Skessuhorn - 11.08.2004, Blaðsíða 16
«p^
POSTURINN
allur pakkinn
Háhraða internet til sjávar og sveita
Þráðlausar netlausnir fyrir heimili og fyrirtæki
^MöX '■l^TÖLVUBÓNDINN
Sími 544 4454 a0Á ÁOan
SÍM» 884 4980
www.spm.is
Nýtt hátæknifjós fyrir bændur og búalið
Nýtt kennslu- og rannsókna-
fjós við Landbúnaðarháskólann
á Hvanneyri var formlega tekið
í notkun síðastliðinn föstudag
við hátíðlega athöfn að við-
stöddum landbúnaðarráðherra
og fjölda annarra gesta. Nýja
fjósið leysir af hólmi kennslu-
fjós sem verið hefur í notkun frá
árinu 1929 og var eitt af elstu
fjósum landsins sem notað var
til mjólkurframleiðslu.
Með nýja fjósinu verður mik-
il breyting á kennslu- og rann-
sóknaaðstöðu í nautgriparækt í
landinu. Boðið er upp á nútíma-
lega aðstöðu fýrir gripi og fólk;
kýr og uppeldi verður á legu-
básum, en kálfar í hálmstíum
með sjálfvirkri mjólkurfóðrun.
Kýrnar verða mjólkaðar í 2x6
mjaltabás, sem um leið mun
þjóna sem kennsluaðstaða fyrir
bændaefni og endurmenntunar-
aðstaða fyrir starfandi bændur.
Fjósið verður rúmgott og bjart
og sérstaklega hefur verið hug-
að að móttöku hópa. Loftræst-
ing verður náttúruleg, þannig
að hvinur frá viftum mun ekki
trufla kennslu eða leiðsögn.
Fjósið hefur verið lengi í
undirbúningi eða allt frá árinu
1999 og framkvæmdir hófust
síðan haustið 2002. Aðalhönn-
uður fjóssins er Magnús Sig-
steinsson hjá Byggingarþjón-
ustu BI, en hann hefur notið
ráðgjafar innlendra og erlendra
sérfræðinga um sérstök atriði.
Verktaki var Sólfell ehf í Borg-
arnesi. Formaður byggingar-
nefndar er Torfi Jóhannesson
lektor við Landbúnaðarháskól-
ann.
Meðal þeirra sem tóku til
máls við opnun nýja fjóssins á
föstudag var Magnús B Jónsson
rektor Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri. Magnús sagði m.a. í
sinni ræðu: „Þrátt fyrir öryggi í
starfsumhverfi krefst nautgripa-
ræktin sífellt aukinnar árverkni
og vandvirkni. Kröfurnar til
stoðþjónustunnar verða sífellt
ákveðnari og því mikilvægt að
til hennar sé vandað í hvívetna.
Með tilkomu þessarar nýju
kennslu- og rannsóknarsað-
stöðu eflist stoðþjónustan veru-
lega og mun geta veitt betri
þjónustu bæði á sviði kennslu-
leiðbeininga og rannsókna".
Ennfremur sagði rektor. „Það
er mesta gleðiefni þessa dags að
með þessari byggingu er unnt
að bæta þá þjónustu sem naut-
griparæktin þarf svo nauðsyn-
Guðni Ágústsson landbúnaðarráöherra handlék skærin af mýkt og fimi á fóðurganginum í nýja Hvanneyr-
arfjósinu.
lega á að halda til þess að sú
uppbygging sem þar á sér stað
nú nýtist fullkomlega og færi
þeim sem standa fyrir henni
viðunandi afrakstur í framtíð-
inni. „
Athöfnin fór fram í rúmgóðri
fóðurgeymslu fjóssins, sem
þjónaði hlutverki samkomuhúss
með mikilli prýði en að loknum
ávörpum heimamanna og gesta
greip Guðni Agústsson, land-
búnaðarráðherra skærin og
klippti á borða sem strengdur
var fýrir fóðurgang nýja fjóss-
ins. Þar biðu síðan veitingar og
ýmiss fróðleikur um fjós óg kýr
á Hvanneyri að fornu að nýju
sem ritaður var á rúllubagga.
Meðal gesta í nýja Hvanneyr-
arfjósinu voru bændur og búalið
héðan og þaðan að af landinu
og ekki var annað að sjá og
heyra en að byggingin og inn-
réttingar hennar vektu verð-
skuldaða athygli allra við-
staddra.
Væntanlegir íbúar fjóssins
voru hinsvegar fjarstaddir á
þessum hátíðisdegi en það var
ekki fýrr en í dag (miðvikudag)
sem Hvanneyrarkýrnar fengu
að reka granirnar þar inn fýrir
dyr og ekki þarf að efa að þeim
hefur litist vel á nýju híbýlin.
GE
Félögum í Námsmannalínu KB banka gefst kostur á allt aö
300.000 kr. tölvukaupaláni til allt aö þriggja ára á mjög
hagstæðum kjörum - fartölvutaska fylgir hverju láni.
Hægt er aö sækja um lániö á namsmannalinan.is.
Sérstakt tilboö til félaga í Námsmannalínunni!
Þeir sem kaupa Dell fartölvu hjá EJS fá geislamús
og 128 Mb minnislykil í kaupbæti.
KB BANKI