Skessuhorn - 06.10.2004, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTOBER 2004
ú&CssunuK.
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borgornesi
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi
Sími: 433 5500
Fax: 433 5501
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf
Framkv.stj. og blm. Magnús Magnússon 894 8998
Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 899 4098
Augl. og dreifing: Iris Arthúrsdóttir 696 7139
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir 437 1677
Prentun: Prentmet ehf.
433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
mognus@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
iris@skessuhorn.is
gudrun@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 ú
þriðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega.
Skilófrestur smóauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum.
Blaðið er gefið út i 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitt með
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr.
433 5500
Sameining
„Sjálfstæði er betra en kjöt“, mælti sauðfjárbóndi allra tíma,
Bjartur í Sumarhúsum, aðalpersónan í hinni ódauðlegu skáld-
sögu Halldórs Laxness, Sjálfstætt fólk.
Lengi vel var ég sammála Bjarti og vitnaði gjarnan til fyrr-
greindra orða hans þegar sameiningu sveitarfélaga bar á
góma. Eg hafði á sínum tíma öngvan áhuga á að mitt litla og
laglega sveitarfélg týndist í einhverri sameinaðri stjórnsýslu-
hít. Eg vildi hafa áffarn minn oddvita, þann sama og verið
hafði við völd mest alla síðustu öld og stýrt sveitarfélaginu af
röggsemi og án þess að hafa í kringum sig hjörð ritara, ráð-
gjafa eða hverskonar spekúlanta.
Þrátt fyrir að ég hafi undantekningalaust og án nokkurs
vafa rétt fýrir mér í hvert eitt sinn þá áskil ég mér rétt til að
skipta um skoðun. Tímarnir breytast og mennirnir með og
forsendur ekki síður.
Hér áður fýrr voru helstu verkefni hreppsnefhda í hinum
dreifðu byggðum þau að leggja á fjallskil og innheimta lög-
boðin gjöld af þegnum sveitarfélagsins. Síðan þá hefur ríkinu
tekist að koma yfir á sveitarfélögin hinum ýmsu verkefnum
sem það hefur sjálft viljað losna við. Þá hafa blýantsnagarar í
Brussel, þeirri annars eflaust ágætu borg, verið iðnir við að
dengja yfir Evrópubúa hinum fáránlegusm reglugerðum sem
taka þarf tillit til og reglan er sú að mér skilst, að ein máls-
grein kallar að meðaltali á einn starfsmann hjá hinu opinbera.
Aukinheldur snýst daglegt líf æði margra Islendinga um mun
fleira en bara fjallskil, ítölur og forðagæslu.
Hrepparígur er vissulega gömul og góð íþrótt og full á-
stæða til að halda honum við enda ekki ástæða til að leggja
hann af þótt sveitarfélögum fækki. Það verður þá kannski
meira svæðarígur því þótt útlínur sveitarfélaga brejuist á ein-
hverju stjórnsýslukorti þá verður landslagið óbreytt. Ekki er
gert ráð fýrir að færa fjöll milli fjarða eða breyta árfarvegum.
Dalir og firðir munu áffam heita sömu nöfhum. Það er held-
ur ekki sjálfgefið að sjálfstæðinu sé fórnað með sameiningu
sveitarfélaga. Einstök svæði, dalskorur, víkur og vogar geta
haldið sínu sjálfsæði að hluta til í það minnsta með því að taka
virkan þátt í að móta sitt samfélag. Fyrir þá sem engan áhuga
hafa á lífinu í kringum sig skiptir varla máli hvort þeir eiga
heima í 50 eða 500 þúsund manna sveitarfélagi.
Gísli Einarson, sjálfstæður að miklu leyti.
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Kosið um sameiningu 20. nóvember sunnan Skarðsheiðar
Síðasta tækifæri til að ráða
ferðinni sjálf
segir Hjördís Stefánsdóttir formaður samstarfsnefndarinnar
Samstarfsnefhd um samein-
ingu sveitarfélaga sunnan
Skarðsheiðar sendi í liðinni
viku frá sér tilkynningu vegna
fýrirhugaðrar atkvæðagreiðslu
um sameiningu fjögurra sveit-
arfélaga sunnan Skarðsheiðar.
Tilkynningin er svohljóðandi:
„Stórum áfanga hefur nú ver-
ið náð í átt að sameiningu
hreppanna sunnan Skarðsheið-
ar. A fundi samstarfsnefndar
sveitarfélaganna, í félagsheimil-
inu Miðgarði í gær, var sam-
þykkt að gengið yrði til al-
mennrar atkvæðagreiðslu um
sameiningu Hvalfjarðar-
strandahrepps, Innri-Akranes-
hrepps, Leirár- og Melahrepps
og Skilmannahrepps, laugar-
daginn 20. nóvember næstkom-
andi.
Þetta verður í fýrsta sinn sem
íbúum þessara sveitarfélaga
gefst kostur á að kjósa um sam-
einingu, en sameiningarviðræð-
ur og sameiningartilraunir hafa
verið uppi á borðinu í u.þ.b. 15
ár. Síðustu sameiningarviðræð-
ur milli áðurnefndra sveitarfé-
laga áttu sér stað árið 2003, en
þá slitnaði upp úr án þess að al-
menningur fengi að greiða at-
kvæði. Núverandi samstarfs-
nefnd tók til starfa í byrjun
þessa árs og hefur unnið að
miklum krafti að sameiningar-
málum undnanfarnar vikur með
þeim árangri sem nú er kynnt-
ur.
Verði sameining samþykkt í
nóvember verður til nýtt og öfl-
ugt sveitarfélag sunnan Skarðs-
heiðar, með samtals 560 íbúa og
stöndugt atvinnulíf sem m.a.
byggir á tveimur stóriðjuverum
á og við Grundartanga. Að mati
Samstarfsnefhdar er það margt
sem styður sameiningu þessara
fjögurra sveitarfélaga, s.s. land-
fræðilegar aðstæður auk mikilla
samskipta í gegnum tíðina og
samstarf á fjölmörgum sviðum.
Sameinað sveitarfélag hefur
aukið traust út á við og það
verður sterkara afl þegar um
ýmis hagsmunamál er að ræða.
Markmiðið með sameiningu
er að skapa öflugt sveitarfélag
með skilvirka og góða stjórn-
sýslu, sterka fjárhagslega stöðu,
traust atvinnulíf, öfluga félags-
þjónustu og umhverfi sem mun
laða að fólk til búsetu og stuðla
að uppbyggingu samfélagsins.
Sameinað sveitarfélag er mun
betur í stakk búið til þess að
takast á við lögbundnar skyldur
sveitarfélaga og brýnustu verk-
efnin sem blasa við íbúum
sunnan Skarðsheiðar, t.d. að
leysa óvissu um áframhaldandi
rekstur grunnskóla."
Formaður Samstarfsnefhdar-
innar er Hjördís Stefánsdóttir
en með henni í nefhdinni eru
Hallfreður Vilhjálmsson, Asa
Helgadóttir, Agúst Hjálmars-
son, Marteinn Njálsson, Har-
aldur Magnússon, Sigurður
Sverrir Jónsson og Björn Jó-
hannesson.
Hjördís sagði í samtali við
Skessuhorn að framundan hjá
samstarfsnefndinni væri að
kynna málið ítarlega fýrir íbú-
um. „Fyrirhugað er að halda
kynningarfundi í öllum sveitar-
félögunum fjórum og verða
þeir væntanlega seinnipartinn í
október og fýrri hluta nóvem-
ber. Einnig verður farið í kynn-
ingarstarfsemi og m.a. gefinn út
bæklingur sem dreift verður inn
á öll heimili í sveitarfélögun-
um.“ Hjördís segir einnig að
mikill þrýstingur sé frá stjórn-
völdum um að smærri sveitarfé-
lög hafi frumkvæði að samein-
ingarmálum. „Ég tel þetta vera
síðasta tækifæri sveitarfélag-
anna hér sunnan Skarðsheiðar
að hafa eigið frumkvæði í þessu
máli og stjórna þannig atburða-
rásinni í sameiningarferlinu,“
sagði Hjördís að lokum.
MM
Séra Karl
kveður
Sr Karl V Matthíasson
fýrrum sóknarprestur í
Grundarfirði kvaddi söfnuð
sinn í rnessu í kirkjunni,
sunnudaginn 28. september
sl. Messaði hann þar ásamt
séra Elínborgu Sturludóttir
sem skipuð hefur verið nýr
sóknarprestur.
Ljósm. Sverrir.
Leiðrétt-
ingar
Fleiri eigendur
I síðasta blaði var sagt að
eigendur nýja veiðiskipsins;
Þorvarður Lárusson SH í
Grundarfirði væru bræðurn-
ir Sigurður og Jóhannes
Þorvarðarsynir. Þeim til við-
bótar eiga skipið þeir Guð-
mundur Reynisson og Krist-
ófer Kristinsson og leiðrétt-
ist það hér ineð.
Grænt verður rautt
I frétt unt nýja veglykla í
Hvalfjarðargöngin var m.a.
haft eftir Marinó Tryggva-
syni afgreiðslustjóra að fólk
ætti að hafa samband við af-
greiðslu ganganna ef ekki
kviknaði „rautt" ljós þegar
ekið væri framhjá gjaldskýl-
inu. Hið rétta átti að sjálf-
sögðu að vera ef ekki kvikn-
aði „grænt“ ljós. Enn og aft-
ur biðjumst við velvirðingar
á mistökunum.
Rækju landað
Flutningaskipið Grin Frost, sem er frá Nassau á Græniandi, landaði í
liðinni viku 164 tonnum af rækju í Fiskiðju Skagfirðings í Grundarfirði.
Skipið getur flutt allt að 3500 tonn og er frá Kanada. Siglir það af og
til til íslands með iðnaðarrækju og dreifir á hafnir landsins.
MM/ljósm. Sverrir.