Skessuhorn


Skessuhorn - 06.10.2004, Side 1

Skessuhorn - 06.10.2004, Side 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 39. tbl. 7. árg. 6. október 2004 Kr. 300 í lausasölu Nýtt og glæsilegt fiýstiskip til HB- Granda Stærsta veiðisldp flotans Síðastliðinn föstudag var undirritaður samningur um kaup HB Granda á skipi til veiða og vinnslu á uppsjávar- fiski. Samningurinn er með fyrirvara uin að skipið stand- ist endanlega úttekt sem ver- ið er að framkvæma þessa dagana. Skipið er smíðað á Spáni 1994 og er 105 metra langt og 20 metra breitt og verður þannig stærsta veiðiskip flot- ans. Það hefur verið skráð í Kóreu og m.a. stundað Alaskaufsaveiðar við Rúss- land. Frystiafköst þess verða um 200 tonn á sólarhring. Um borð er fiskimjölsverk- smiðja með afköst upp á 150 tonn á sólarhring af hráefni. Skipið er væntanlegt til landsins í byrjun næsta árs. Tilgangur félagsins með þessuin kaupum er að geta í ríkara mæli en verið hefur unnið uppsjávarfisk til manneldis, sérstaklega síld, loðnu og kolmunna, sem hefur að mestu verið unninn í fiskimjöl og lýsi hjá fyrir- tækinu. Þannig mun fyrir- tækið styrkja uppsjávar- vinnslu þess til muna frá því sent verið hefur. Kaupverð skipsins er rúmlega 14 millj- ónir USD, en að auki þarf að kosta til verulegra breytinga á vinnslubúnaði skipsins. MM Haustlægðirnar hellast nú yfir hver á fætur annarri. Gróðurinn lætur því sífellt meira á sjá og geta litbrigði haustsins verið margbreytileg á þessum tíma. Sverrir Karlsson í Grundarfirði tók þessa mynd um helgina. Ófremdarástand í fjarskiptamálum björgunaraðila Tetra kerfið ónothæft norðan Hvalfjarðar Sveitarfélögum fækkar og þau stækka I tillögum nefndar félags- málaráðherra um sameiningu sveitarfélaga er lagt til að sveitarfélögum á Vesturlandi fækki um 12, verði 5 en eru í dag 17. A miðopnu blaðsins í dag eru tillögur þessar kynnt- ar ítarlega auk þess sem við- brögð nokkurra sveitar- stjórnenda við tillögunum em könnuð. Sjd bls. 8-10. Húsasmiðjan í Borgames Gömlu kaupfélagsvígjun- um fækkar óðfluga. I liðinni viku seldi Kaupfélag Borg- firðinga rekstur og eignir KB Byggingavara til Húsasmiðj- unnar sem opnar verslun sína við Egilsholt síðar í þessum mánuði. Sjcí bls. 6. Sjúkraflutningamenn á Akranesi við sjúkrabflana. Gísli Björnsson lengst til vinstri. í bréfi sem deildarstjóri sjúkraflutninga á SHA hefur sent 16 ábyrgðar- og hags- munaaðilum fjarskipta- og ör- yggismála í landinu tilkynnir hann að sjúkraflutningaþjón- ustan á Akranesi hafi hætt notk- un Tetra fjarskiptabúnaðarins þar sem íjarskiptaskilyrði hafa stórversnað á svæðinu norðan Hvalfjarðar að undanförnu. I bréfinu segir að þrátt fyrir að góð fyrirheit hafi verið gefin af hálfu Tetra Island um að komið yrði upp sendum á Akranesi og nágrenni, þá hafi engar efndir orðið. Nú sé svo komið að ógjörningur sé að koma boðum á milli aðila sem vinna með þetta fjarskiptasamband, t.d. sé ekki hægt að ná til Neyðarlín- unnar í gegnum Tetra. í bréfi sínu segir Gísli Björnsson, deildarstjóri sjúkraflutninga á SHA að björgunaraðilar norðan Hvalfjarðar séu nánast fjar- skiptasambandslausir nema með GSM eða NMT símum. Það sé vitaskuld allsendis ófull- nægjandi miðlunartæki upplýs- inga á ögurstundum og nái að- eins til tveggja aðila í senn. Hann segir sjúkraflutninga- menn uggandi vegna þessa á- stands þar sem svæðið sé stórt með fjölmennum vinnustöðum á Grundartanga auk þess sem Hvalfjarðargöngin séu sérstakt áhættusvæði. Þessir staðir séu sambandslausir við fjarskipta- kerfi önnur en símtæki eins og fyrr er getið. Gísli segir enn- fremur í bréfi sínu að ef ekki fá- ist viðunandi lausn með Tetra kerfinu hið fyrsta, þá verði ekki um annað að ræða en hefja vinnu við upp- setningu á öðr- um fjarskipta- kerfum fyrir björgunaraðila, s.s. VHF með endurvarpa á Akrafjalli. I niður- lagsorðum bréfritara segir að að tilgangurinn með bréfinu sé að vekja athygli allra þeirra aðila sem koma að öryggis- og björg- unarmálum á hinu alvarlega á- standi í fjarskiptamálum á svæð- inu. Hann segir að það sé ljóst öllum þeim sem að þessum málum komi hversu afdrifaríkt það geti oðrið að búa við ófull- nægjandi fjarskipti á örlaga- stundu. MM/af vef www.sha.is Góð kaup Lambahakk -pakkaö Góð Kaup! 447 kg. Verð áður: 639 kg. Kjúklingavængir Góð Kaup! 209 kg. Verð áður: 299 kg. Lambahamborgarhr 947 kg. 1353 kg. EmmEss Skafís 1 Itr 2 fyrir 1 479,-stk. Lambanaggar 400 gr 343,- 491,- Camp.Farfalle 500 gr 79,- 109,- Lambasneiðar 400 gr 546,- 382,- Camp.Fuslli 500 gr 79,- 95,- Kjúklingaleggir 419 kg. 599 kg. Camp.Spaghetti 500 gr 69,- 85,- ^ Kjúklingalæri 419 kg. 599 kg. Camp.Tagliatelle 500 gr 79,- 95,- 4 k a a r " Tilboðin gildafrá 7. október til og með 11. október eða meðan birgðir endast. Verið velkomin! Borgarnesi

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.