Skessuhorn


Skessuhorn - 08.12.2004, Qupperneq 4

Skessuhorn - 08.12.2004, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2004 WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501 SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA Utgefandi: Skessuhorn ehf Framkv.stj. og blm. Magnús Magnússon 894 8998 Ritstjóri og úbm: Gísli Einarsson 899 4098 Augl. og dreifing: Iris Arthúrsdóttir 696 7139 Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir 437 1677 Prentun: Prentmet ehf. 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is magnus@skessuhorn.is ritstjori@skessuhorn.is iris@skessuhorn.is gudrun@skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 ó þriðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega. kilafrestur smóauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum. Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu. Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr. 433 5500 Símasala „Habó“ - segi ég í gamla Ericson símann sem kominn er að fótum fram efdr að sonur minn þeytti honum nið- ur fjórtán tröppur til að leggja áherslu á kröfur sínar um rýmkaða útivistar- löggjöf en núverandi útgáfa er ekki sniðin að hans þörfum. ,Já er þetta Gísli,“ segir fast að því eggjandi kvenmannsrödd hinum megin á línunni. ,JÚ,“ segi ég sem er sannarlega satt og rétt. Reyndar svara ég með votti af semingi, ekki vegna þess að ég sé ekki viss um hver ég er, heldur vegna þess að þegar þarna er komið við sögu er ég fyrirvaralaust byrjaður á stórvirkum ffamkvæmdum við heila- brot um það hver sé á bak við þessa, við fyrstu athugun, athygl- isverðu rödd í sködduðu símtólinu. „Hæ, þetta er Gugga,“ heldur röddin í símanum áfram og er jafnvel enn meira lokkandi en í upphafi. Raddbeitingin og á- herslurnar bera þess merki að ég sé nákunnugur eiganda raddar- innar og veldur það því að heldur er hert á heilabrotunum og hver einasta heilasella vinnur á fullum afköstum. Vandamálið er hinsvegar það að ég þekki ekki eina einustu Guggu, ekki nema í mesta lagi af afspurn. Rödd Guggunar hljómaði hinsvegar þannig að við þekktums afar vel eða hefðum einhverntíma gert í það minnsta. Eg byrjaði á að fletta upp í gömlum skólasystrum, þá vinnufélögum af kvenkyni og loks almennum flokki kvenna sem ég hef átt einhver samskipti við í gegnum tíðina. Eg varð hinsvegar ekki nokkru nær og varð því að grípa til þess, eins og oft áður að svara líkt og ég þekkti hana mæta vel en hafði svarið hinsvegar það stutt að erfitt væri að greina að það væri náttúr- lega haugalygi. Því sagði ég einfaldlega; „nei, sæl og blessuð.“ „Gaman að heyra í þér,“ gall þá hátt og snjallt í Guggunni. ,JÚ“, svaraði ég og taldi ekki ástæðu til að ræða það í neitt lengra máli. „Heyrðu ég er að kynna hérna einstaklega áhugaverða bók um tilhugalíf túnfífla,“ sagði sykursæta röddin í símanum og gerði mér það um leið ljóst að ég hafði látið hafa mig að fifli, nánar til- tekið túnfífli. Þetta var ekki í fyrsta skiptið og alls ekki það síðasta sem ég hef látið slynga sölumenn laumast inn tíl mín í gegnum símtólið á þessum sömu forsendum. Þetta mun vera eitthvað sem kennt er í símasöluskólanum og virkar alltaf á bjána eins og mig. Eg gat líka alveg fellt mig við það að láta hafa mig að fifli einu sinni í mánuði en þegar þetta er komið upp í tvö til þrjú skipti á dag þá horfir málið kannski öðruvísi við. Þetta endar því yfirleitt með því að þegar einhver sem ég raunverulega þekki álpast til að hringja þá hvæsi ég í símann. Gísli Einarsson, á tali. Gísli Einarsson, ritstjóri. Tæplega 14% byggða- kvótans á Snæfellsnes Sjávarútvegsráðherra úthlut- aði byggðakvóta fyrir yfirstand- andi fiskveiðiár sl. mánudag, alls 3.200 þorskígildistonnum. Samtals fóru tæplega 14% af úthlutuninni til Snæfellsness. Stykkishólmur fær úthlutað 205 þorskígildistonnum til að mæta samdrætti í skelfiskafla og Grundarfjörður fær 138 tonn í sama tilgangi. Snæfellsbær fékk úthlutað 100 þorskígildis- tonnum. Af einstökum sveitar- félögum á landinu fékk Vestur- byggð mesta úthlutun, eða 218 þorskígildistonn. Alls fengu 40 byggðarlög í 32 sveitarfélögum úthlutað byggðakvóta, 7 um- sóknum var hafhað. MM Tölvuþjónustan í sam- starf við Og Vodafone Og Vodafone og Tölvuþjón- ustan á Akranesi hafa ákveðið að hefja víðtækt samstarf um að að efla fjarskiptaþjónustu og þróun fjarskiptalausna á Akranesi og í nágrenni og var samningur þess efnis undirrit- aður í liðinni viku. „Megin- markmið samningsins er að efla til muna fjarskiptaþjón- ustu á Akranesi. Tölvuþjónust- an mun hér eftir bjóða einstak- lingum og fyrirtækjum á Akra- nesi upp á nútíma samskipta- lausnir frá Og Vodafone og er liður í því að allar fjarskipta- lausnir munu fást í nýrri versl- un Tölvuþjónustunnar við Esjubraut. Samkvæmt samn- ingnum hefur Og Vodafone einnig skuldbundið sig til að efla starfsemi sína á Akranesi bæði með því að fjölga GSM sendum þar og í Hvalfjarðar- göngum,“ sagði Alexander Ei- ríksson í samtali við Skessu- horn. I samningi fyrirtækjanna er einnig ákvæði um að Og Voda- fone yfirtekur rekstur inter- netþjónustu Tölvuþjónust- unnar; Aknets, en sala á teng- ingum og þjónusta við notend- ur verður þó áfram hjá Tölvu- þjónustunni. „Samhliða þessu verður Aknetið eflt til muna og þær breytinga gerðar á teng- ingum núverandi notenda að þær verða stækkaðar þannig að allar 256 Kb/s og 512 Kb/s internettenginar AkNets verða uppfærðar í 1 Mb/s, notendum að kostnaðarlausu," segir Alex- ander. Forsvarsmenn beggja fyrirtækjanna segjast binda miklar vonir við samstarfið og ætla sér að bjóða Akurnesing- um upp á bestu lausnir sem völ er á jafnt í síma og fjarskipta- málum. MM Leikskólinn aðalmálið Vmna við gerð fjárhagsáætl- unar fyrir Stykkishólmsbæ stendur nú yfir og verður hún lögð fram til síðari umræðu nú í vikunni. Að sögn Ola Jóns Gunnarssonar bæjarstjóra er leikskólabygging stærsti liður- inn á fjárhagsáætlun ársins 2005. Framkvæmdin kemur þó ekki öll inn á næsta ári heldur verður hluti kostnaðarins til greiðslu á árinu 2006. Samtals er gert ráð fyrir að leikskóla- byggingin kosti um 80 millj- ónir króna. Af öðrum stórum liðum á næsta ári nefnir Oli Jón að farið verði í gerð sparkvallar í samvinnu við KSI en hann segir að ákveðið hafi verið að láta þær framkvæmdir bíða til næsta árs. Þá liggur fyrir að farið verður í gatna- gerð, bæði nýframkvæmdir og endurnýjun. GE Mikið byggt á Reykhólum Óvenju rnikið hefur verið um framkvæmdir á Reykhólum þetta ár og útlit fyrir að ekkert lát verði á framkvæmdagleðinni á næsta ári, samkvæmt upplýs- ingum frá Einari Thorlacius sveitarstjóra Reykhólahrepps. Stærsta framkvæmdin er bygging nýs íþróttahúss og tengibyggingar við Reykhóla- skóla. Samhliða því er verið að gera knattspyrnuvöll við íþróttahúsið en gert er ráð fyrir að þessum framkvæmdum Ijúki á næsta ári. Þá er í bígerð bygg- ing fimm íbúðarhúsa á Reyk- hólum og eru það einstaklingar sem byggja í öllum þessum til- fellum. Ohætt er að segja að um miklar framkvæmdir sé að ræða miðað við stærð svietarfélags- ins. GE Uthlutað í ársbyrjun Skipulagsferli vegna nýrra byggingalóða í gamla miðbæn- um í Borgarnesi er að ljúka. Bæjarstjórn Borgarbyggðar hefur svarað athugasemdum við skipulagið og beðið er efrir úrskurði skipulagsstjóra. Páll S Brynjarsson bæjarstjóri segir að miðað sé við að hægt verði að úthluta lóðum á svæðinu í janúar eða febrúar á næsta ári en búist er við að mikil efrir- spurn verði efrir þeim, ekki síst þar sem þarna er stutt í skóla og íþróttamannvirki. GE Sex óhöpp Sex umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi Borgarneslög- reglu síðustu vikuna. Meðal annars fór bifreið útaf í hálku á Borgarfjarðarbraut við Grímsá síðastliðinn sunnudag og voru tveir rnenn fluttir á slysadeild í Reykjavík til athugunar en meiðsli þeirra reyndust ekki al- varleg. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi var fljúgandi hálka á þessum slóðum og umrædd biffeið á sléttum dekkjum. í hinum tilfellunum varð enginn fyrir teljandi meiðslum en að mestu leyti var um að ræða útafakstur vegna hálku. GE Lýst eftir vitnum Lögreglan á Akranesi kallar eftír upplýsingum frá vitnum að árekstri sem varð þann 1. desember sl. á homi Esjubraut- ar og Dalbrautar. Þar lentu saman í árekstri rauð jeppabif- reið og græn fólksbifreið um klukkan 15:30. Þeir sem geta gefið upplýsingar um atvikið, vinsamlegast hafið samband við lögregluna í sírna 431- 1166. MM Bílvelta á Mýrum Þrír piltar voru fluttir slasað- ir tíl Reykjavíkur á tólfta tím- anum að kvöldi 1. desember eftír útafakstur og bílveltu á Snæfellsnesvegi á Mýrum, um 20 km vesmr af Borgarnesi. Bíll piltanna fór útaf rétt vestan við bæinn Brúarland og valt nokkrar veltur þar ril að hann stöðvaðist um 30 metrum frá veginum. Að sögn lögreglunn- ar í Borgarnesi var vegurinn launháll á þessum kafla og fór bíllinn, sem er gjörónýtur efrir veltuna, útaf í aflíðandi beygju. Vom piltamir mikið skornir en ekki taldir við fyrstu skoðun hafa beinbrotnað. Vom þeir á suðurleið er slysið átti sér stað. MM

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.