Skessuhorn - 06.10.2004, Blaðsíða 14
14
MIÐVIKUDAGUR 6. OKTOBER 2004
jnMaunu...
Skagastúlkur sigursælar á knattspymuvellinuin
Á annað hundrað stúlkur æfa
knattspyrnu í kvennaflokkum
IA og hefur gott gengi þeirra í
sumar vakið eftirtekt. Nýlega
tryggði meistaraflokkur sér sæti
í úrvalsdeildinni á ný eftir nokk-
urra ára hlé með sigri á
Þór/KA/KS og yngri flokkarnir
hafa sópað að sér bikurum á
þeim mótum sem keppt hefur
verið á í sumar. Þannig sigruðu
Skagastúlkur í 6. flokki á Pæju-
mótinu í Vestmannaeyjum í
byrjun júní, A liðið lenti í fyrsta
sæti á Nóatúnsmótinu í Mos-
fellsbæ og á Gullmóti JB. 5.
flokkur gerði góða hluti á
Húsasmiðjumód Víkings því
bæði A og B liðin fóru í gegnum
mótið án þess að tapa leik. I 4.
flokk lentí A liðið í fyrsta sætí á
Húsasmiðjumóti Víkings en B
liðið varð í öðru sætí, A liðið
varð í öðru sæti á Páska-
hraðmótí í Reykjaneshöll og á
innihraðmóti á Gullmótinu í
Kópavogi lenti A liðið í öðru
sæti og C liðið í því fýrsta. I
sumar keppti 3. flokkur m.a. í
sjö manna bolta og náðu stelp-
umar öðra sætí á Islandsmót-
inu. 2. flokkur keppti til úrslita í
bikarkeppninni og enduðu í
öðru sæti effir ffábæran leik.
Stelpurnar frá Akranesi hafa
hvarvetna vakið eftírtekt fyrir
hressa lund og góðan aga, tíl
dæmis lenti 6. flokkur IA á for-
síðu Gullmótsblaðs JB vegna
þess hve hressar og skemmtí-
legar þær þóttu.
Efnilegir firamtíðar-
leikmenn
Það er mál manna að óvenju
mikið sé um efnilega leikmenn í
kvennadeildinni um þessar
mundir, enda gefa stelpurnar
ekkert eftír í æfingum og marg-
ar hverjar hafa þær verið að taka
gríðarlegum ffamförum. Miðað
við áhuga stelpnanna í yngri
flokkum er ekki alls ólíklegt að
endurkoma meistaraflokks í úr-
valsdeildina sé varanleg og
Skagastelpur eigi virkilega effir
að láta að sér kveða á fótbolta-
vellinum á næstu árum. Það
vekur athygli að á Akranesi
fjölgar iðkendum í 4. flokki
mest, en þar hefur brottfall ver-
ið nokkuð áberandi hjá öðrum
félögum. Stelpurnar okkar virð-
ast því finna sig í boltanum og
vaxa með honum upp í efstu
flokka.
Oflugt foreldrastarf
Kristbjörg Traustadóttir og
Daðey Þ. Olafsdóttir eru fót-
boltamömmur og foreldrafull-
trúar í unglingaráði IA og
þekkja starfsemi yngri flokka
kvennaknattspyrnunnar vel.
Dætur Kristbjargar, Vera Mjöll
og Elka Sól spila með 4. og 6.
flokki og dóttir Daðeyjar, Olöf
Vala leikur með 3. flokki. Þær
segja að gott gengi Skaga-
stúlkna megi að nokkru leytí
rekja til öflugs foreldrastarfs,
enda skiptí stuðningur heiman
frá sköpum í fótboltanum eins
og í öðru íþrótta- og tóm-
stundastarfi barna. „Það hefur
alltaf verið mikill áhugi fyrir
fótbolta á Akranesi, en lengst af
einskorðaðist hann kannski dá-
lítíð við karlaflokkana og stelp-
urnar fengu ekki þann stuðning
sem er nauðsynlegur ef vel á að
ganga,“ segja þær Kristbjörg og
Daðey. „Eitt dæmi um þetta er
að þar til fyrir skömmu borgaði
unglingaráð ferðir og uppihald
foreldrafulltrúa á mótum í
drengjaflokkunum en kvenna-
flokkarnir urðu að leggja það á
sig að safna hærri fjárhæðum og
borga þennan kostnað sjálfar. A
þessu hefur nú orðið breyting
og betur er passað upp á að gera
öllum jafn hátt undir höfði.“
Eitt af þessum vígjum
sem þarf að vinna
„Þessi rfka hefð fyrir karla-
boltanum er bara eitt af þessum
vígjum sem þarf að vinna,“ segja
fótboltamömmurnar, „og
kannski má segja að kvennabar-
áttan í fótboltanum sé loksins
farin að skila einhverju. Að
hluta má rekja þessa ánægjulegu
þróun til þess að foreldrafull-
trúar eru nú mjög duglegir við
að benda á það sem miður fer
og leiðir til að jafha stöðuna.“
Kristbjörg og Daðey benda til
dæmis á að áhorfendur séu yfir-
leitt mun fleiri á leikjum hjá
strákunum og það eigi við um
alla flokka. Einhverra hluta
vegna hafi það verið þannig að
foreldrar mæti frekar á völlinn
til þess að hvetja syni sína.
„Miðað við áhorfendafjölda á
leikjum virðast drengir eiga
tvöfalt fleiri foreldra en stúlk-
ur,“ segir Daðey, „og það segir
sig auðvitað sjálft að þegar bak-
landið skortir missa stelpurnar
frekar áhugann á því að gera vel
og leggja sig fram.“
Fyrirmyndir í úrvals-
deildinni
Fyrir fáeinuin árurn var tekin
um það ákvörðun hjá IA að
leggja meistaradeild kvenna
niður, enda virtist áhugi meðal
kvenna á Akranesi fyrir fót-
boltaiðkun lítill og illa gekk að
manna liðin. Nú erum við aftur
á mótí með öflugt og sigursælt
meistaraflokkslið og það telja
Kristbjörg og Daðey hafa mikil
áhrif á yngri flokkana. „Stelp-
urnar samsama sig frekar öflug-
um leikmönnum af sama kyni
og það er ekki annað en eðli-
legt. Þegar hetjurnar í úrvals-
deildinni eru að gera góða hluti
er það auðvitað hvatning fyrir
þær yngri að standa sig. Það er
gaman að því að meistaraflokk-
urinn gerir sér grein fýrir þessu
og í sumar buðu þær öllum
stelpum í öllum flokkum á úr-
slitaleik í 1. deildinni sem fram
fór í Keflavík. Þar voru þær
fengnar tíl þess að vera bolta-
stelpur, sem er eitthvað sem þær
fá annars aldrei tækifæri tíl að
gera og taka þátt í ævintýrinu
með sínu liði. Þetta fannst
stelpunum æðislegt og það eru
svona hlutir
sem viðhalda
áhuganum
hjá þeim
sem aftur
leiðir til vel-
gengni sem
kveikir löng-
unina tíl að
gera enn
betur. Ar-
angurinn af
því höfúm
við séð í
sumar.“
Markvissari þjálfun
Annað sem þær Kristbjörg og
Daðey telja skipta miklu um
þann góða árangur sem nú blas-
ir við í kvennaflokkunum er
markvissari þjálfun, en fyrir
ekki svo löngu síðan voru þjálf-
araskiptí ör og ekki eins fast
tekið á þjálfuninni. „Að öðrum
ólöstuðum vil ég sérstaklega
geta Halldóru Gylfadóttur í
þessu samhengi," segir Krist-
björg. „Hún er ótrúlega kapp-
söm og leggur sig alla í það sem
hún er að gera. Halldóra ætlast
til þess að stelpurnar sýni fram-
farir og árangur og taki fótbolt-
ann hæfilega alvarlega. Það er
auðvitað liður í því hversu vel
gengur núna.“
Oflugt félagsstarf
En þó hæfileg blanda aga og
alvöru sé nauðsynleg forsenda
þess að vel gangi má ekki
gleyma því að markmiðið er
ekki síður að hafa gaman af fót-
boltanum og því félagsstarfi
sem honum fýlgir. Eins og fýrr
segir hefur foreldrastarfið
blómstrað síðustu misserin og
Kristbjörg og Daðey segja mik-
ið gert í því að efla félagsandann
og gera eitthvað skemmtilegt.
„Það verður að vinna í því að
gera fótboltann áhugaverðan,
ekki bara sem íþrótt heldur líka
sem félagsskap. Að fara á
skemmtileg mót og brjóta starf-
ið upp með húllumhæi gerir
það að verkum að stelpurnar fá
áhuga á þvf að taka þátt í þessu
með okkur. Það sem er
skemmtílegt spyrst fljótt út. í
fýrra var til dæmis farið með all-
ar stelpurnar á kvennalandsleik
sem var mikil upplifun, stund-
um hittast þær uppi í íþrótta-
húsi utan æfinga og fá jafhvel að
gista þar og gera sér dagamun.
Það hefur verið óskaplega
skemmtilegt að taka þátt í fót-
boltanum upp á síðkastið og
það, í bland við annað sem þeg-
ar hefur verið nefnt, viðheldur
áhuganum og tryggir nauðsyn-
lega endumýjun.“
ALS
Ljósmyndir:
Agústa Friðriksdóttir.
Stelpurnar í 2. flokki höfnuðu í 2. sæti f bikarkeppninni og vildu vera
vissar um að verðlaunin væru ekta.
Furðufataæfing. Fótboltinn er hæfileg blanda af gamni og alvöru. Hér
er meistaraflokkur mættur á furðufataæfingu.
Þeir voru ófáir bikararnir sem stelpurnar í 6. flokki
komu með heim úr keppnisferðum í sumar. Hér fagna
þær á góðri stundu.