Skessuhorn


Skessuhorn - 12.01.2005, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 12.01.2005, Blaðsíða 7
jiuissuno.. MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 2005 7 Snæfellsbær og Grundaríj örður hafna sameiningu að sinni Allar líkur eru á að ekkert verði af kosningum um sameiningu fimm sveitarfélaga á Snæfellsnesi í vor eins og gert var ráð fyrir í til- lögum sameiningarneíhdar Sam- bands íslenskra sveitarfélaga og félagsmálaráðuneytisins. Sveitar- félögin sem um ræðir eru Stykkis- hólmsbær, Snæfellsbær, Grundar- fjörður, Eyja- og Miklaholts- hreppur og Helgafellssveit. Eins og komið hefur fram í Skessuhorni samþykkti bæjar- stjórn Stykkishólms fyrir sitt leyti að kosið yrði um tillögu samein- ingarnefndarinnar. Grundar- fjörður og Snæfellsbær hafna hinsvegar sameiningu. Niðurstaða bæjarstjórnar Snæ- fellsbæjar varð sú að ekki væri tímabært að ganga til kosninga að sinni. Hinsvegar sé eðlilegt að þessi firnm sveitarfélög sameinist þegar kemur að ffekari samein- ingu á Snæfellsnesi. í yfirlýsingu bæjarstjórnar Snæfellsbæjar segir m.a. að sam- vinna sveitarfélaganna í dag sé mikil og góð samstaða um einstök verkefni. Hinsvegar segir að ekk- ert sé í hendi með verkefni sem ríkisvaldið hafi rætt um að yrðu færð yfir til sveitarfélaganna. Fljótt á litið verði líka lítill eða enginn fjárhagslegur ávinningur af sameiningunni. Þá gagnrýnir bæjarstjórn að tekjustofnanefndin hafi ekki svar- að því hvernig komið verði á móts við erfiðan rekstrargrundvöll sveitarfélagnna en ljóst sé að út- gjöld muni aukast m.a. vegna krafna um samræmingu á þjón- ustu við íbúana. Þá segir orðrétt í bókun bæjarstjórnar: „Reynsla Snæfellsbæjar á loforðum ríkis- valdsins vegna sameiningar er ekki góð hvað efndir varðar og eru menn brenndir af því. M.a. var því lofað að þau sveitarfélög er sameinuðust myndu njóta for- gangs í hinum og þessum málum en reyndin hefur verið önnur. Svo eitt dæmi sé tekið þá var því lofað að samgöngur innan Snæfellsbæj- ar yrðu bættar ef sameinað yrði, en hver er staðan í dag, einu vega- kaflarnir sem eftir er að lagfæra á Snæfellsnesi þar sem einhver um- ferð er að ráði eru þessir vegir sem lofað var að fara í árið 1994, þ.e. Fróðárheiði og Utnesvegur. Ljóst er af reynslunni að ráða- menn í ríkisstjórn telja sig ó- bundna af loforðum fyrirrennara sinna m.a. hvað varðar samein- ingarmál og hafa sagt að viðkom- andi hafi ekki haft umboð til að lofa hinu og þessu. I ljósi þessa þá er það mat bæjarstjórnar Snæ- fellsbæjar að það sem rætt er um að gert verði, m.a. varðandi verk- efnaflutning til sveitarfélaga verð- ur að vera í höfn áður en rokið verður til og sameinuð sveitarfé- lög, því ríkisstjórnir koma og fara og áherslubreytingar geta orðið á þeim bænum.“ Vantar upplýsingar Afgreiðsla bæjarstjórnar Grundarfjarðar í síðustu viku var á svipaða leið. I umsögn sveitar- félagsins segir m.a: „Bæjarstjórn Grundarþarðar vill byrja á að lýsa vonbrigðum sínum með að nú, þegar sveitarfélögin taka afstöðu til tillagna sameiningarnefndar, skuli ekki liggja fyrir niðurstöður úr viðræðum ríkis og sveitarfé- laga um verkaskiptingu og end- urskoðun tekjustofna sveitarfé- laganna. Afstaða og viðbrögð rik- isins í tekjustofnaviðræðunum hafa hingað til ekki gefið tílefni tíl bjartsýni, heldur þvert á móti.“ Þá segir í bókun bæjarstjómar að ekki sé fjárhagslegur ávinning- ur af sameiningunni og auk þess liggi ekkert fyrir um drög að skipulagi stjórnsýslu, staðsetn- ingu stofnana eða rekstrarfyrir- komulagi sameinaðs sveitarfélags enda hafi ekki verið hlutverk samstarfsnefndar sveitarfélag- anna fimm, sem lauk störfum skömmu fyrir áramót, að skila þeirri vinnu. Bæjarstjóm telur hinsvegar að umræddar upplýs- ingar þurfi að liggja fyrir áður en hægt verði að ganga tíl kosninga. GE Orkuveitan hækkar raforkuverð 3rátt fyrir mikinn hagnað „Megum vel við una að hafa farið í þetta samstarf,“ segir Guðmundur Páll Jónsson, bæjarfulltrúi. Alfreð Þorsteinsson formaður stjórnar OR. Orkuveita Reykjavíkur veitir nú þjónustu í 12 sveitarfélögum á svæðinu ofan úr Borgarfirði, til Hafnarfjarðar og austur í Ölfús og Grímsnes. Núverandi eig- endur OR em fjögur sveitarfé- lög, þ.e. Reykjavíkurborg með 93,54% eignarhluta, Akranes- kaupstaður með 5,53%, Borgar- byggð með 0,76% og Borgar- þarðarsveit með 0,17%. I liðinni viku var formlega á- kveðið á stjómarfundi í Orku- veitu Reykjavíkur að hækka raf- orkuverð til almennra neytenda um tæplega 3,9% frá og með næstu mánaðamótum og fyrir- tækjataxta um 2,1% að meðaltali. Ymsir kváðu við þegar þetta spurðist út í ljósi þess að sam- hliða var tílkynnt að hagnaður fyrirtækisins fyrir afskriftir og fjármagnskostnað væri um 5 milljarðar króna, hvorki meira né minna, en nettóhagnaður 1,4 milljarðar en honum verður dreift til eigenda í hlutfalli við eignaraðild. Afskriftir samt lækkaðar En hvað veldur því að OR þarf að hækka raforkuverð til heimila um tæp 4% í ljósi svo góðrar af- komu? Forsvarsmenn Orkuveitu Reykjavíkur vörðu kostnaðar- hækkanir fyrirtækisins á blaða- inannafundi í liðinni viku. Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður, sagði m.a. að þrátt fyrir þessa hækkun væri raforkuverð fyrir- tækisins það lægsta á landinu. Gjaldskrárhækkunin væri til að mæta verðhækkunum sem fyrir- tækið verði fyrir hjá Landsvirkj- un og Landsneti sem er nýtt fyr- irtæki sem annast orkudreifingu hér á landi. Fram kom að leitað hafi verið allra leiða til að draga úr áhrifum þeirra breytinga sem orðið hafi á skipun raforkumála um síðustu áramót. Meðal ann- ars hafi verið aukin eigin orku- framleiðsla á Nesjavöllum og arðsemiskrafa til virkjunarinnar verið lækkuð. Þá hafi einnig ver- ið gripið til þess ráðs að endur- meta líftíma dreifikerfanna og lækka þar með kostnað vegna af- skrifta. Um 80 milljóna arð- grciðsla á Akranes Samkvæmt gjaldskrárhækkun- unum mun almennur taxti fyrir hverja kílóvattsstund lækka og fara úr 6,63 krónum í 6,40 krón- ur en fastagjald hækkað á móti um 267 krónur á mánuði sem gerir um 3200 króna hækkun á ári. Guðmundur Þóroddsson, framkvæmdastjóri OR sagði að þessi góða afkoma fyrirtækisins á sl. ári væri m.a. forsenda þess að verðhækkunin nú væri ekki rneiri en raun bæri vitni. Af þeim sök- um bætti hann við að: „gjald- skrárhækkanirnar væru tiltölu- lega hófsamar". Guðmundur Páll Jónsson, bæjarfulltrúi á Akranesi situr í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Aðspurður sagðist hann í samtali við Skessuhorn vel geta unað þeirri niðurstöðu sem varð því jafnvel hafi stefnt í meiri hækkun ef stjórn fyrirtækisins hefði ekki farið í þær ráðstafanir sem getið er um hér að framan. Al- mennt um samstarf Akur- nesinga við Orkuveituna hafði hann þetta að segja: „Við Skagamenn eigum að vera mjög sáttír við að hafa farið í þetta samtarf og sam- einað Akranesveitu við Orkuveitu Reykjavíkur. Fyrir okkur hefur þetta þýtt stórfellda lækkun raforku- og húshitunarkostnaðar og þýðir í raun að við búum við lægsta heimilistaxta í rafmagni hér á landi og þar að auki eina af ódýrari hita- veitunum." Aðspurður um hvernig Akraneskaupstaður ætli að ráðstafa sínum arðs- hluta af hagnaði OR, eða tæplega 80 milljónum króna, segir Guð- mundur Páll að gert hafi verið ráð fyrir að arðurinn yrði af þess- ari stærðargráðu og því sé hann inni í tekjuhlið fjárhagsáætlunar fyrir nýhafið ár. Hann bætti við að lokum: „Þar með höfum við á sama tíma og við höfum lækkað raforku- og húshitunarkostnað hér á Akranesi um 30% með sameiningunni við OR, náð að fá greiddan út arð frá fyrirtæk- inu fyrir á þriðja hundrað millj- óna króna á einungis þremur árum.“ MM

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.