Skessuhorn


Skessuhorn - 06.10.2004, Page 11

Skessuhorn - 06.10.2004, Page 11
jnliSSltlUi.. MIÐVIKUDAGUR 6. OKTOBER 2004 11 Lagnir frá vatnsbóli við Akrafjall endumýjaðar LEIÐRÉTTEVG: Vegna mistaka við vinnslu Skessuhorns í síðustu viku var birt röng útgáfa af umljöllim um framkvæmdir OR við neysluvamslagnir á Akranesi. I þeirri frétt, sem upphaflega var unnin sem uppkast blaða- manns, var farið rangt með nokkrar staðreyndir m.a. varðandi neyslu- vamslögn frá Reykjavík til Akraness, dýpt Faxaflóa og fleiri atriði. Yf- irlesið og leiðrétt eintak af fréttinni barst hinsvegar ekki rétta boðleið í umbrot blaðsins. Skessuhorn biður hlutaðeigandi velvirðingar á þessum mistökum. Rétt útgáfa af fféttinni er því birt hér. I sumar hefur Orkuveita Reykjavíkur staðið fyrir um- fangsmiklum endurbótum á vatnsveitukerfi Akurnesinga með endurnýjun aðveitulagnar frá vatnsbólinu við Akraíjall og nið- ur að Garðagrund. Lögning sem verið er að endurnýja núna er 12“ asbestslögn sem lögð var árið 1954 en nýja lögnin er sam- ansett úr 400 mm plaströrum, enda plast það efni sem tekið hefur við af asbestinu og er alltaf notað þegar bót og endurnýjun á kerfinu á sér stað. Nýja lögnin er um 4 km á lengd, nær ífá Akra- fjalli niður á Garðagrund eins og fyrr segir og segir Gissur Þór A- gústsson, svæðisstjóri dreifingar OR á Akranesi, að löngu hafi verið orðið tímabært að ráðast í framkvæmdina. „Samsetning gömlu lagnarinnar var orðinn lé- leg og bilanatíðni allt of há. Auk þess var veitan að tapa vatni þar sem það lak út á samsetningum röranna en það er eitthvað sem við megum helst ekki við. Allra síst í þurrkatíð eins og var í sum- ar.“ Umfangsmilar endurbætur á vatns- veitunni síðustu ár „Síðustu fjögur árin hefur mikið verið unnið í því að bæta vatnsveituna, enda er vatnsnotk- un alltaf að aukast. Árið 2000 hófst mikil uppbygging á vams- veitunni, þá lémm við þrýsti- greina vamsveimkerfið en þar kom í Ijós hvar voru brotalamir í kerfini og dreifikerfið var styrkt samkvæmt þeim niðurstöðum, en um þrýstigreininguna sá verk- fræðistofan Fjarhitun. Heim- æðalagnir á Neðri Skaga voru endurbættar í þessu átaki og er búið að endurnýja yfir 300 heim- æðar á þessum fjórum árum. Stærsta verkefni okkar í því að auka flumingsgem í dreifikerinu var að setja niður mælabrunn á horni Kirkjubrautar og Merki- gerðis og leggja frá honum 300 mm plastlögn sem liggur niður í Hafnarbraut en þetta var gert til að auka flutningsgetu á Neðri Skagann, einnig höfum við end- urnýjað dreifikerfi og heimæðar í mörgum gömm á Neðri Skagan- um samhliða endurnýjun gama- kerfisins. Með þessum hætti hef- ur okkur tekist að auka þrýsting- inn í dreifikerfinu úr 2,1 - 2,2 kg árið 2000 í um 3,7 - 4,5 kg, og magnið sem við erum að missa úr úr rörunum hefur minnkað úr um 401/á sek í um 10 1/áseksem er vel ásættanlegt, en vatnsveitu- kerfið á Akranesi er um 85 km langt segir Gissur. Fyrir nokkrum árum var það algengt að fólk á Neðri Skaganum kvart- aði yfir lélegu rennsli á neyslu- vaminu en í dag kemur það vart fyrir að yfir þessu sé kvartað. Vatn sjóleiðina frá Reykjavík Þó framkvæmdin sé vissulega kostnaðarsöm og flókin segir Gissur það hafi verið orðið að- kallandi að heíjast handa því þörfin á neysluvatni á Akranesi sé sífellt að aukast og krafan um afhendingaröryggi ffá viðskipta- vinum einnig. „Þegar verið var að taka ákvörðun um þessa fram- kvæmd fengum við verfkræði- stofuna Hönnun ehf. til þess að kanna fyrir okkur ýmsa mögu- leika í stöðunni,“ segir Gissur. „Niðurstaðan varð sú að að álit- legur kostur væri að sækja vam sjóleiðina til Reykjavíkur þar sem leiðin er ekki ýkja löng eða um 17 kílómetrar, og dýpið mest um 35 metrar. í Reykjavík er nóg af góðu vatni til að þjóna íbúum á Akranesi, hins vegar væri nauð- synlegt að hafa vatnsból hér ef sú lögn myndi bila og aðstæður væru þannig að ekki væri unnt að komast strax í viðgerð. Þess vegna var þessi leið farin nú og með því hefur rekstraröryggi veimnnar stóraukist. Með end- urnýjun á núverandi vamsbóli og aðveitulögn teljum við að það geti annað Akranesi næsm 15-20 árin miðað við þá byggðarþróun sem spáð er, þannig að ný sjólögn til Reykjavíkur er ekki á dagskrá næstu árin að minnsta kosti. Vatni hleypt á nýju lögnina 9. október Verkið var boðið í út í tveim- ur hlumm. Seinni áfangann, frá Akraljalli niður að Geislahúsi við golfvöllinn annaðist verk- takinn B&B, en Vélaleiga Hall- dórs Sigurðssonar hafði um- sjón með fyrri áfanganum frá Geislahúsi að Garðagrund. Undirverktaki í plastsuðu var Jón Bjarni Gíslason hjá Eðal- lögnum. Stefnt er að því að fra- kvæmdum ljúki endanlega og vatni verði hleypt á nýju lögn- ina aðfararnótt 9 . október, þegar dagsetning liggur fyrir verður sent út dreifibréf til allra bæjarbúa þar sem málið verður kynnt. Gissur bendir á að jafnvel þó svo að unnið verði að því að tengja kerfið að nóttu til, þegar álagið á kerfið er hvað minnst en þá verður neyslu- vami dælt úr vatnstanki vatns- veimnnar sem staðsettur er á Breiðinni, verði varla hjá því komist að vatnsskorts verði vart einhvern tíman á meðan skipt verður á milli gömlu lagnarinn- ar og þeirrar nýju, og vonast hann eftir því að bæjarbúar sýni því skilning. ALS Mikil aukning Ungar lerkiplöntur standa sig víða vel sem frumbyggjar á rýru landi. Hé eru nokkrar gróskumiklar lerkiplöntur á mel í landi Brekkukots í Reyk- holtsdal. Bærinn á Hurðarbaki í baksýn. í skógrækt á Vesturlandi Nýliðið sumar var með þeim hlýjustu sem elsm menn muna. Hið sama er að segja um sumar- ið í fyrra. Skessuhorn leitaði fregna hjá Sigvalda Ásgeirssyni hjá Vesturlandsskógum um það hver áhrif árgæskan hafi haft á trjávöxt og skógræktarfram- kvæmdir í landshlutanum. „Á Vesturlandi má gera ráð fyrir að þurrkar hafi dregið úr trjávexti á stöðum þar sem jarð- raki er að jafnaði lítill. Annars- staðar hefur trjávöxmr verið góður í sumar eins og reyndar í fyrra. Ef einhver tegund skógar- trjáa hefiir vakið athygli fyrir góðan vöxt þetta árið, er það stafafuran. Ösp hefur einnig vax- ið óvenjuvel undanfarin tvö ár,“ segir Sigvaldi. Hagsmunapotarar eftirlitsiðnaðarins Stöðugt bætist við í hóp skóg- arbænda á Vesturlandi. Sigvaldi segir að samtals hafi verið gerðir samningar um fjölnytjaskógrækt við eigendur 94 jarða í lands- hlutanum og þar að auki bíða eigendur á fjórða mgs jarða þess að komast í samstarf við Vesmr- landsskóga. „Yfirleitt eru jarðar- partarnir, sem samið er um, á bilinu 40-200 ha. Lágmarks- stærð skógræktarlands er 25 ha. Fari stærð skógræktarlands yfir 200 ha, gæti þurft mat á um- hverfisáhrifum skógræktarinnar. Þótt skógræktarframkvæmdir yfir 200 ha séu ekki endilega úr- skurðaðar í umhverfismat, hefur Fornleifavernd ríkisins talið nauðsynlegt að kordeggja forn- minjar af þessu tilefni. Um er að ræða kostnað, sem hlaupið gemr á hundruðum þúsunda. Af þess- um sökum hafa yfirleitt ekki ver- ið tekin til samfelldrar skógrækt- ar stærri svæði en 200 ha,“ segir Sigvaldi. Hann segir þetta baga- legt, þar sem auðveldara sé að koma skógi haganlega fyrir í landslagi, eftir þvi sem samfellan er stærri. Einnig verði hag- kvæmara að nýta afurðir skógar- ins í framtíðinni, vaxi hann á stórum samfelldum svæðum. „Því má segja, að Alþingi hafi ekki ígrundað málið nægjanlega, þegar lög um mat á umhverfisá- hrifum og þjóðminjalög voru sett, eða hlustað of mikið á hags- munapotara eftirlitsiðnaðarins, enda verður ekki séð að skóg- rækt feli í sér óafturkræfar breyt- ingar á landinu.“ Fjölgar mikið á næsta ári Á nýliðnu sumri hafa bændur á Vesturlandi gróðursett liðlega 600.000 skógarplönmr í 240 ha lands. Sigvaldi segir að þetta sé 10% aukning frá árinu áður. Aukningin er heldur minni en til stóð, þar sem gróðrarstöðvar gám ekki afhent fyllilega þann fjölda plantna, sem um var samið. Að auki var stofnað til 45 km af skjólbeltum en til sarnan- burðar voru settir 50 km af skjól- beltum árið 2003. Sigvaldi Asgeirsson segir að á næsta ári sé áformað að gróður- setja mun meira af plönmm eða 750.000 stk. í samtals nær 300 ha. lands. „ÖIl er þessi skógrækt svokölluð fjölnytjaskógrækt þar sem gert er ráð fyrir að auk timburnytja verði skógarnir til yndisauka og hafi því mikið úti- vistargildi fyrir komandi kyn- slóðir.“ Sigvaldi segir að ekki sé loku fyrir það skotið að einhverj- ir skóganna verði í framtíðinni notaðir til beitar enda fari beit og skógrækt vel saman eftir að skógur er orðinn vel uppvaxinn. Mælir með beitarhólfrim I upphaflegum áformum um Vesmrlandsskóga var gert ráð fyrir, að meira yrði ræktað af svokölluðum landbótaskógum en timburskógum. Við rækmn landbótaskóga er gert ráð fyrir að gróðursetja eingöngu í rýrt land. Einnig var gert ráð fyrir að til að byrja með vaxi einungis upp trjástóð á víð og dreif, en skógurinn þétti sig svo með sjálfssáningu. „Við núverandi aðstæður yrði girðingakostnaður yfirgnæfandi kosmaðarliður við landbótaskógrækt, en í heildina er þessi aðferð við skógrækt miklu ódýrari á hektara heldur en timburskógrækt. Það hefur tafið rækmn landbótaskóga, að ekki hefur enn tekist að breyta fyrirkomulagi sauðfjárbeitar á þann veg, að fé verði girt af inn- an beitarhólfa, en skógurinn fái að breiðast út á hinum fjárlausu svæðum utan beitarhólfanna. Slíkt fyrirkomulag gæti orðið til hagsbóta fyrir skógrækt jafnt og sauðfjárbændur, enda yrðu smalamennskur í heimalöndum þá ólíkt fyrirferðarminni en nú er.“ Skógrækt hækkar jarðaverð I kjölfar skógræktarverkefnis- ins hafa jarðir á Vesmrlandi stór- hækkað í verði. Verðhækkunin stafar að hluta til af tilkomu Hvalfjarðarganganna en Sigvaldi segir ljóst að hækkun jarðaverðs nái einnig, þótt í minna mæli sé, til annarra landshluta þar sem á- hrif Hvalfjarðarganganna eru hverfandi svo sem á Suðurlandi. „Á Suðurlandi er auknum skóg- ræktarmöguleikum þakkað hækkun jarðaverðs. Gera má ráð fyrir að framsýnir kaupsýslu- menn séu einnig að fjárfesta í landi vegna þess að spáð er hækkandi hitastigi á norðurslóð- um. Með hækkandi hitastigi mun landið gefa aukinn arð hvort sem er af akuryrkju, skóg- rækt, veiðiskap eða annarri ferðamennsku,“ segir Sigvaldi að lokum. MM

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.