-
lega. Eins og gengur með
verslunarrekstur, þá hreyfast
vörur mishratt.
Þar sem verslun mín er á
nokkuð breiðu sviði, þá hef-
ur verið þungt að liggja með
sumar vörutegundir. En
mitt hugarfar hefur alltaf
verið það, að þeim vörum
sem við reynum að sinna,
höfum við viljað sinna vel.
En því miður hef ég ekki
alltaf getað staðið mig í
stykkinu undanfarið, en
reynt eins og ég get að
bjarga vörum um hæl.
Eg þakka viðskiptavinum
mínum fyrir þolinmæðina
og tryggðina.
Er þetta til
fyrirmyndar?
Fyrir um það bil einu ári
síðan fékk ég bréf í hend-
urnar. - Bréf sem sent var af
Akranesbæ til stjórnenda og
sviðsstjóra bæjarins, dagsett
12. maí 2003. Ég hef leyft
mörgum að sjá bréfið, og
margir hafa orðið undrandi
og hvatt mig til að skrifa
grein í Skessuhornið. Og lét
ég verða af því.
Ég veit að með þessum
orðum mínum verð ég ekki
vinsæll í augum bæjarstjórn-
ar.
En í þessu bréfi stakk það
mig mest, að það er aðeins
talað um eitt fyrirtæki þar
sem starfsmenn bæjarins
eru hvattir til að gera inn-
kaup - en ekkert innanbæj-
arfyrirtæki, takið eftir því.
Ég man það, að fyrir
nokkrum árum lét bæjar-
stjórnin hvatningu í Póstinn
og hvatti þar fólk til að
versla í heimabyggð, í inn-
anbæjar fyrirtækjum. - Það
var til fyrirmyndar.
Ég fékk það staðfest að
bæjarritari útbjó þetta bréf á
eigin spítur, talaði ekki við
b^jarstjórn. Er það eðli-
legt?
Ég vill taka það fram að
Akranesbær verslar við mig,
og ég kann að sjálfsögðu að
meta það.
I mínum huga skiptir það
ekki máli á hvaða sviði við-
skiptin eru. Ef við breytum
þessu úr verslun í iðnað og
ef fólk er hvatt til að fá iðn-
aðarmenn úr Reykjavík,
hvað myndu iðnaðarmenn á
Akranesi þá segja? Væru
þeir sáttir?
Og er það þá eðlileg
stefna að hvetja yfirmenn
hverrar deildar hjá Akranes-
bæ að leita í utanbæjarfyrir-
tæki? Er það til fyrirmynd-
ar?
Ég bið um svar frá bæjar-
stjórn við þessu.
Ágætu
viðskiptavinir!
Bestu þakkir fyrir þá
tryggð sem þið hafið sýnt
verslun minni. Osk mín er
sú að verslun mín eigi eftir
að þjóna ykkur um ókomin
Axel í Axelsbúð.
Kleppjárnsreykjaskóli
320 Reykholt - Borgarfjarðarsveit
http ://kleppjarnsreykir. ismennt. is/
Laus störf
vid rœstingar
Upplýsingar veitir skólastjóri
Guðlaugur Oskarsson í símum
435 1171 - 861 5971 -435 1170
Skriflegar umsóknir berist
Kleppjárnsreykjaskóla sem fyrst
www.skessuhom.is
REYKHÓLAHREPPUR
0 * Hjúkrunarheimilið Barmahlíð og leikskólinn Hólabær, Reykhólum Vantar sjúkraliða eða starfsmann í umönnun í Barmahlíð. Vantar einnig leikskólakennara eða almennan starfsmann á Hólabæ. Nánari upplýsingar á skrifstofu Reykhólahrepps s. 434 7880 og hjá hjúkrunarforstjóra Barmahlíðar s. 434 7817
f \
INGI TRYGG VASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
FASTEIGN í B0RGARNESI
KVELDÚLFSGATA 28, Borgarnesi
íbúð á 3. hæð í
fjölbýlishúsi, 74,8 ferm.
Hol, stofa og tvö herb.
dúklagt. Eldhús með
dúkflísum, eldri
viðarinnr. Baðherb.
dúklagt. Sameiginl.
þvottahús og hjólageymsla og sérgeymsla í kjallara.
Verð: 7.500.000
Hef til sölu greiðslumark í sauðfé 217 œrgildi.
Tilboð óskast.
\ Allar nánari upplýsingar á skrifstofu.
| Ingi Tryggvason hdl. löggiltur fasteigna- og skipasali
| Borgarbraut 61, 310 Borgarnes,
s s. 4371700, 860 2181, fax 4371017,
netfang: lit@isholf.is veffang: simnet.is/lit
V
J