Skessuhorn - 06.10.2004, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTOBER 2004
úHJCSSUnui^
Verða fimm sveitarfélög á
Vesturlandi efirir tvö ár?
Tillaga liggur fyrir um að sveitarfélögum á Vesturlandi fækki um 12 og verði einung-
is 5 innan tíðar, þ.e.a.s. Snæfellsnes, Borgarþörður, Dalasýsla með Reykhólahreppi,
sameinað sveitarfélag sunnan Skarðsheiðar og Akranes.
Sveitarfélögum á landinu
fækkar úr 103 í 39 ef tillögur
nefndar á vegum félagsmála-
ráðuneytisins verða samþykktar.
Rúmlega 70% þjóðarinnar býr í
þessum sveitarfélögum. Kosið
verður um sameiningu átta
sveitarfélaga í nóvember en í
apríl á næsta ári er fyrirhuguð
kosning um sameiningu áttatíu
sveitarfélaga. Nú hafa sveitar-
stjórnarmenn á landinu tvo
mánuði til að koma á framfæri
athugasemdum áður en nefndin
leggur fram endanlegar tillögur
í desember.
Tillögur sameiningarnefnd-
arinnar miða að því að hvert
sveitarfélag myndi heildstætt
þjónustu- og atvinnusvæði og
var miðað við að þau næðu ekki
yfir stærra landsvæði en svo að
níutíu prósent íbúanna væru
innan þrjátíu mínútna aksturs-
vegalengdar frá þjónustukjarna
sveitarfélagsins eða grunnskóla.
Þá eiga þau ekki að spanna
stærra svæði en svo að þau geti
myndað heildstætt samfélag og
að samgöngur innan sveitarfé-
lagsins séu greiðar.
Arni Magnússon, félagsmála-
ráðherra sagði við kynningu til-
lagnanna að markmiðið með
sameiningu sveitarfélaganna sé
meðal annars að gera þau nægi-
lega burðug til að sinna lög-
bundnum verkefnum sínum.
Einnig geri breytingarnar sveit-
arfélögin reiðubúin til að taka
við nýjum velferðarverkefnum.
Hefur í þeim efnum verið rætt
um málefni fatlaðra, heilbrigð-
isþjónustu og vinnumiðlanir. Þá
eru uppi tillögur um að sveitar-
félögin taki að sér rekstur fram-
haldsskólanna, ffamkvæmd at-
vinnustefnu og samgöngumál,
þar á meðal rekstur flugvalla.
Arni segir það sameiginlegan
skilning ríkis og sveitarfélaga að
ekki verði gengið til þessara
breyttu verkaskiptingar nema
að samkomulag liggi íyrir um
breytta tekjuskiptingu. Tillögur
um hana verði að liggja fyrir
áður en gengið verði til at-
kvæðagreiðslu um sameining-
una í apríl.
I tillögum nefndarinnar er
gert ráð fýrir að sveitarfélögum
fækki verulega. I gamla
Vesturlandskjördæminu eru nú
17 sveitarfélög með um 15.500
íbúa. Umfjöllun um sveitarfé-
lagaskipan á Vesturlandi og til-
lögur sameiningarnefndar til
breytinga á þeirri skipan er skipt
upp í fernt eftir svæðum. I
skýrslunni sem nú var lögð fram
til kynningar kemur m.a. fram
„að eftirfarandi tillögur eru sett-
ar fram að höíðu samráði við
sveitarstjórnarmenn á svæðinu
og að höfðu samráði við lands-
hlutasamtök. Að miklu leyti er
byggt á greinargerð sem sam-
tökin sendu nefndinni um stöðu
sveitarfélaganna á svæðinu. Auk
þess er horft til þeirra viðmiða
sem nefhdin hefur lagt fram um
að hvert sveitarfélag skuli
mynda heildstætt atvinnu- og
þjónustusvæði, að íbúarnir geti
myndað félagslega heild og að
sveitarfélög séu í stakk búin til
að sinna þeim verkefhum sem
íbúarnir og löggjafmn krefjast.“
Borgarfjörður
sunnan Skarðsheiðar
I Borgarfirði sunnan Skarðs-
heiðar eru fimm sveitarfélög,
þ.e. Akraneskaupstaður, Leirár-
og Melahreppur, Innri-Akra-
neshreppur, Skilmannahreppur
og Hvalfjarðarstrandarhreppur.
I sveitarfélögunum búa samtals
um 6.100 manns á tæplega 500
km2 svæði, en mikill meirihluti
þeirra býr í eina þéttbýliskjarn-
anum á svæðinu, Akranesi.
Samgöngur á svæðinu eru með
besta móti og tenging við höf-
uðborgarsvæðið er orðin mjög
góð með tilkomu Hvalfjarðar-
ganga.
Tillaga sameiningar-
nefhdar
Samstarfsnefnd hefur verið
starfandi um sameiningu Leir-
ár- og Melahrepps, Innri-Akra-
neshrepps, Skilmannahrepps og
Hvalfjarðarstrandarhrepps um
nokkurt skeið. Fyrirhugað er að
kjósa um sameiningu sveitarfé-
laganna þann 20. nóvember
næstkomandi.
Sameiningarnefnd virðir það
frumkvæði sem sveitarstjórnir
þessara sveitarfélaga hafa sýnt í
málinu en áskilur sér rétt til að
leggja fram nýja tillögu sem
kosið verður um vorið 2005
verði sameiningin felld. Gert er
ráð fyrir að Akraneskaupstaður
verði áfram sjálfstætt sveitarfé-
lag.
Rökstuðningur
Ofangreind fjögur sveitarfé-
lög hafa verið í samstarfi um
rekstur grunnskóla og hafa þau
að eigin frum-
kvæði tekið upp
viðræður um
sameiningu.
Samkvæmt við-
horfskönnun
sem sveitar-
stjórnir þessara
sveitarfélaga
létu gera sam-
hliða sveitar-
stjórnarkosn-
ingum 2002 lítur meirihluti
íbúa allra sveitarfélagana svo á
að þetta sé fýrsti sameiningar-
kosturinn sem til greina komi.
Sama viðhorf kom fram á fundi
sameiningarnefndar með full-
trúum þessara sveitarfélaga.
Enda þótt þessi sveitarfélög
uppfylli ekki skilyrði þess að
teljast heildstætt atvinnu- og
þjónustusvæði lítur sameining-
arnefnd svo á að sameining
leiði til mikillar einföldunar
varðandi framkvæmd verkefna,
meðal annars á Grundartanga-
svæðinu.
Borgarfjörður norðan
Skarðsheiðar
I Borgarfirði norðan Skarðs-
heiðar eru fjögur sveitarfélög,
þ.e. Borgarbyggð, Borgarfjarð-
arsveit, Hvítársíðuhreppur og
Skorradalshreppur með rúm-
lega 3.400 íbúa á tæplega 4.800
km2 svæði. Meirihluti íbúanna
býr í Borgarnesi, en auk Borg-
arness eru minni þéttbýl-
iskjarnar á Bifröst, Hvanneyri
og í Reykholtsdal. Dreifbýli er
umtalsvert enda er um að ræða
eitt stærsta landbúnaðarsvæði
landsins. Skráður íbúafjöldi
gefur í raun ekki rétta mynd af
mannfjölda á svæðinu því
svæðið er önnur stærsta sumar-
húsabyggð landsins og mikill
straumur ferðamanna er um
svæðið.
Tillaga sameiningar-
nefndar
Samstarfsnefnd hefur verið
starfandi um sameiningu Borg-
arbyggðar, Borgarfjarðarsveitar,
Hvítársíðuhrepps og Skorra-
dalshrepps. Stefnt er að at-
kvæðagreiðslu þessara fjögurra
sveitarfélaga vorið 2005. Með
vísan til 8. gr. laga nr. 69/2004,
um breytingu á sveitarstjórnar-
lögum nr. 45/1998, leggur sam-
einingarnefhd til að auk ofan-
greindra sveitarfélaga verði íbú-
um Kolbeinsstaðahrepps gefinn
kostur á kjósa um sameiningu
sveitarfélaganna fimm, þann 23.
apríl 2005.
Rökstuðningur
Sveitarstjórn Kolbeinsstaða-
hrepps í Hnappadalssýslu hef-
ur framkvæmt óformlega við-
horfskönnun meðal íbúa sveit-
arfélagsins. Kannaður var hug-
ur íbúa til sameiningar sveitar-
félagsins við önnur sveitarfé-
lög. Niðurstaða þeirrar könn-
unar var sú að íbúarnir telja
vænlegast að
sameinast
sveitarfélögum
í Borgarfirði,
komi til þess að
sveitarfélagið
þurfi að sam-
einast öðru.
Snæfellsnes
Á Snæfellsnesi búa rúmlega
4.100 manns í sex sveitarfélög-
um, þ.e. í Snæfellsbæ, Grundar-
fjarðarbæ, Helgafellssveit,
Stykkishólmsbæ, Kolbeins-
staðahreppi og Eyja- og Mikla-
holtshreppi, með fimm byggða-
kjarna, þ.e. Rif, Hellissand,
Olafsvík, Grundarfjörð og
Stykkishólm. Snæfellsnes er
tæplega 1.500 km2 að flatar-
máli. Einnig er umtalsvert
dreifbýli í Helgafellssveit, Eyja-
og Mildaholtshreppi og Kol-
beinsstaðahreppi þar sem helstu
atvinnuvegirnir eru landbúnað-
ur og sjávarútvegur, auk þess
sem ferðaþjónusta fer vaxandi á
svæðinu öllu.
Tillaga sameiningar-
nefndar
Sameiningarnefhd leggur til
að íbúum Snæfellsbæjar,
Grundafjarðarbæjar Stykkis-
hólmsbæjar, Helgafellssveitar
og Eyja- og Miklaholtshrepps
verði gefinn kostur á að kjósa
um sameiningu sveitarfélag-
anna fimm þann 23. apríl 2005.
Rökstuðningur
Á fundi sameiningarnefndar
með sveitarstjórnarmönnum á
Snæfellsnesi kom fram að svæð-
ið er heildstætt atvinnu- og
þjónustusvæði og því eðlilegt að
sameiningartillaga nái yfir allt
Borgarfjörður norðan Skarðsheiðar
Sveitarfélög Ibúafjöldi km2
Skorradalshreppur 55 216
Borgarfjarðarsveit 696 1.254
Hvítársíðuhreppur 85 1.482
Borgarbyggð 2.589 1.843
Alls 3.425 5.142
Borgarfjörður sunnan Skarðsheiðar
Sveitarfélög íbúafjöldi kni2
Akraneskaupstaður 5.582 9
Hvalfj arðarstrandarhreppur 154 270
Skilmannahreppur 152 55
Innri-Akraneshreppur 121 25
Leirár- og Melahreppur 32 132
Alls 6.141 490