Skessuhorn - 08.12.2004, Blaðsíða 8
MIÐVTKUDAGUR 8. DESEMBER 2004
uivtððim/i..
Samemingamefiid
að ljúka
Sameiningarnefhd sveitarfé-
laga á Snæfellsnesi hyggst skila
af sér fyrir jól, að sögn Gísla
Olafssonar bæjarfulltrúa í
Grundarfirði sem er formaður
nefndarinnar. „Við höfum verið
að skoða kosti og galla þess að
sameina sveitarfélögin á Snæ-
fellsnesi og þeirri vinnu miðar
störfiim
vel. Við vorum reyndar byrjuð
áður en tillögur sameiningar-
nefridarinnar komu fram. Upp-
haflega stóð til að við skiluðum
af okkur um miðjan janúar en
við ákváðum að flýta þessari
vinnu og ljúka henni fyrir jól,“
segir Gísli.
GE
Bílfþjóftiaður
Um síðustu helgi var bifreið Seleyrinni. Ekki fylgdi sögunni
stolið í Borgarnesi. Þjófurinn hvort honum líkaði ekki farar-
hefur hinsvegar ekki gert víð- skjótinn eða hvort hann hafi
reisn á bifreiðinni því hann fór einfaldlega ekki þurft að fara
einungis yfir Borgarfjarðar- lengra.
brúna en skildi bílinn eftir á GE
(trundaVaf)
Grundarfirði
Samkaup Jstrax
Verð áður: TILBOÐ
Svínahamborgarhryggur 1.198 779 kg.
Hangilæri úrb. 1.949 1.559 kg.
Hangiframpartur úrb. 1.433 1.146 kg.
Léttreyktur lambahryggur 1.337 1.070 kg.
Jólagrísasteik 1.108 864 kg.
Coke 4 pk. DVD diskur frítt með 2.830 1.299
Náttúru rauðkál 720gr 139 99
Náttúru agúrkusalat 720gr 179 139
Cadburys Rose konfekt 1,7.kg 2.595 1.999
Verið velkomin!
Grundaval - Grundarýirði
Samkaup-Strax - Akranesi
Nýtt kortatímabil hafið!
Segulmiðaleikur
Skessuhorns
?emafffr ftffflfaft meb/
Vinningsnúmer 48. tölublaðs er:
1072
Vinningur er 15.000 króna vöruúttekt í
Samkaup-Urval í Borgarnesi eða
Samkaup-Strax á Akranesi eða
Grundavali í Grundarfirði.
Avísun fyrir vöruúttekt skal
vinningshafi vitja á skrifstofu
Skessuhorns í síma 433-5500.
L J
Heimsborgarajól og áramót í Hvalfirði
Flestir íslendingar kjósa að
dvelja í faðmi stórfjölskyldunnar
um jól og áramót, sumir velja að
ferðast og stækkandi hópur kýs
að dvelja í heilsárshúsi úti á landi
á þessum tíma. Til landsins
streymir einnig vaxandi fjöldi er-
lendra ferðamanna, gestir sem
bæði vilja upplifa Island og ís-
lenska menningu á þessum árs-
tíma þegar sól er hvað lægst á
lofti. Vitað er að á þessum tíma
Ijóss og friðar eru einnig nokkuð
margir sem kvíða einsemd og
einangrunar meðal annars vegna
þess að þeir eru fjarri vinum og
ættingum eða einfaldlega eiga
ekki marga að. Þannig hefur ís-
lenskt samfélag verið að breytast
talsvert á síðasta áratug og nú er
svo komið að samkvæmt skrám
Hagstofunnar eru einmennings-
heimili, heimili þar sem einungis
einn hefur fasta búsetu, næstum
þriðjungur heimila í landinu.
Til þess að mæta þörfum þessa
breytilega en vaxandi hóps hafa
stjórnendur Hótels Glyms í
Hvalfirði nú ákveðið að hafa opið
um jól og áramót í stað þess að
loka, eins og svo margir gera yfir
hátíðarnar. Þannig verður út-
lendingum jafnt sem íslending-
um boðið að koma og dvelja í
faðmi „fjölskyldunnar“ í Hval-
firði. Aðspurð segir Hansína B
Einarsdóttir, hótelstjóri að unda-
farin ár hafi gestir þeirra verið frá
öllum heimshornum um hátíð-
amar; allt frá Islendinum sem
vilja breyta til eða bara búa á einu
stóm jólaheimili og til Japana og
Ameríkana og allt þar á milli.
„Við bjóðum upp á samfellda
dagskrá fyrir þá sem það vilja þar
sem afþreying, góður matur og
drykkur, skoðunarferðir, messur,
útsýnisferðir, sveitabæjaheim-
sóknir og ýmislegt annað verður
í boði. Gestir okkar geta þannig
valið og sett saman dagskrá að
eigin smekk, en takmarkið er að
þeir sem hingað koma geti varið
tímanum að vild saman með
öðru fólki, kynnst menningu
okkar og annarra og átt saman
hátíðlega og góða stund hér í
faðmi fjallanna og fólksins sem
hér mun dvelja með okkur,“
sagði Hansína. MM
Byggt við Kríuból
Síðastliðinn mánudag var tekin fyrsta skóflustunga að stækkun
leikskólans Kríubóls í Ólafsvík. Verktaki er Guðmundur Friðriksson
í Grundaríirði en hann átti tægsta boð, 87% af kostnaðaráætlun.
Verktakinn hefur þegar hafist handa við framkvæmdir. GE
Akranes í viðræður við Aflvaka
Á döfinni er að fulltrúar bæj-
aryfirvalda á Akranesi hitti
stjórnendur Aflvaka þar sem
umræðuefnið verður; ný sýn á
stækkað höfuðborgarsvæði.
„Aflvaki er hlutafélag í eigu
Reykjavíkurborgar sem hefur
það markmið að vinna að efl-
ingu og framgangi atvinnulífs í
höfuðborginni þannig að borgin
standist á hverjum tíma sam-
keppni um fólk og fyrirtæki,
veiti fyrirtækjum og starfsfólki
þeirra góða þjónustu og ræki
höfuðborgarhlutverk sitt í þessu
samhengi,“ segir í samþykktuin
félagsins. Stjórnendur Aflvaka
hafa nú þegar rætt við sveitar-
stjórnarmenn á Suðurlandi og
Reykjanesi, en umræðan er í
kjölfar málþings sem Aflvaki
stóð fyrir á vordögum um hlut-
verk höfuðborgarsvæðisins
gagnvart sínum næstu nágrönn-
um.
„Án nokkurs vafa þá eru sífellt
fleiri verkefni sem kalla á sam-
eiginlegar lausnir á þessu svæði,
svo sem í sorpmálum, málefhum
slökkviliðs, orkumálum, skipu-
lagsmálum, hafnamálum o.fl.,“
segir Gísli Gíslason bæjarstjóri á
Akranesi, aðspurður um hugsan-
lega samstarfsfleti við Aflvaka. Á
þessu stigi segir Gísli að fátt sé
að segja um hvað viðræður þess-
ar gætu skilað. „Þetta verða fyrst
og fremst samræður um hvernig
skuli bera sig að við málin en
vafalaust munu menn ræða þetta
frekar og þá einstök málefni,"
segir Gísli. MM
DALABYGGÐ
Húsvörður við Félagsheimilið Dalabúð
Hjá Dalabyggð er lausí til umsóknar starf húsvarðar við
Félagsheimilið Dalabúð.
Um er að ræða áhugavert starf. Félagsheimilið er staðsett í Búðardal.
Er það helsti samkomustaðurinn í Dalabyggð. Mötuneyti fyrir
Grunnskólann í Búðardal er í félagsheimilinu. Frekari upplýsingar
um starfið veitir sveitarstjóri í síma 434-1132
Bókavörður við Héraðsbókasafn
Dalasýslu
Einnig er laust til umsóknar starf bókavarðar við
Héraðsbókasafn Dalasýslu.
Bókasafnið er rekið sameiginlega af Dalabyggð og Saurbæjarhreppi.
Um er að ræða hlutastarf.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Sæmundsson, formaður
safnanefndar í síma 434-1272 og/eða sveitarstjóri í síma 434-1132.
Umsóknum skal skila til sveitarstjóra Dalabyggðar,
Miðbraut 11, 370-Búðardal, fyrir 23. desember n.k.
Sveitarstjórinn í Dalabyggð