Skessuhorn


Skessuhorn - 06.10.2004, Page 10

Skessuhorn - 06.10.2004, Page 10
FRAMHALD AF BLS. 9 10 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTOBER 2004 i»i;3aunui^ Kristinn Jónasson, bæjar- stjórí í SnæfcllsbíC: „Þessar tillögur koma ekki á óvart, það er búið að fjalla töluvert um þessi mál á vegum sveitarstjórnarmanna. Hér á Snæfellsnesi var skipuð nefnd sl. vor um sameiningu sveitar- félaga og eru öll þau sveitarfé- lög er nefndin leggur til að sameinist aðilar að því starfi.“ Björg Agústsdóttir, sveitar- stjórí Grundarfirði: Þessi vinna sameiningar- nefndar hefur verið í gangi og tillögurnar koma í sjálfu sér ekki á óvart. Hvað sveitarfélög- in í landinu varðar þá liggja að baki ótal ályktanir svo sem eins og frá landsþingum Sambands íslenskra sveitarfélaga um efl- ingu sveitarstjórnarstigsins, m.a. með frekari sameiningu sveitarfélaga. Hið sama hefur ennfremur verið yfirlýstur vilji ríkisvaldsins, svo sem eins og hann birtist í byggðaáætlun Al- þingis. Hvað okkur Snæfellinga varðar, þá er nýhafin vinna sér- stakrar samstarfsnefndar sem sett er á laggimar til að skoða kosti og galla sameiningar í einmitt þeim fimm sveitarfé- lögum sem sameiningamefhd- in gerir tillögu urn í fyrr- greindri skýrslu. Eg hefði per- sónulega viljað sjá að við fengj- um að ljúka okkar vinnu á þeim tíma sem til þess þarf, hafa okkar takt. Við þurfúm á því að halda að koma þessum málum í markvissari umræðu meðal í- búanna sjálfra, sameiningarmál em mikið rædd á vettvangi sveitarstjórnarmanna, en kjarni umræðunnar þarf að skila sér betur út í sveitarfélögunum sjálfum. Þar bíðum við eftír að vinnu samstarfsnefndarinnar okkar vindi fram. Stóra spurningin er síðan sú hvernig tíllögum sameiningar- nefndar félagsmálaráðherra verður fylgt eftir. Linda Björk Pálsdóttir, sveit- arstjórí Borgarfjarðarsveit: „Þessi tillaga kemur Borgar- fjarðarsveit ekki á óvart enda þegar hafnar sameiningarvið- ræður hjá 4 af þessum sveitar- félögum sem lagt er til að sam- einist norðan Skarðsheiðar, þ.e. Borgarbyggð, Borgarfjarð- arsveit, Hvítársíðuhreppi og Skorradalshreppi. Kolbeins- staðahreppur verður væntan- lega boðinn velkominn til við- ræðna um sameiningu ef hreppsnefnd hans óskar eftir því en hún mun væntanlega fara yfir þessar tillögur fljót- lega. Effir skoðankönun með- al íbúa Kolbeinsstaðahrepps lá auðvitað beint við að þessi til- laga kæmi fram og ekki annað að sjá en nýtt sveitarfélag verði sterkara með Kolbeinsstaða- hrepp innanborðs. Hins vegar þyrftu þeir að ákveða mjög fljótt um ffamhaldið þannig að sameiningarviðræður geti haft eðlilegan framgang.“ Oli Jón Gunnarsson, bæjar- stjórí í Stykkishólmi: Eg tel þessa tillögu mjög skynsamlega. Kosið verður um tillöguna 23. apríl n.k. Því miður liggur ekki ennþá fyrir með kosti og galla sameining- ar og því er umræða út frá þeim forsendum lítt á veg komin. Bæjarstjórn Stykkis- hólms vildi kanna þetta fyrir nokkrum árum en ekki varð um það samstaða. Þessi tillaga sameiningarnefndar félags- málaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga gerir það að verkum að nú verður ekki lengur undan því vikist. Samstarfsnefnd er að störfum um sameiningu þeirra sveitar- félaga á Snæfellsnesi sem til- laga er gerð um sameiningu á og nær vonandi að skila því starfi að íbúarnir geti tekið af- stöðu til sameiningar út frá málefnalegri afstöðu. Páll S Brynjarsson, bæjarstjóri Borgarbyggð: „Eg fagna þessari tillögu lands- nefndar um sameiningu sveitarfé- laga sem kynnt var nýverið. Und- anfarið ár hafa sveitarfélögin í Borgarfirði norðan Skarðsheiðar og Mýrasýslu unnið að sameiningu sveitarfélaga og er sú vinna komin vel á veg. Vissulega breytast for- sendur að einhverju leyti ef Kol- beinsstaðahreppur kemur með, en ég er hins vegar mjög sáttur við þá tillögu og tel að það styrki þetta svæði ef af þátttöku þeirra verður. Við munum halda ótrauð áham okkar vinnu og ég vona að Kol- beinsstaðhreppur taki ákvörðun sem allra fyrst um að taka þátt í sameiningarviðræðunum með okkur. Eg tel augljóst að sameinað sveitarfélag á áðurnefndu svæði hefur alla burði til að verða ölfugt. Hér er hefð fyrir miklu og góðu samstarfi þessara sveitarfélaga sem lagt er til að sameinist og því er rétt að mínu mati að stíga skrefið til fulls, hér bíða okkar ótal tæki- færi sem við getum betur nýtt í sameinuðu sveitarfélagi. Umsjón: Gannar Bender Margir hafa veitt vel í sumar Laxveiðitímabilið er nú úti þetta sumarið, flestir hafa hætt veiðum, en einn og einn veið- ir ennþá sjóbirting fyrir austan fjall, í Borgarfirði og víðar. Veiðin í sjóbirtingi hefur verið mjög góð síðustu daga í nokkrum ám m.a. í Þverá í Borgarfirði, en þar er leyfa veiði á haustin eftir lok lax- veiðitímans. Langá á Mýrum var besta laxveiðiáin á Vesturlandi og gaf hún 2242 laxa. „Sumarið hefur verið gott hjá okkur og mikið af fiski í ánni víða,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson í samtali við Skessuhorn. „Það var gaman að vatna- svæði Lýsu undir lokin, við fengum fjóra laxa og misstum tvo, það var hellingur af fiski neðarlega á svæðinu,“ sagði Gunnar Sigurgeirsson, en hann var við veiðar þar núna í september og veiddi vel. Haffjarðará og Straumfjarð- ará gáfu mjög góða veiði en Haffjarðará gaf 1133 laxa, sem er meiriháttar gott. Mikið er eftir af laxi í báðum ánum. Lítið hefur verið veitt í Set- bergsá í sumar en eitthvað Sölvi Olafsson, Kári Kristinsson og Andri Freyr með laxa úr Andakílsá í Borgarfirði undir það síðasta, en þeir veiddust efst í ánni, við útfall Andakílsárvirkjunar. hefur sést af fiski í henni. Gríshólsá og Bakká, við Stykkishólm, hafa gefið ein- hverja tugi af fiski og veiði- maður sem veiddi þar fyrir skömmu, í eina tvo tíma einn daginn, fékk einn lax og einn sjóbirting. Fróðá á Snæ- fellsnesi hefur gefið einhverja mgi af löxum og veiðimaður sem var þar nýlega fékk 3 laxa á maðkinn. Veiðimaður sem var í Álftá á Mýrum undir það síðasta veiddi 6 laxa og 10 sjóbirtinga, annar veiðimaður lenti í mokveiði í hólknum við þjóðveginn og veiddi á smtt- um tíma 7 laxa, bæði á maðk og flugu. Andakílsá endaði í 127 löxum og töluvert var af fiski í henni þegar veiði lauk. Upp við virkjun voru margir væn- ir laxar og veiðimaður sem var á ferð setti í einn stóran en hann slapp af eftir mikla barátm, líklega 15-17 punda fiskur. Fleiri stórir voru þarna á sveimi. Skessuhorn/GBender Veiðivam 3 0/9'04 22/9'04Lokat. 2003 # Stangir Eystri Rangá 3104 2947 1720 16 Ytri Rangá 2830 2725 1723 12 Miðfjarðará 2268* 2020 577 10 Langá * 2242* 2263 8-12 Hofsá í Vopnafirði* 1864* 1483 7-8 Víðidalsá * 1770* 588 8 Selá* 1691* 1558 6 Laxá í Dölum 1521 1350 1394 6 Laxá í Kjós* 1502* 1654 10 Blanda 1538* 1465 504 10 Norðurá * 1386* 1444 14 Þverá og Kjarrá * 1364* 1872 14 Haffjarðará * 1133* 1007 6 Grímsá og Tunguá 1127* 1106 1156 8-10 Laxá í Leirársveit 984* 951 1133 7 Laxá í Aðaldal 937* 624 18 Leirvogsá * 810* 558 2 Elliðaár * 644* 472 4-6 Vatnsdalsá 989* 760 547 6 Laxá á Asum * 466* 308 2 Breiðdalsá 701* 640 202 6 Hrútafjarðará og Síká * 610* 164 3 Laugardalsá * 558* 324 2-3 Flókadalsá 523 515 334 3 Hítará 476* 448 4-6 Straumfjarðará * 476* 379 4 Fnjóská *• 446* 166 8 Svartá í Húnaþingi 400* 400 276 3 Fljótaá * 233* 49 3 Stóra-Laxá í Hreppum 423 10 Skógaá 270 245 64 4 * Lokatölur

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.