Skessuhorn


Skessuhorn - 12.01.2005, Page 10

Skessuhorn - 12.01.2005, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 12. JANUAR 2005 ^saunui. zk\ 2myJr BILASALA 0 431 2622 Þekking - Reynsla - Þjónusta Nýir sýningarbílar á staðnum frá B&L og Ræsi Hyundai Terracan Mazda 3 Mazda 6 Renault Megane Scenic NÝR OG BREYTTUR: Hyundai Santa Fe með díselvél Hyundai Getz Vaxtakjörin hvergi betri 4,2% BILASALA 0 431 2622 Þekking - Reynsla - Þjónusta 2622 Jir Loðnan er fyrir austan Nú er loðnan farin að veið- ast fyrir austan og norðaustan land. Skip HB Granda, Vík- ingur AK 100 landaði sl. mánudag fullfermi, eða 1400 tonn á Vopnafirði. Skipið kom á miðin undir kvöld daginn áður og var komið með full- fermi strax klukkan 6 um morguninn, en allur aflinn fékkst í hringnót. „Loðnan virðist vera á stóru svæði með kantinum norð-austur af landinu og þó nokkuð að sjá af henni“, sagði Sveinn Isaksson skipstjóri á Víkingi sl. mánu- dagsmorgun. Loðnan fer í frystingu að hluta en einnig fer eitthvað í bræðslu. Onnur skip HB Granda, þ.e. Faxi RE 9 og Ingunn AK voru sl. mánudag langt komin með að fylla sig einnig en auk þeirra voru Svanur RE og Sunnu- bergið NS einnig við veiðar. MM Kólesteról mælt í Borgamesi Laugardaginn 15. janúar klukkan kl. 10 - 14 verður boð- ið upp á ókeypis kólesteról- og blóðþrýstingsmælingu í Borg- arnesi. Mælingarnar fara fram í Verkalýðshúsinu Sæunnar- götu 2a og eru skipulagðar af Félagi hjartasjúklinga á Vest- urlandi og Hjarta-Heill, Landssamtökum hjartasjúk- linga í samvinnu við Heilsu- gæslustöðina í Borgarnesi og lyfjafyrirtækið Astra-Zeneca. Fjölmargar rannsóknir hafa á undanförnum árum sýnt fram á hve nauðsynlegt er að lækka kólesteról til að koma í veg fyrir hjarta- og æðasjúk- dóma. Lækkun kólesteróls (blóðfitu) er einn mikilvægasti hlekkurinn í forvörnum á því sviði. Með hollu mataræði og hreyfmgu má ná ákveðnum ár- angri, en oft þarf að grípa til lyfjameðferðar til að lækka kólesterólmagnið í blóðinu. (fréttatilkynning) l/luiáhe'inid Glöggt ég mína fótlun finn Gleðilegt ár lesendur mínir. Vonandi eru menn búnir að koma melting- unni í lag eftír há- tíðaveislurnar og væntanlega situr eitthvað eftir í kollinum af hátíð- arræðum prest- anna. Sveinbjörn heitinn Beinteinsson ortí einhverntíman og þætti mér ekki ólíklegt að viðmælandi hans í það sinn hafi verið maður prestvígður: I upphafi var oröiö og oröiö var hjá þér. Hvaö af því hefur oröiö er óljóst fyrir mér. Sumir menn gegna þeim embættum að það er ædast til að þeir sæki messu um hátíð- ar og ætla ég svosem ekkert að draga í efa að þeir hefðu sótt messu hvort sem er en emb- ættíð leggur þeim óbeinar skyldur á herðar. Organistí nokkur í Reykjavík sem trúlega hefur verið í stjórnarandstöðu orti við há- tíðamessu fyrir nokkrum árum: Ýmislegt fyrir augun ber sem ekki styrkir trúna. Forsœtisráöherrafífliö er frammi í kirkju núna! Margir trúa staðfasdega á framhaldslíf og stundum hefur því verið haldið ífam að menn jrrðu að englum eftír dauðann. Olaíúr Jónsson, faðir Flosa leikara, ortí þegar hann lá banaleguna: / bakinu hef ég vaxtarverki. Vœngjahönnun? - Strax í dag? Ætli þaö sé marktœkt merki um meiriháttar feröalag? Gjarnan vildi ég geta óskað öllum þess að hafa það gott en það bara gengur ekki upp því til þess að einhver getí haft það gott þarf einhver annar að hafa það lakara, annars væru allir jafnir og enginn hefði það betra en annar. Það er líka nokkuð ljóst að ef eitthvað fæst ódýrt er einhver í framleiðsluferlinu á lágu kaupi. Jakob Jónsson orti einhverntíma þegar margir hópar voru að semja um svipað leyti eins og oft verður: Þaö gengur afar illa um þessar mundir, allar stéttir barlómssönginn kyrja. Gjörvöll þjóöin er aö veröa undir. undir hverju? Má ég kannske spyrja. Séra Helgi Sveinsson þurffi einhverju sinni að hitta forstöðukonu Hlíðardalsskóla og bauð með sér vini sínum Kristjáni frá Djúpalæk. Meðan Helgi lauk erindi sínu beið Kristján útí í bíl og ortí: Lengi kyssti, kennd viö fjör, kempan listum búna, allt frá rist og upp á vör aöventistafrúna. Ekki fer sögum af svari séra Helga en varla hefur hann orðið orðlaus enda maðurinn málhagur vel. „Guð er kærleikur" segir Biblían sem þýðir þá væntanlega að kærleik- urinn er Guð og honum verður þá væntan- lega best þjónað með því að leggja öðrum lið efrir mætti án þess að velta því of mikið fyrir sér hvort það bætí ímyndina eins og sumum stjórnmálamönnum, bæði erlendum og kannske hérlendum virðist tamt. Jón Berg- mann kom þar að sem verið var að safna fé til kristniboðsstarfa og fór að velta málinu fyrir Skyldu annars œöri völd eilíflega muna alla þá sem koma í kvöld krónu íguöskistuna. Það er líka náungakærleikur að leggja þeim Iið sem hafa farið halloka í lífsbarátt- unni þó þeir séu bara í manns næsta nágrenni og ekki sé dreift litprentuðum bæklingum til að benda á neyð þeirra og er ég ekki með því að gera lítið úr starfi ýmissa líknarsamtaka. Einhverntíma var kveðið: List er ibaö líka og vinna því lífinu veröur aö sinna, aö beygöu og brákuöu aö hlynna en bulla um kœrleikann minna. Æði mörg mannslíf hafa glatast bæði í austurlöndum nær og Afríku af völdum stríðsátaka og náttúruhamfara á undanförn- um áratugum og vandséð hver hefði getað orðið ffamtíð þeirra barna sem þar dóu hefði hiður haldist. Ingi Steinar Gunnlaugsson veltír þessu aðeins fyrir sér í kvæðinu Kon- ungsefni: Viö biöum þess lengi sem boöaö var. Á bládjúpi himins sást stjarna bjartari en aörar sem blikuöu þar. Viö bjuggumst til feröar vitringar til leitar aö leiötoga barna. Enginn fœr lýst þeirri örlagastund er angann viö fundum í hreysi foreldralausan á framandi grund á flótta meö þúsundum -nakinn sem hund- í algjöru umkomuleysi. í auömýkt og lotningu krupum á kné og krílinu gjafirnar sýndum þrjátíu vatnsdropa og þurrmjólkurspé - Þetta var mannkynsins ölmusufé. - í andakt viö konunginn krýndum. Á heimleiö viö fréttum aö hryllingi þeim sem hermenn í búöunum frömdu og stjarnan sem blikaöi björtust um geim hún bliknaöi og hvarfinn í myrkursins heim meöan stríÖsherrar sátu og sömdu. Stundum hefur fólk vaxið nokkuð að um- máli og kílógrömmum um hátíðamar og hefur það orðið mörgum nokkurt áhyggju- efni þó flestum dugi sú einfalda megrunarað- ferð að borða færri kaloríur en brennt er. Nú að afloknum jólum sátu þeir á skrafræðum svilar, Þórarinn á Steindórsstöðum og Sigfús í Skrúð og kom fram í máli Þórarins að hann hafði misst allnokkur kíló fyrir jólin en bjóst kannske við að eitt eða tvö hefðu komið aft- ur um hátíðarnar. Þetta varð Sigfúsi tilefhi eftirfarandi hugleiðingar: Glöggt ég mína fötlun finn, fötin um þaö vitna. Þó aö grennist Þórarinn þá er ég aö fitna. Þó ævi okkar og lífskjör séu nokkuð breytileg fáum við þó álíka stóran blett að lokum í kirkjugarðinum enda kvað Om Am- Dýrt er landiö drottinn minn, dugir ekki minna en vera allan aldur sinn fyrir einni gröf aö vinna. Einar Andrésson í Bólu mun hafa verið í kaupstaðarferð með einn hest undir böggum þegar hann hitti sterkefnaðan bónda úr ná- grenninu sem kastaði að honum hæðnisyrð- um en Einar leit við honum og svaraði: Auös þótt beinan akir veg, œvin treynist meöan. Þú flytur á einum eins og ég allra seinast héöan. A líkum nótum og trúlega af líku tilefni er þessi vísa Gísla Olafssonar frá Eiríksstöðum: Þótt þú berir fegri flík og fleiri í vösum lykla, okkar veröur lestin lík lokadaginn mikla. Meö þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Refsstööum, 320 Reykholt S 435-1367 og 849-2715 dd@hvippinn.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.