Skessuhorn


Skessuhorn - 27.04.2005, Qupperneq 11

Skessuhorn - 27.04.2005, Qupperneq 11
■ .»..L MIÐVIKUDAGUR 27. APRIL 2005 11 T^e/uutot^i Gleðjmnstyfir góðum árangri Hagur Akraneskaupstaðar stendur með miklum blóma. Bærinn stækkar ört, menn byggja hús í óða önn og íbú- um fjölgar. Afkoma bæjarsjóðs er með því besta sem þekkist í landinu. Eignir bæjarsjóðs er miklar. Bæjaiyfirvöld hafa á prjónunum tímamótaáform um framkvæmdir og endurbætur. Akur- nesingar taka þátt í stórum sameigin- legum verkefhum á sviði orkumála og hafnarmála, verkefntun sem hafa og eiga eftir að skipta sköpum í búsetu- og atvinnuþrórm. Stjómendur bæjar- ins leggja sig frarn um að bæta góða þjónustu og bjóða hana á verði sem er með því lægsta sem þekkist í landinu. Það em því ærin tilefni til að fagna nýju sumri. Eitt í dag - annað á morgun Einmitt í þennan mund skrifar Gurrnar Sigurðsson bæjarfulltrúi Sjálf- stæðismanna á Akranesi vandlætingar- grein í Skessuhom um bæjarmálin og birtir saman mynd af fallegum böm- um, moldarhaug og jámadrash til að minna á bæinn sinn. í leiðinni lætur hann fukyrði dynja á meirihlutanum. Þar kvartar hann yfir því að meiri- hlutinn skyldi ekki samþykkja að til- laga um húsnæðismál eldri borgara yrði send í bæjarráð, heldur samþykkti hana í bæjarstjóm! Þetta gefur auðvftað tilefhi til að rifja upp dæmigert brot af hrakfalla- sögu þeirra Sjálfstæðismanna varðandi mglingslega afstöðu í málum. Á síðasta bæjarstjómarfundi lögðu sjálfstæðismenn nefiúlega fram tillögu um 15% flata lækkun á leikskólagjöld- um. Þessari tillögu var vísað til bæjar- ráðs. Þegar hún kom svo til umræðu þar gerði bæjarráðsmaður Sjálfstæðis- flokksins, Gunnar Sigurðsson tillögu um 10% lækkun leikskólagjaldanna. Verðfelldi sem sagt sína eigin tillögu um einn þriðja í sömu vikunni! Þessi tillaga var auðvitað ekki hugsuð til enda en hún var vissulega skoðunar- verð og í anda stefnu meirihlutans um aukna og bætta þjónusm. Nú er hins vegar unnið að þölskyldustefnu á veg- um bæjarins og nefnd er í vinnu um gjaldskrármálin. Meirihlutinn telur að bíða eigi eftir niðurstöðum þessarar vinnu, enda ekki einsýnt að flöt lækk- un sé það sem hentar foreldrum best, heldur þarf að skoða aðra möguleika. Þar er m.a. um að ræða gjald fyrir 5 ára böm, vistun eftir hádegi og stuðning vegna yngstu bamanna sem era hjá dagmæðrum. Barnafjölskyldur á Akra- nesi geta því átt von á verulegum breytingum í þessum málum á næst- unni. Fleiri dæmi mætti nefha um það hvernig Sjálfstæðismenn standa ekki með sjálfum sér þegar á reynir, en rétt er að hlífa þeim og öðrum lesendum við því. Stórar ákvarðanir á styrkum grunni Nú hefur verið tekin ákvörðun um byggingu fjölnota íþróttahúss á Jaðars- bökkum og stefnt að allsherjar upp- byggingu þar, m.a. nýrri sundlaug. Þessar ffamkvæmdir verða allar til- teknar í nýjum framkvæmdasamningi við IA Akvörðunin er einhver sú mik- ilvægasta sem tekin hefur verið hin síðari ár og er stórt spor í ffamfara- sókn bæjarins. Um þetta mál er sam- staða í bæjarstjóminni þrátt fyrir að sjálfstæðismenn sætu hjá er stefnu- mörkun í uppbyggingu Jaðarsbakka- svæðisins var tekin í tengslum við fjár- hagsáæthm fyrir árið 2004. Þetta verk- efiti byggist á afar sterkri stöðu bæjar- sjóðs og mun ekki draga úr þjónustu hans á öðrum sviðum. Meirihluti bæjarstjórnar mun áffam vinna markvisst að því að verja og bæta hag Akumesinga. Þessi vinna hefur þegar skilað því að hagur bæjarsjóðs er sterkur og eignir Akumesinga miklar. Það gefur mörg tækifæri til umbóta og bættrar þjónustu. Þó verkefnin séu mörg era þau áskorun til að gera bet- ur og þá gildir samstaða og einbeittur vilji. Sveinn Kristinsson, FonnaSur bœjarráðs Akraneskaupstaðar. Umhverfi og útivist - 4. grein Sorp og sorphirða Urgangur og meðhöndlun hans er mikið vandamál í þróuðum iðnríkjum heims. Island verður víst að teljast í flokki þeirra, hvort sem okkur líkar vel eða illa. Magn úrgangs á mann hvern er margfalt meira í iðnríkjum en í þró- unarlöndum. Samkvæmt upplýsingum sem ég tel áreiðanlegar var heimilisúr- gangur í Kína 107 kg á mann á ári 2000-2002, en árið 2002 var hann 730 kg í Bandaríkjum Norður-Ameríku og sama tala á við um Island. Munurinn er sjöfaldur. Það er í rauninni ekki ýkja langt síðan sorphirðan varð okkur Is- lendingum að vandamáli. Hún var það t.a.m. mjög óvíða þegar ég man fýrst til sem bam á 5. áratug 20. aldar. Þá fékk fólk ekki margt það í hendur sem það gat ekki nýtt með einhverju móti, en henti ekki á haug. Og úrgangur ffá mönnum var víða látinn ganga beint inn í hringrás náttúrunnar; úr kamarfötum var hvolft á tún. Síðan gengum við inn í neyslusamfélagið, sem Hörður Bergmann kallar því við- eigandi nafni umbúðaþjóðfélagið. A hverju heimih hrannast upp margvís- leg efni, bréf, plast, pappi, rnatarleifar, sem menn ýmist geta ekki notað eða nenna ekki að taka sér tíma til að nýta. Að ég ekki tah um þann úrgang sem til fellur hjá fyrirtækjum af ýmsum toga. Fyrirtækin em mörg og heimihn miklu fleiri. Vandamálið er því stórt og sveitarfélög hafa neyðst til að bregðast við með skipulegum hætti. Áfangi að lausn vandans er flokkun úrgangs, eins og við íbúar Borgarbyggðar höfum hér í sérstakri gámastöð. Þar er tekinn ffá allur sá úrgangur sem unnt er að endurvinna eða nýta til jarðvegsgerð- ar. Það minnkar veralega umfang sorpeyðingar, sem í raun er ekki eyð- ing, heldur er sorpið urðað úti í Fífl- holtum. Þessi athafnasemi kostar sveitarfé- lagið stórfé. Bæjarstjóri segir mér að árið 2003 hafi kostnaður Borgar- byggðar vegna sorphirðu, sorpeyðing- ar og reksturs gámastöðvar numið tæpum 30 milljónum króna (tölur fyr- ir 2004 lágu ekki fyrir), þar af kostaði sorphirðan á fimmtándu milljón. Sveitarfélagið hafði á árinu 2003 rúm- ar 15 miljónir króna í tekjur af sorp- hirðugjöldum. Tekjur af gámastöð vora tæpar 6 milljónir. Hér er ekki um smáaura að ræða, og kostnaðurinn hvflir að vemlegu leyti á fólkinu og fyrirtækjunum. Og þá er að finna leiðir til að draga úr kostnaðinum. Eða skyldi það ekki vera æskilegt? Árið 2000 (ef rétt er munað) hófst hér í Borgarnesi merkileg tilraun til að minnka heimilisúr- gang. Þá áttu íbúar í Borgar- byggð kost á því að kaupa hjá bæjarfélaginu safhkassa (moltu- kassa) til að setja í h'ffænan úr- gang og mynda þannig mold eða jarðvegsbætandi efni. Vem- legur hluti af þeim úrgangi sem til fellur á heimih er matarleifar eða önnur líffæn efhi. I moltu- kassanum rotna þessi efiú og broma niður og verða síðast að ágætri gróðurmold. Eg hef ekki tiltækar nákvæmar tölur um hve mikið má minnka heimihsúrganginn með þessu móti, en sérffóðir menn segja mér að það sé um það bil helm- ingur. Og hvemig gekk svo þessi tilraun til að virkja almenning í sveitafélaginu til að draga úr sorphirðuvandanum? I smtrn máh sagt: Alveg hörmulega illa. Almenningur var aldrei virkjaður til eins né neins. Upphaflega fóm slfldr moltukassar út til 24ra einstakhnga í Borgarbyggð og að auki til nokkurra fýrirtækja. En fljótt mtm hafa dregið úr notkun þeirra. Árið effir að þeir fóm út vom aðeins 14 í notkun (skv. upplýsingum bæjarstjóra). Enginn veit hve margir þeir em nú. Tilrauninni var ekki fýlgt eftir með upplýsingum til notenda kassanna og annarra bæjar- búa. Ef til vill var gerð kassanna ekki hentug. Það er t.d. ekki mjög þægilegt að losa úr þeim moltuna. Heyrt hef ég menn kvarta undan því að moltunni fylgdi mikill arfi í garði, vandamál sem að mínu viti er auðvelt að leysa. En er nú ekki kominn tími til að taka þetta mál upp að nýju? Eða hvers konar skrautblóm er þessi Staðardagskrá 21 í hnappagötum bæjarstjómarinnar? (- Hvaða skepna er þetta nú annars, Staðardagskrá 21? Væri ekki ráð að einhver upplýsingafúlltrúi bæjar- stjómar léti annað slagið í sér heyra um hana? Eða er þetta kannski bara einhver hégómi)? Aftur að sorphirðtmni. Þegar því stigi umhverfisvemdar væri náð að al- menningur væri farinn að taka virkan þátt í því að minnka sorpið, þá væri ef til vill næsta stigið þetta: Sveitarfélagið okkar og önnur sveitarfélög í landinu tækju sig saman um að hafa þau áhrif á fyrirtæki í verslun og þjónustu að þau dragi verulega úr notkun ónauðsyn- legra umbúða utan um neysluvöm. Hví skyldu þau ekki geta það? Finnur Torfi Hjörleifison. Skrifstofuhúsnæði til leigu á besta stað í Borgarnesi! Til leigu er 170 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð í Hymutorgi, Borgarbraut 58-60, Borgamesi. Um er að ræða aðstöðu fyrir 6-8 starfsmenn auk fundarstofu og geymslu. Nánari upplýsingar gefur Guðsteinn í síma 430-5502 eða póstfang gein@kb.is KB Borgarnesi ehf www.skessuhorn.is Kyttninij á hinumfrábœru SffiRE í fördunarvörum föstudaginn 29. april frá 14-18 fiCltlM <3Æ)MÓm V^RGÖTOMr.AKRANESI H SÍMI431 1753 & 861 1599 og laugardaginn 30. aprilfrá 10-16 Fyrir kaup á vörum yjir 3000 kr. J'yhwmf og j'örðun Aðalfundur Kaupfélags Borgfirðinga verður haldinn að Hótel Borgarnesi fimmtudaginn 28. apríl 2005 og hefst kl. 20:30 Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. 2. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins. 3. Önnur mál. Bernhard Þór Bernhardsson lektor við Háskólann á Bifröst kynnir stefnumótunarvinnu félagsins. Borgarnesi, 12. apríl 2005 Stjórn Kaupfélags Borgfirðinga.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.