Skessuhorn - 08.12.2004, Blaðsíða 14
14
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2004
uBtssum/..,
Tilvalin jóLagjöf til
starfsmanna!
Allt í einum pakka
Gjafakort MRA eru til sölu í útibúum Landsbanka Islands og
íslandsbanka á Akranesi.
Fáanleg í þremur upphæðum
kr. 2.500, 5.000, og 10.000.
Handhafar gjafakortanna geta
notað kortin hjá um
30 verslunar- og
þjónustuaðilum
á Akranesi
ISLAN DSBAN Kl
MARKAÐSRÁÐ AKRANESS
V
J
Snœfellsbœr
-þar sem Jökulinn ber við loft
Aðstoðarleik-
skólastjóri/
leikskólastj óri
Snæfellsbær óskar eftir að ráða tímabundið
aðstoðarleikskólastjóra/leikskólastjóra við
leikskólann Kríuból á Hellissandi frá og með febrúar
2005 til og með apríl 2006. Um er að ræða spennandi
uppbyggingarstarf í stöðugri þróun í góðu umhverfi.
Kjörið tækifæri fyrir þá sem langar til að
prófa eitthvað nýtt. Umsóknarfrestur er til
17. desember næstkomandi.
Leikskólar Snæfellsbæjar eru tveir, Krílakot sem
staðsettur er í Ólafsvík og Kríuból sem staðsettur er
á Hellissandi.
Upplýsingar gefur Steinunn leikskólastjóri
í síma 436-6723 kriubol@snb.is
l Snæfellsbær er ungt sveitarfélag sem vefur sig utan um
i Snæfellsjökul: Staðarsveit, Búðir, Breiðuvík, Amarstapi, Hellnar,
| Hellissandur, Rif, Ólafsvík og Fróðárhreppur. í góðu veðri er
s Hellissandur í tveggja tíma akstursfjarlægðfrá Reykjavík - og
s veðrið er að sjálfsögðu alltafgott undir Jökli.
í Snæfellsbæ býr gottfólk sem er alltaftilbúið til að bjóða nýja
Snæfellsbæinga velkomna. Hér er líka sérstaklegafallegt
umhverfi enda býður bæjarfélagið upp á alla Jlóru landsins
þegar kemur að landslagi, fugla- og dýralífi.
-pmnínn-^ Ltfkkum gjaldið í„Göngin“
Þrír þingmenn Frjálslynda
flokksins hafa lagt fram frumvarp
til laga á Alþingi um afnám virð-
isaukaskatts á veggjöld. Eg er
fyrsti flutningsmaður ffumvarps-
ins, en með mér á því eru þing-
menn Norðvesturkjördæmis þeir
Guðjón Arnar Kristjánsson og
Sigurjón Þórðarson. Virðisauka-
skatturinn á veggjöldin er nú
14%. Yrði niðurfelling hans að
löguin ætti það að verða mikil-
vægt skref til þess að lækka
veggjöld í Hvalfjarðargöng en
þau eru eina samgöngumann-
virkið á Islandi í dag þar sem slík
gjöld eru innheimt.
Mikil umræða
Undanfarið hefur farið fram
mikil umræða um að leita leiða til
að lækka gjöld í Hvalfjarðagöng-
in verulega eða afnema þau alveg.
Þessi umræða er mjög skiljanleg.
Hið opinbera endurgreiddi á sín-
um tíma virðisaukaskatt vegna
kostnaðar við gerð ganganna, en
hefur frá því þau voru opnuð inn-
heimt 14% virðisaukaskatt af
veggjöldum. Göngin hafa fyrir
löngu sannað gildi sitt sem sam-
göngubót sem komið hefur
landsmönnum öllum til góða.
Þarf ekki að hafa langt mál um
gildi þeirra. Þar er rejmslan ó-
lygnust. Þau hafa stytt vega-
lengdir, aukið umferðaröryggi og
styrkt byggðarlög.
Göngin hafa sparað hinu opin-
bera verulegar fjárhæðir sem
annars hefðu einkum runnið til
viðhalds og reksturs vegar fyrir
Hvalfjörð. Einnig hefur fé spar-
ast vegna þess að slysatíðni á veg-
inum fyrir Hvalfjörð er nú nánast
engin. Fyxir tíma Hvalfjarðar-
ganga voru alvarleg umferðarslys
sem leiddu til örkumla og dauða
árlegur viðburður á þeim vegi.
Ekkert dauðaslys hefur orðið í
göngunum. Hvalfjarðargöngin
hafa einnig orðið mikilvæg for-
senda fyrir því að styrkja Vestur-
land sem atvinnusvæði. Síðast má
geta þess að þau hafa auðveldað
íbúum höfuðborgarsvæðisins að
nýta sér dýrmæta möguleika til
útivistar og ferðalaga um Vestur-
land, Vestfirði og Norðurland.
Ósanngjam skattur
Okkur sem stöndum að þessu
frumvarpi þykir afar ósanngjarnt
að ríkið innheimti virðisauka-
skatt fyrir gjöld sem reidd eru af
hendi fyrir notkun samgöngu-
mannvirkis. Hið opinbera inn-
heimtir veruleg gjöld með ýms-
um álagningum á farartæki og
eldsneyti. Alger rökleysa er að
leggja aukaálögur í formi virðis-
aukaskatts á ferðir slíkra öku-
tækja þegar þau fara um gjald-
skyld samgöngumannvirki sem
gerð hafa verið af einkaaðilum.
Þegar síðan er litið til þess hve
mikinn hag ríkið getur haft af
slíkum mannvirkjum, eins og
sannast hefur með Hvalfjarðar-
göngum, þá hljóta allir að sjá að
virðisaukaskattlagningin á engan
rétt á sér. Skattínn ber því að af-
nema sem fyrst og í eitt skipti
fyrir öll.
Umræðan um að ríkið yfirtaki
alfarið þær skuldir sem hvíla á
göngunuin í dag verður sífellt
háværari. Þetta þýðir að ríkið yf-
irtæki rúmlega fimm milljarða
skuld Spalar og kostaði síðan
rekstur gangnanna. Það yrði
meiri háttar pólitísk ákvörðun
sem hlýtur að krefjast mikils und-
irbúnings ef af yrði. Fimm millj-
arðar eru engir smápeningar og
einhvers staðar yrði að finna slík-
ar fjárhæðir.
I ljósi þessa og síðan þeirrar
staðreyndar að það er mikilvægt
að lækka gjaldið í göngin hið
fyrsta, teljum við að raunhæfasta
leiðin nú, sé að ríkið felli niður
virðisaukaskattínn. Ef hægt yrði
síðan að endurfjármagna lán
Spalar eins og Ríkisendurskoðun
hefur lagt til, og ná niður kostn-
aði þá gætu við kannski horft til
25% lækkunar í göngin í það
heila án þess að það tefðist að
búið yrði að greiða þau upp eftir
um það bil 12 ár? Enginn þyrfri
að velkjast í vafa um að fjórðungs
lækkun á gjaldi í göngin yrði
veruleg kjarabót fyrir notendur
þeirra sem árlega greiða nú sam-
tals um 900 milljónir króna í
veggjöld.
Frádráttarbær
ferðakostnaður
Að lokum má svo benda á að
Frjálslyndi flokkurinn hefur lagt
fram tíllögu um breytingu á lög-
um um tekjuskatt. Þær ganga út á
að útgjöld vegna ferðakostnaðar
tíl og frá vinnu sem er umffam
120.000 á ári en þó aldrei hærri
en 400.000 árlega yrði frádráttar-
bær ffá skattí. Slíkar reglur eru í
gildi í nágrannalöndunum, til að
mynda Noregi og þykja sjálf-
sagðar. Yrði sh'kt að veruleika
hér, þá þýddi það að stórnotend-
ur Hvalfjarðagangnanna sem
nota þau tíl og ff á vinnustað gætu
dregið verulegan hluta útlagðs
kosmaðar í göngin frá tekjurn
fyrir skatta.
Við hvetjum alla tíl að leggja
okkur lið við þessar umbætur á
skattkerfinu. Fellum niður virðis-
aukaskattinn og drögum ferða-
kosmað ffá tekjum fyrir skattaá-
lagningu.
Magmis Þór Hafsteinsson,
varaformaður og þingflokksfor-
maður Frjálslynda flokksins.
Nýtt og öflugt
verkfæri
til íbúöakaupa
9 Creiðslumat á netinu
• Lánsumsókn á netinu
• Fagleg ráögjöf á netinu
- einfaldari leiö aö íbúðakaupum
íbúöalán.is
www.ibudalan.is