Skessuhorn


Skessuhorn - 12.01.2005, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 12.01.2005, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 2005 Til minnis Styrktartónleika í Bíóhöllinni á Akranesi nk. föstudag þar sem fram koma margar hljómsveitir og frábært tón- listarfólk. Aögangseyrir á tón- leikana rennur óskipt til ham- farasvæðanna í SA Asíu og uppbyggingarstarfs þar. m Veíhirhorfnr Næstu daga verður suðaust- an átt og leiðindi með um- talsverðri snjókomu. Á föstu- dag verður rífandi rok og rigning eða slydda. Hiti verð- ur um frostmark. Um og fram yfir helgi verður sunnanátt og skúrir sem breytast síðan hægt og rólega yfir í snjó- komu. Hver var að tala um annað en vetur? Spiirnin^ viktinnar í síðustu viku spurðum við: „Hvernig fannst þér Skaup- ið?" Niðurstöður voru nokk- uð afgerandi: Alveg frábært svöruðu 53,4% - Nokkuð gott 32,1% - Sæmilegt 8,8% - Frekar lélegt 3,1% - Sá það ekki 2,6%. í þessari viku spyrjum við blákalt: Ætlor þú á þorrablót? Svarið skýrt og skilmerkilega á www.skessuhorn. is VestlencíimjMr viNnnar Fj ölbrautaskólahúsið vígt Frá vígslunni Síðstliðinn föstudag var tekið í notkun hús fyrir nýjasta framhaldsskóla landsins, Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundar- firði. Skólinn tók til starfa nú í haust en fyrstu önnina var aðeins hægt að nýta hluta hússins þar seni bygging- arframkvæmdir hófust ekki fýrr en síðastliðið vor. Húsið er nú fullbúið og þykir hið glæsilegasta en jafhffamt nokkuð nýstár- legt því þar eru engar eig- inlegar kennslustofur. Þess í stað eru opin rými og að- staða fyrir einstaklings- vinnu og hópavinnu sem mikil áhersla er lögð á í skólastarfinu. Nemendur Fjölbrautaskóla Snæfellinga eru 111 í dag sem er mun meira en búist var við á fyrsta skólaárinu að sögn Guð- bjargar Aðalbergsdóttur, skóla- meistara. Hins vegar er gert ráð fyrir að nemendur geti verið um eða yfir 200. Það var Loftorka Borgarnesi ehf. sem var aðalverktaki við gerð húss- ins og við opnunarathöfnina á föstudaginn voru starfsmönn- um Loftorku þökkuð skjót og góð vinnubrögð og sömuleiðis fjölmörgum undirverktökum þeirra. Viðstaddir athöfnina voru m.a. menntamálaráðherra, þingmenn Norðvesturkjör- dæmis og sóknarpresturinn í Grundarfirði; Elínborg Sturlu- dóttir sem blessaði húsið. GE Styrktartónleikar vegna hamfaranna Styrktartónleikar til upp- byggingar eftir hamfarirnar í SA-Asíu í lok síðasta árs verða haldnir í Bíóhöllinni á Akranesi nk. föstudag og hefjast klukkan 22:30 eða strax og útsendingu Idol keppninnar lýkur. Allir þeir sem ffam koma á tónleik- unum og koma á einhvern hátt að vinnu við þá, þar með talið undirbúningi og kynningu, gefa vinnu sína að öllu leyti. Þar með er talinn þáttur hljóm- sveita sem fram koma, hljóð- manna og annarra tæknimanna ásamt aðstandendum svo sem starfsfólki Bíóhallarinnar og fleiri. Hljómsveitir og tónlistar- menn sem fram koma verða m.a.: Herradeild PO, Worm is Green, Planc, Lotus, Geir Harðarson, Olafur Páll Gunn- arsson, Tríó Péturs, Flaming disaster og fleiri. Miðaverð á tónleikana verður krónur 1.000 en gestir geta, ef þeir vilja, greitt meira, en eins og áður segir rennur aðgöngu- miðaverð óskipt til uppbygg- ingar í SA-Asíu og verða pen- ingarnir sem safnast afhentir í sameiginlegum sjónvarpsþætti allra sjónvarpsstöðvanna nk. laugardag. Skessuhorn er einn af styrktaraðilum tónleikanna og hvetur Skagamenn og aðra Vestlendinga til að slá tvær flugur í einu höggi; styrkja gott málefhi og fara á afbragðsgóða tónleika. MM Er Kolbrún Yr Kristjánsdótt- ir sem kosin var íþrótta- mabur Akra- ness fjórða árið í röð í síðustu viku og þar með er það eiginlega orbið að kæk að vinna þenn- an titil. Glæsilegur árangur! Samstarfssamningur um nýsköpun Á fundi atvinnumálanefhdar Akraneskaupstaðar í dag verður kynntur samstarfssamningur milli kaupstaðarins og þróunar- sviðs Orkuveitu Reykjavíkur um stuðning við þróunarverkefhi og atvinnusköpun á Akranesi. Hug- myndin snýst um að frumkvöðl- Baróninn á Hvítárvöllum Charles Boilleau - ar sem vilja byggja upp ný fýrir- tæki eða fara af stað með ný verkefhi á Akranesi geta sótt um styrk eða nánari skoðun á ný- sköpunarhugmyndum til at- vinnumálanefndar eða/og þró- unarsviðs OR. Atvinnumálnefhd verður síðan umsagnaraðili uin innkomin erindi sem verða loks send inn sem umsóknir til OR verði þau metin álitleg. Aðspurður segir Guðni Tryggvason formaður atvinnu- málanefhdar að nefndin sem slík hafi ekki fýrirfram eymamerkt fjármagn í verkefni af þessu tagi en pólitískur vilji sé til þess að styðja með einhverju móti við vænlegar viðskiptahugmyndir sem leitt geta til atvinnuupp- byggingar í bæjarfélaginu. „Nefndin getur þannig t.d. mælt með fjárveitingu til verkefha til bæjarstjórnar, lagt til vinnufram- lag við undirbúning verkefna og ekki síst stutt álitlegar hug- myndir með umsögn sinni. Um það snýst jú samstarfssamning- urinn,“ sagði Guðni Tryggvason að lokum. MM í tilefni af opnun sýningar á munum barónsins á Hvítárvöllum í Safnahúsi Borgaríjaröar auglýsum við efiir munum eða skjölum iír eigu hans. Þeir sem hafa undir höndum muni eða geta gefið upplýsingar um hvar þá gæti verið að finna vinsamlegast hafið samband. Ása, Safhahúsi Borgarfjarðar, s: 430-7206, Þorkell, Veiðiminjasafninu Ferjukoti, 437-0082. Mörg störf í boði á Grundartanga I Skessuhorni í dag auglýsir Norðurál eftir fólki til starfa við verksmiðjuna í störf sem eru að verða til vegna stækkunar henn- ar. AUs munu 150 störf bætast við og verður ráðið í um helm- ing þeirra nú í mars en seinni hlutann í desember á þessu ári. Þau störf sem um ræðir og eru auglýst nú eru fýrir ófaglærða í ker- og steypuskála og eru sögð henta jafnt báðum kynjum. Störf fýrir iðnaðar- og tækni- menntaða starfsmenn verða auglýst síðar. I auglýsingunni kemur jafnframt fram að æski- legt sé að umsækjendur séu bú- settir á Vesturlandi, en nú er um 85% starfsmanna búsettir í landshlutanum. MM jiUsstm/i.. Fimm nýjar kennslustof- ur í FVA Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á frágang fimm nýrra kennlustofa á neðri hæð í nýbyggingu Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akranesi. Kennslustofurnar verða einkum notaðar fýrir kennslu í íslensku, stærðffæði og ensku. Auk þess verður ein stofan nýtt fyrir verklega kennslu í rafiðngreinum. Ein af eldri kennslustofunum, stofa C109, verður ekki nýtt meira til kennslu því eftir breytingarnar fer hún í gang- veg inn í nýbygginguna. MM Stóraukin notk- un á strætó Á síðasdiðnu ári fóru ríflega 19 þúsund farþegar með strætisvagninum á Akranesi og er það ríflega 65% aukning ffá árinu áður. I ffétt á vef Akraneskaupstaðar kemur fram að aukninguna megi rekja til þess að nýr rekstrar- aðili tók að sér rekstur strætis- vagns á Akranesi á árinu 2003 og nýr sérhæfður strætísvagn var tekinn í notkun. Þá segir að notkun á strætisvagninum hafi aukist í hverjum mánuði, ef ffá er talinn sá tími í haust sem grunnskólakennarar voru í verkfalli. MM Enn heimt- ist fé af fjalli Bændur eru enn að heimta fé þó komið sé vel ffam á vet- ur og framyfir hefðbundinn fengitíma. Kristján Axelsson, bóndi í Bakkakoti sagði í spjalli við Skessuhorn að um 200 kindur hafi skilað sér síð- ustu vikur af eyðijörðum inni á Sanddal og Mjóadal ofarlega í Norðurárdal en land þar tíl- heyrir Brekkuaffétti. Kristján segir að ekki verði leitað mik- ið meira en effir sé þó að sækja nokkrar kindur sem vitað er um á þessum slóðum. Hartn gat þess einnig að neikvæðar afleiðingar rjúpnaveiðibanns væru þær að skotveiðimenn hefðu ekki tvö síðustu ár verið mikið á ferli á þessum slóðum, en þeir hafi oft látíð vita sæju þeir kindur. Því er meiri hætta á því nú að fé einfaldlega dagi uppi á þessum slóðum. Aðspurður segir Kristján að ekki sé endanlega affáðið enn hvort girt verði milli Mýra- sýslu og Dalasýslu á þessum slóðum, en um það hefúr ver- ið rætt. Dalamenn hafa verið því andvígir en mikill vilji er tíl þess meðal sunnanmanna. MM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.