Skessuhorn - 27.10.2004, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTOBER 2004
^uCSSUlIU..
Snjókarlar í Saurbæ
Hann var myndartegur snjókarlinn sem þeirAndri Freyr Gunnarsson,
Hlynur Snær og Sandra Sif Sæmundarbörn gerðu í fyrradag í Saur-
bænum, en þann daginn snjóaði töluvert þar um sióðir.
Mynd: Gunnar Bender
/'rr/ó//j/y rifv/) n«r
Nýjar reglur um félagslega
heimaþjónustu
Sigrún Gísladóttir.
Nýjar reglur um félagslega
heimaþjónustu á vegum Akra-
neskaupstaðar voru staðfestar af
bæjarstjórn fyrr í þessum mán-
uði. I þeim segir m.a: „Félags-
leg heimaþjónusta er fyrir þá
sem búa í heimahúsum og geta
ekki séð hjálparlaust um heimil-
ishald og persónulega umhirðu
vegna skertrar getu, fjölskyldu-
aðstæðna, veikinda, barnsburð-
ar eða fötlunar.“
Sigrún Gísladóttir er öldrun-
arfulltrúi hjá Akraneskaupstað
og sinnir þessum málaflokki
innan íjölskyldusviðs. Hún
sagði í samtali við Skessuhom
að nú væri betur skilgreint í
hverju félagsleg heimaþjónusta
felst. „Nú skilgreinum við fé-
lagslega þjónustu betur en áður
en hún getur auk þrifa á heimil-
um falist í félagslegum stuðn-
ingi t.d. með innliti og stuttri
viðvera, aðstoð við persónulega
umhirðu sem ekki er í verka-
hring heimahjúkrunar, aðstoð á
matartíma, aðstoð við innkaup
og aðstoð við gæslu og umönn-
un barna og ungmenna." Sig-
rún segir að heimaþjónusta sé
að jafnaði veitt einu sinni í viku,
en eftir atvikum geti hún verið
oftar eða sjaldnar. T.d. er hún
aðra hvora viku ef einungis er
óskað aðstoðar með þrif. „Mat á
TJmsjón: Iris Arthúrsdóttir.
undanþágum frá
reglunum fer fram
þegar sérstakar að-
stæður knýja á um
slíkt. Þá er sú á-
kvörðun veitt í
samráði við aðra
þá aðila sem veita
þjónustu inni á
viðkomandi heim-
ili,“ segir Sigrún. I
nýju reglunum er
skilgreint ferlið
sem þarf að fara
við umsókn um fé-
lagslega þjónustu
og segir Sigrún að
sótt sé um félags-
lega heimaþjón-
ustu á þar til gerð
eyðublöð. Einnig
verður fljótlega
hægt að nálgast
umsóknareyðublöð á vef Akra-
neskaupstaðar.
Eftir að umsókn liggur fyrir
segir Sigrún að þjónustuþörf
viðkomandi sé metin og í fram-
haldi af því gerður þjónustu-
samningur þar sem fram kemur
umfang og skipulag heimaþjón-
ustunnar. „Þá ber mér að skipu-
leggja þjónustuna í samstarfi og
samvinnu við aðra þá aðila sem
veita þjónustu inni á viðkom-
andi heimili, svo sem heima-
hjúkran, dagvistun að Höfða og
aðra aðila.“ I nýju reglunum er
einnig kveðið nánar á um ýmis
atriði sem varða sjálfa starfs-
menn heimaþjónustunnar, svo
sem þagnarskyldu, nýir starfs-
menn þurfa að skila inn saka-
vottorði og hnikkt er á öðrum
þáttum sem taka til persónu-
legra samskipta starfsmanns og
þjónustuþega. „Með þessum
reglum verður hagræðing sem
felur í sér að þarfir einstaklinga
eru skilgreindar betur og þjón-
ustuþegar fá markvissari þjón-
ustu en áður,“ sagði Sigrún
Gísladóttir öldrunarfulltrúi að
lokum.
MM
Pastagaldur
Þessi nýstárlegi pastaréttur er
áædaður fyrir fjóra. Gott er að
bera hann fram með fersku
grænmetissalati og ilmandi
nýju brauði. Það er einnig hægt
að bæta í hann kjöti t.d.
kjúklingi ef maður vill hafa
hann matarmeiri.
400 gr pasta að eigin vali
1 kjúklingateningur
1 grænmetisteningur
2 dl vatn
110 gr rjómaostur
2 1/2 dl rjómi
Pipar
2 tnskfersk steinselja (söxuð)
2 tsk Óreganó
150 gr beikon
120 gr nýir sveppir
4 hvítlauksrif
50 - 100 gr valhnetur
300 gr blá vínber
180 gr nýjar steinlausar döðlur
Matarolía til steikingar
1. Sjóðið pastað.
2. Sjóðið kjúklinga- og græn-
metisteningana í vatninu. Bætið
rjómaostinum og rjómanum út
í og hleypið upp suðu. Kryddið
með pipar og steinselju. Setjið
sósuna til hliðar.
3. Skerið beikonið í bita,
hreinsið og skerið sveppina og
merjið hvítlauksrifin. Skerið
hnetumar og vínberin í tvennt
og fjarlægið steinana úr vín-
berjunum. Skerið döðlumar í
fernt.
4. Steikið beikonið á þurri
pönnu. Bætið smá matarolíu á
pönnuna og steikið sveppina og
hvítlaukinn.
5. Hellið sósunni og hnetun-
um saman við beikonblönduna
og látið krauma í fimm mínút-
ur.
6. Setjið vínber og döðlur út
í sóstma og berið ffam.
HÚSRAÐ
Olífuolía er góð ífleira en
matseld. Furr húð: Notið hana
sem húðkrem þegar þið emð
búin í baði. Þurrt hár: Berið
olíuna í hárið, vefjið plastpoka
yfir, látið bíða í klukkuti?na og
þvoið hárið vel og vandlega.
I»eir sem hafa áhuga á að láta birta uppáhalds uppskriftina
sína geta sent hana inn ásamt Ijósmynd af sjálfum scr eða réttinum (500 kh eða
stærri), fullu nafni, hcimilisfangi og síma á netfangið iris@skessuhorn.is
Bifröst.
Sjóðheit stemning
Á föstudagskvöldið var ís-
kuldi utanhúss á Bifföst en inni
var sjóðandi heit Kúbustemn-
ing, þegar Havanaband
Tómasar R. hélt þar tónleika.
Tónleikarnir einkenndust af
miklli spilagleði þeirra félaga
og oft var svo mikil stemning
að ég hef grun um það að lögin
hafi orðið dálítið lengri en á-
ætlað var. Það sem einkennir
þessa tónlist er traustur grann-
ur, slagverk og endalaus spuni.
Þar fóru þeir félagar á kostum
og að öðram ólöstuðum fannst
mér ffábært að sjá Davíð Þór
þenja flygilinn og ekki var síður
gaman að því þegar hann flutti
sig af hljómborðinu og inn í
strengina. Vafalaust hefur
marga áheyrendur ekki grunað
að svona væri hægt að nota
flygil. Mér fannst helst að
Tómas sjálfur hefði mátt eiga
fleiri sóló-strófur en það er nú
helstu aðfinnslurnar við þessa
seiðandi tónleika og á Tónlist-
arfélagið heiður skilið fyrir að
halda úti fjölbreyttri og
skemmtilegri dagskrá í vetur.
Jónína Ema Amardóttir