Skessuhorn


Skessuhorn - 11.08.2004, Qupperneq 10

Skessuhorn - 11.08.2004, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 11. AGUST 2004 joliSSUnu^ Gerir ráð Nýtt deiliskipulag kirkjugarðs og byggðasafhs að Görðum á Akranesi er nú í lokaferli. Gerir tillagan m.a. ráð fyrir að núver- andi aðkoma að kirkjugarðinum frá Garðagrund verði áfram á þeim stað sem hún er í dag og að stækkun garðsins verði áffarn tíl vesturs. Gert verður ráð fyrir byggingu kirkju og safnarðar- heimilis á lóð milli kirkjugarðs og opins svæðis til sérstakra nota. Aðkoma að Safitasvæðinu færist norður fyrir svæðið og bílastæði færð austur fyrir safna- hús tíl að takmarka. bílaumferð innan um gangandi umferð. Samnýting bílastæða mun vera möguleg við stærri athafnir, útí- hátíðir o.fl. Þar sem skipulagstillagan ger- ir ráð fyrir stækkun bæði kirkju- garðs og safnasvæðis hafa núver- andi lóðamörk þessara svæða verið endurskoðuð og er sýnd afmörkun nýrra lóðamarka á uppdrættinum. Einnig er af- mörkuð ný lóð fyrir kirkju. Hluti af skipulagssvæðinu er skilgreint sem „opið svæði til sérstakra nota“ og gæti í framtíðinni nýtst t.d. sem stækkun á safnasvæði. Ný kirkja og safitiaðarheimili Samkvæmt tillögunum er af- mörkuð ný 6.333 m2 lóð fyrir kirkju og er byggingarreitur hennar um 2200 m2. Gert er Byggingarralturfyrlrnýlan safnaakila og tonglbygglngu fynhuguð atmtski, bryggjuavæðl meitur fyrlr aéfíutt lygglngti -, ' , "lur Svmðifynriðflutti kútter: SamBlglnlag bllasteoðl (yrlr, i klrkju; kirkjugató og byggðasafn I kirkjugarðlnn 80 almann bllaatmðl 3 bl/atteaðl fyrir fatlaða 2 bllaatmói ryrir rútur Etstí hiuti kirkjugarðaiha 1000m* j .Ný aðalaðkoma og aáluhllð Kirkjugarður Nýtt deiliskipulag að Görðum: fyrir allt að 500 manna kirkju , Byggðasafr “ (32.4000?) Kirkja og safnaðarheimili CÖ~333n?) byggingarraitur fyrlr kirkju og safnaðamalmlll 103.340m2 ir^ Samkvæmt nýju deiliskipulagi fyrir svæðið umhverfis Garða á Akranesi er gert ráð fyrir að myndarleg kirkja rúmist á svæðinu í næsta nágrenni við kirkjugarð og Byggðasafnið. ráð fyrir byggingu sem verður u.þ.b. 800-1000 m2 að grunn- fleti. Byggingin skal innihalda kirkju, safnaðarheimili með til- heyrandi starfsemi, skrifstofur, salerni og fatahengi, geymslur, tæknirými o.fl. Gera þarf ráð fyrir að við stórar athafnir geti rúmast allt að 500 manns í sæti og er þá reiknað með að hægt sé að opna á milli kirkjuskips og safnaðarheimilis. Einnig þarf byggingin að geta rúmað alla nauðsynlega starfsemi tengda kirkjugarðinum og skal hún staðsett næst garðinum. I deiliskipulagsdrögunum er sagt mikilvægt að byggingar séu þannig staðsettar að aðkoma sé góð og tengsl við kirkjugarðinn eðlileg en þó þannig að skýr að- skilnaður sé á milli kirkju og kirkjugarðs. Byggingin skal vera aðlaðandi og björt og með út- sýni til allra átta. Byggingin má vera að hluta á tveim hæðum. MM Vertu kjurr! Kona var að halda framhjá manni sínum og var í rúrninu með elskhuganum. Allt í einu heyra þau sér til mikiliar skelf- ingar að eiginmaðurinn sting- ur lyklinum í skránna á úti- dyrahurðinni. Konan reynir að finna ein- hvað ráð í flýti. Hún tekur fram flösku af nuddolíu og púður. Hún hellir olíunni yfir elsk- hugann og hellir svo púðrinu yfir hann þannig að hann lítur út eins og stytta. „Ekki hreyfa þig fyrr en ég segi að þú megir það,“ segir hún og klæðir sig í flýti. „Stattu bara þarna grafkyrr." Maðurinn kemur inn í svefiiherbergið og spyr: „Elsk- an hvað er nú þetta?“ „Þetta æji þetta er bara stytta,“ segir konan kærulaus. „Gunna ogjón fengu sér eina fyrir stuttu þannig að ég ákvað að redda mér einni líka, þetta er svo smart.“ Ekkert er rætt meira um „styttuna“, ekki einu sinni yfir kvöldmatnum. En klukkan 3 um nóttina læðist maðurinn ffam úr rúminu, fer frarn í eld- hús, nær í samloku og mjólkur- glas og réttir styttunni. „Gjörðu svo vel,“ segir hann. „Eg stóð eins og hálfviti hjá Jóni og Gunnu í heila tvo daga og engirtn bauð mér vott né þurrt.“ f 1. TJetðihozníð Presturinn veiddi fyrsta laxinn Veiðimaður rennir fyrir fisk í Laugardalsá í í ísafjarðardjúpi en þar hafa veiðst 77 lax- ar. Hvannadaisá, næsta á við Langadalsá hefur gefið 15 iaxa. Skessuhorn/Gunnar Bender „Það var einn lax í Foss- inum efst og ég veiddi hann, annars var þetta mjög ró- legt í Gleránni, eiginlega ekki neitt,“ sagði séra Gunn- laugur Stefáns- son í Heydal í Breiðdalsvík í viðtali við Skessuhorn, en hann veiddi fyrsta lax sum- arsins í Glerá í Dölum. Fisk- urinn var 6 Allt í veiðiferðina Hyman, bensínstöð sími 430-5565 _____ , ^MOTR •' alla fbwnMdaga _ _ rf-v Gisti-oa veitinmstaöur Cj isti- og veitingastaður Sími 437 2345 www.motelvenus.net Alltafmeð bestu pizzatilboðin..! pund og tók maðk. „Veiðin gengur feiknavel í Breiðdalsá þessa dagana og í gærdag veiddust 18 laxar og hefur veiðin verið jöfn og fín,“ sagði Gunnlaugur ennfremur. Miðá í Dölum hefur gefið 14 laxa og helling af bleikju en laxinn er mest á einum stað í ánni og erfitt að fá hann til að taka agn veiðimanna. Hörðudalsá í Dölum hefur verið róleg og lítið veiðst enn- þá, veiðimenn sem voru þar við veiðar fyrir fáum dögum sáum lítið af fiski í henni. Laxá í Dölum er að skríða yfir 300 laxa og síðasta vika gaf 150 laxa. „Það var ótrúlega mikið af fiski neðst í Laxá í Dölum en hann kemur ekki upp í ána fyrr en rignir verulega," sagði veiðimaður sem var að reyna í Laxá, en það gekk ró- lega. Annar veiðimaður sagði að hundruðir laxa væru við ósinn, en færu ennþá hvergi. Veiðin hefur gengið vel í Hítará og veiði- menn sem voru þar fyr- ir fáum dögum úr ár- Umsjón: Gnnnar Bender nefnd Stangaveiðifélags Reykjavíkur veiddu 53 laxa á þremur dögum og sögðu mik- ið vera af fiski í henni. Voru að mynda við Straumfj arðará Fyrir nokkrum dögum voru miklar myndatökur við Straumfjarðará, en þar var Eggert Skúlason að taka upp fleiri veiðiþætti um Sporða- köst og meðal þeirra sem var að veiða þar var Rögnvaldur Guðmundsson. „Þetta gekk vel, ég setti í eina 27 laxa og þetta var myndað í bak og fyr- ir,“ sagði Rögnvaldur í samtali við Skessuhorn. Tökur tókust vel og verður spennandi að sjá þær þegar afraksturinn verður sýndur seinna á þessu ári. Allavega hellingur af fiski og fjör við Straumfjarðará. En veiðin gengur vel víða, fiskurinn er fyrir hendi og tekur hjá veiðimönnum þrátt fyrir lítið vatn. Þverá hefur gefið 1160 laxa, Langá á Mýr- um og Norðurá eru báðar komnar yfir 1100 laxa og síð- an er Grímsá með 666 laxa.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.