Skessuhorn - 08.12.2004, Page 18
18
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2004
^&tisaunu^
‘'lfaiidvi’rktsfiíicsió aó
'Idáli í 'Kóílánsíóii er apió
Verió velkamiii!
‘Edda agy Táll
Dansleikur^^
Laugardagskvöldið 4
11, desember
kl. 23:00- 03:00 f
TRAFFÍC
750 kr. - 20 ára aldurstakmark
1
^ HqTeL 0
Sími 431 4240
Akraneskaupstaður
Bæjarstjórn Akraness
Útvarpað er fra bæjarstjórnarfundum á
FM 95,0
985. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í
bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18, 3. hæð, þriðjudaginn
14. desember 2004 og hefst hann kl. 1 7:00.
A dagskrá verður m.a. seinni umræða um fjárhagsáætlun
Akraneskaupstaðar og stofnana hans fyrir árið 2005
Almennur kynningarfundur um
fjárhagsáætlunina verður haldinn í
bæjarþingsalnum sunnudaginn 12. desember
2004 kl. 1 6:00 þar sem Gísli Gíslason,
bæjarstjóri, mun kynna fyrirliggjandi
fjárhagsáætlun.
Bæjarmálafundir stjórnmálaflokkanna
verða sem hér segir:
Akraneslistinn í Hvíta húsinu, Skólabraut 9,
mánud. 13. desember 2004 kl. 18:00.
: Framsóknarflokkurinn í Framsóknarhúsinu,
I Sunnubraut 21, mánud. 13. desember 2004 kl. 18:00.
: Sjálfstæðisflokkurinn í Sjálfstæðissalnum, Stillholti
16-18, mánud. 13. desember 2004 kl. 20:00.
Sérstök athygli er vakin á breyttum fundartíma.
Fundirnir eru öllum opnir og eru bæiarbúar hvattir
til að kynna sér bæjarmáíin.
k Bæjarstjóri.
Hrossaræktendur ársins á Vesturlandi. Frá vinstri: Bjarni Marinósson, Birna Hauksdóttir, Haukur Bjarnason,
Guðrún Guðmundsdóttir, Björn Einarsson, Ólöf Gubrandsdóttir, Gíslína Jensdóttir og Sigvaldi Jónsson. Á
myndina vantar Jón Árnason, Akranesi, sem átti hæst dæmdu 6 vetra hryssuna.
Skáneyjarbúið er ræktunarbú ársins
Haustfundur Hrossaræktar-
sambands Vesturlands var hald-
inn 28. nóvember sl. í Borgar-
nesi. Starfssvæði sambandsins
nær frá Hvalfjarðarbotni í
Hrútafjarðarbotn (að Dalasýslu
undanskilinni) og starfar í 16
deildum. Að venju voru á fund-
inum veittar viðurkenningar til
ræktunarbús Vesturlands 2004
og til eigenda þeirra kynbóta-
hrossa sem stóðu efst í sínum
flokki sl. sumar.
Auk þess voru á fundinum
kynntir þeir stóðhestar sem í
boði verða sumarið 2005 en
þeir eru: Hrymur f. Hofi, Kol-
finnur f. Kjarnholtum, Gustur
f. Hóli, Hamur f. Þóroddsstöð-
um, Skorri f. Gunnarsholti,
Dynur f. Hvammi og leiguhest-
arnir Klettur f. Hvammi, Grun-
ur f. Oddhóli, Ofsi f. Brún,
Fákur f. Auðsholtshjáleigu, Sól-
on f. Skáney, Geisli f. Sælukoti,
Borði f. Fellskoti, og Víkingur
f. Voðmúlastöðum. Samkvæmt
upplýsingum frá stjórn er ekki
búið að fastákveða hvaða leigu-
hestar verða örugglega til notk-
unar, en það mun koma í ljós í
janúar þegar opnað verður fýrir
pantanir undir þá. Ljóst er þó að
mjög gott úrval hesta verður í
boði en þeir verða nánar kynnt-
ir á heimasíðunni hrossvest.is í
kringum áramótin.
Þá kom fram að þeir Gustur
og Kolfinnur verða trúlega not-
aðir í sæðingum. Frjósemi stóð-
hestanna s.l. sumar var yfirleitt
góð. Einnig kom fram að búið
er að fella Stíganda frá Sauðár-
króki og Oddur f. Selfossi hefur
verið afhentur Einari og Svönu
til eignar, en það hélt orðið svo
illa við honum að ekki þótti
gerandi að nota hann lengur.
Ræktunarbú Vesturlands
2004 var Hrossaræktarbúið á
Skáney í Reykholtsdal. Rækt-
endur þar eru Bjarni Marinós-
son, Birna Hauksdóttir og
Haukur og Vilborg Bjarnabörn.
Frá Skáney komu á árinu 5 kyn-
bótahross, flest ung og hlutu 3
þeirra 1. verðlaun. Hrossin eru:
Stóðhesturinn Sólon 4. v.
rauðblesóttur, sem var sýndur á
LM,
Glotta 4 v. rauðstjörnótt.
Hríma 4 v. grá.
List 6 v. rauðblesótt, var sýnd
á LM og Gná 9 v. rauðstjörnótt.
MM
Verðlaunahross í eigu heimamanna, sem stóðu efst í hverjum flokki: Stóðhestar: 4. vetra. Sólon frá Skáney, rauðblesóttur F. Spegillf. Sauöárkróki M. Nútíðf. Skáney Ræktandi: Haukur Bjamascm Eig: Haukur Bjamason, Birna Hauksdóttir og Heiða Dís Fjeldsted. Eink: 8.20
5. vetra. Aðall frá Nýjabæ, jarpur F. Adamf Meðalfelli M. Furða f. Nýjabæ Ræktandi og eigandi: Olöf K. Guðbrandsdóttir Eink: 8.34
6. vetra. Blærfrá Hesti, brútnn F. Gusturf. Hóli M: Bltðf. Hesti. Ræktandi og eigandi: Sigvaldi Jónsson Eink: 8.48
Hryssur: 4. vetra. Vakafrá Hellubce, grá F: Feykirf. Hafsteinsstöðum M: Gola f. Hellubæ Ræktandi og eigandi: Gíslína Jensdóttir Eink: 8.24
8. vetra. Elkaf. Efri-Hrepp, móálótt-blesótt F. Hersirf. Oddhóli M: Stjarnaf. Efri-Hrepp Ræktandi og eigandi: Guðrún Guðmundsdóttir Eink: 8.10
6. vetra. Sjöfn frá Akranesi, brán F: Ögri f. Háholti M: Dröfnf. Austurkoti Ræktandi og eigandi: Jón Amason Eink: 8.43
7. vetra. Glettafrá Neðri-Hrepp, grá F: Gusturf. Hóli M: Vaka f. Kleifrm Ræktendur og eigendur: Björn H. Einarsson og Einar Jónsson Eink. 8.36