Skessuhorn


Skessuhorn - 27.04.2005, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 27.04.2005, Blaðsíða 9
atttdsunu^i 1 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 9 __ X FVA á Islandsmóti iðnnema Guðlaugur Fjeldsted Þorsteinsson og SturlaugurA Gunnarsson. íslandsmót iðnnema var haldið í Smáralind fyrir réttri viku síðan. Keppt var í sex greinum og hver skóli mátti senda tvo keppendur í hverri grein. Fjölbrautaskóli Vest- urlands sendi keppendur í húsa- smíði, málmsmíði og rafvirkjun, tvo í hverri grein. Keppendur fyrir hönd skólans voru: Guðlaugur Fjeldsted Þor- steinsson og Sturlaugur A. Gunn- arsson í málmsuðu; Guðmundur Kristófer Georgsson og Sigurður Hjörtur Olafsson í rafvirkjun og Brynjar Ægir Ottesen og Ingólfur Pétursson í trésmíði. Með kepp- endum skólans fóru kennararnir Eiríkur Guðmtmdsson, Garðar G. Norðdahl og Sigurgeir Sveinsson. Nemendur FVA stóðu sig með prýði og hlutu tveir af sex fulltrúum skólans verðlaun. Guðlaugur Fjeld- sted Þorsteinsson náði öðrum besta árangri samanlagt í málmsuðu og hlaut silfurverðlaun og Sturlaugur A Gunnarsson hlaut tvenn brons- verðlaun fyrir málmsuðu en keppni í þeirri grein var þrískipt og var Sturlaugur í þriðja sæti bæði í pinnasuðu og MIG/MAG suðu. MM Komu færandi hendi Fjölmenni mætti í Safnaskálann að Görðum á Akranesi sl. föstudag þegar Landsbankinn kynnti starfsemi sína. I máli Halldórs J. Kristjánssonar kom m.a. fram að innlán útibúsins á Akranesi væru 5,2 milljarðar og útlán 5,4 milljarðar. Þar af væru tveir milljarðar vegna nýju húsnæð- islánanna og hefði hvergi á landinu náðst viðlíka árangur. Guðján Brjánsson framkvcemdastjóri SHA og Hörður Pálsson formaöur sóknamefndar tóku við gjöfimum Nú í sumarbyrjun úr böndum Birgis Jónssonar og Sturlaugs Sturlaugssonar. verða útibússtjóra- skipti í Landsbankanum á Akra- nesi, Birgir Jónsson lætur af störf- um eítir 10 ára starf og Sturlaugur Sturlaugsson fv. forstjóri HB- Granda kemur í hans stað. Birgi voru þökkuð vel unnin störf í þágu bankans og Sturlaugur boðirm vel- kominn til starfa. Landsbankamenn komu færandi hendi á kynninguna. Sjúkrahúsinu og heilsugæslustöðinni á Akranesi voru færðar hálf milljón króna til uppsetningar á listaverki og Akra- neskirkju voru sömuleiðis afhentar 500 þúsund krónur til smíði nýrrar hurðar í kirkjuna Forystumenn bankans tóku á móti gestunum við safnaskálann. Hér er Ingólfi Amasyni, framkviemdastjóra vel tekið afforsvarsmönnum bankans, þeim Sturlaugi, Birgi og Sig- urjóni Amasyni bankastjóra. Ljósm: MM Norrœn tónlist t Keykholtskirkju Þriðjudaginn 3. maí kl 20.30 Kór Dómkirkjunnar í Gautaborg flyturverk fráýmsum tímum, stærri kirkjuleg verk með hljómsveit, tónverk án undirleiks, og norrcen kórverk síðari tima. Stjórnandi: Ann-marie Rydberg. VERKSTJÓRI Óskum eftir að ráða verkstjóra til starfa strax. Lágmarkstölvuþekking nauðsynleg. Upplýsingar veittar á skrifstofu í síma 431-4501. Fullum trúnadi heitid. Jón Þorsteinsson ehf. Akranesi. MELKA ' 4^SIMÍ'4312007 Úrval af yfirhöfnum verð frá 8.900,- Útboð Sláturhúsið í Búðardal ehf. óskar eftir tilboðum í að framkvæma breytingar og endurbætur við sláturhúsið í Búðardal. Einnig er óskað eftir tilboðum í framkvæmdir við lóð hússins. Útboðsgögn í bæði verkin verða i afhent á skrifstofu Dalabyggðar. Tilboðum skal skila eigi síðar en föstudaginn 6. maí n.k. kl. 11:00 á skrifstofu Dalabyggðar, þar sem þau verða opnuð. Stjórn Sláturhússins í Búðardal ehf. V_____________________________________J Auqlýsing um breytingu og nýtt deíliskipulag í Borgarfjarbarsveit Borgarfjarbarsýslu Samkvæmt ákvæðum 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér meö auglýst breyting á deiliskipulagi á Sóltúnshverfi Hvanneyri. Tillagan gerir ráb fyrir eftirfarandi breytingum: 1. Byggingarreitir verði stækkaðir á íóðum 11,1 3,15,1 7,14 og 16. 2. Á lóbum 11,13,15 og 17 verði heimilt ab byggja allt að 3 ibúöir í stað tveggja. Einnig verbi heimilt ab byggja stakstæða bííageymslu fyrir 2 bíla í stað eins. 3. Á lóöum 14 og 16 verði heimilt að byggja stakstæða bílageymslu fyrir tvo bíla, einnig heimilt ab ein bílageymsla verði innbyggb í húsi. Nýtt deiliskipulag fyrir bílastæði og abra umferð við Deildartunguhver. 1. Gert er ráð fyrir 30 almennum bílastæðum þar af 3 stæbum fyrir fatlaba auk möguleika fyrir 5-7 langferðabíla. 2. Gert er ráb fyrir salernis- og þjónustuhúsi, upplýsingaskiltum, útsýnispalli, safnþróm, auk bygginga sem fyrir eru á lóðinni. Tillögurnar ásamt byggingar og skipulagsskilmálum liggja frammi á skrifstofu sveitarfélagsins Reykholti frá 27. apríl til 25. maí 2005 á venjulegum skrifstofutíma. Athugasemdum skal skila fyrir 8. júní 2005 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemd innan tilgreinds frests teljast samþykkir tillögunni. Skipulags- og byggingarfulltrúi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.