Skessuhorn - 04.05.2005, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 4. MAI 2005
^o£MUI1Uk.Í
Ný stjóm í
NFFA
AKRANES: Síðasta föstudag
gengu félagar í Nemendafélagi
Fjölbrautaskóla Vesturlands til
kosninga. Að þessu sinni var ó-
venju dræm þátttaka til framboðs
og einungis fengust formenn
fjögurra klúbba af sjö sem tdl-
heyra félaginu. Tvö framboð
komu hinsvegar til aðalstjómar
og var það ffamboðið XL sem
sigraði kosningamar. Aðalstjóm
NFFA skólaárið 2005-2006
verður því skipuð þeim Stefáni
Halldóri Jónssyni formanni,
Maren Lind Másdóttur gjald-
kera, Jóni Steinari Guðlaugssyni
ritara og Högna Haraldssyni
meðstjómanda. -þgb
Veðurathuganir
í 160 ár
STYKKISHÓLMUR: Sumar-
opnun Norska hússins í Stykkis-
hólmi er áætluð laugardaginn 28.
maí og verður opið daglega í
sumar frá kl. 11 - 17. I ár er þess
minnst að hðin em 160 ár síðan
Ami Thorlacius hóf veðurathug-
arúr í Norska húsinu árið 1845
en það vora fyrstu samfelldu veð-
urathuganir á Islandi. 28. apríl
sl. opnaði sýxúng Astþórs Jó-
hannssonar sem hann kallar
„Horfhir veðurvitar" og er sýn-
ingin í máh og myndum um for-
ysmfé og hlutverk þess í safni
bóndans. I júlí verður Byggða-
safrúð með sýningu í samvinnu
við Veðurstofu Islands á veðurat-
hugunum í gegnum tíðina. Loks
opnar í ágúst sýning Ljósmynda-
safiis Stykkishólms þar sem sýnd-
ar verða myndir úr fórum þess.
-mm
Enn eitt afla-
metið
GRUNDARFJ ÖRÐUR: Um
2400 tonn af fiski komu á land í
Grundarfjarðarhöfn í apnlmán-
uði á móti 1100 tonnum í sama
mánuði í fyrra. Undanfarna
mánuði hefur hvert metið verið
slegið af öðra og svo er einrúg nú
því aldrei hefur jafh mikill afli
komið á land í apríl. -ge
Heilsuefling
meðal eldri
borgara
AKRANES: Undanfarið hefhr
hópur eldri borgara tekið þátt í
námskeiði í stafagöngu, sem
haldið er á vegum félagsmálaráðs
Akraneskaupstaðar og er nám-
skeiðið upphafið að heilsuefhngu
eldri borgara á Akranesi. Fyrir-
hugað er að einu sinni í viku,
nánar tiltekið á þriðjudögum kl.
13:00, hittist hópurinn við sund-
laugina að Jaðarsbökkum allt
ffarn til mailoka. Mánudaginn
25. apríl hófst kennsla fyrir eldri
borgara á tæki og tól í þreksal í-
þróttahússins við Jaðarsbakka og
verða slík námskeið haldin
tvisvar í viku. Stefht er að því að
þráðurinn verði síðan tekinn upp
aftur næsta haust. -mm
Verðbólga er að sprengja upp
forsendur kjarasamninga
Frá kröfugimgu verkalýðsfélaganna á Akranesi sl. sunnudag.
Vilhjálmur Birgisson til hægri í broddi jýlkingar.
Hátíðisdag hinna vinnandi stétta á
Islandi þann 1. maí bar að þessu
sinni upp á sunnudag. Þess sáust
nokkur merki því færri tóku þátt í
kröfugöngunni á Akranesi en mörg
undanfarin ár. Þó var hátíðleikurinn
engu minni þegar forsvarsmenn
Verkalýðsfélags Akraness og fána-
berar í broddi fylkingar, ásamt
lúðrasveit bæjarins, leiddu gönguna
niður Kirkjubraut á fallegum en
fremur köldum vordegi. Eftir kröfu-
gönguna safnaðist hópurinn saman í
salnum á 3. hæð við Kirkjubraut 40
og bættist þar nokkur fjöldi við
þannig að húsfyllir var á samkom-
unni. Að hátíðarhöldunum stóðu
Sjúkrahðafélag Islands, Verkalýðsfé-
lag Akraness, Félag iðn- og tækni-
greina, Kennarasambandið, STAK
ogVR.
Aðspurður um hvort lítill áhuga
fyrir þátttöku í kröfugöngu verka-
fólks á 1. maí sé ekki tilefrú til að
verkalýðsfélögin þurfi að „poppa
upp“ dagskrána m.t.t. nýrra tíma,
sagði Vilhjálmur Birgisson, formað-
ur VLFA „Við höfum vissulega rætt
þann möguleika að brjóta upp upp-
byggingu dagskrárinnar á 1. maí.
Þurfum e.t.v að gera daginn að meiri
hátíðisdegi með þátttöku allrar fjöl-
skyldunnar, án þess samt að draga úr
mikilvægi baráttudagsins að bent sé
á réttindamál okkar á hverjum
tíma.“
Forsendur
brostnar
Hátíðarræðu
dagsins flutti
Ólafur Darri
Andrason, deild-
arstjóri hag-
fræðideildar
ASÍ. Gerði hann
að umtalsefhi
hugsanlega upp-
sögn kjarasamn-
inga í haust þar
sem forsendur
samninganna væra brostnar. Sagði
hann m.a. fátt geta komið í veg fyrir
að kjarasamningum á hinum al-
menna vinnumarkaði verði sagt upp
í haust, komi ekki til leiðréttingar,
þar sem verðbólga hafi undanfama
mánuði verið umtalsvert hærri en
viðmiðun samninganna segði til um,
en þar er miðað við 2,5% verðbólgu.
Má ekki étast upp af
verðbólgu
Aðspurður segir Vilhjálmur Birg-
isson það verða kröfu latmþega þeg-
ar fjallað verður um forsendur kjara-
samninga að leiðrétting komi, ella
verði samningum einfaldlega sagt
upp miðað fyrir 10. desember og
taki sú uppsögn gildi um áramótin.
Segir hann að þegar kjarasamningar
vora undirritaðir 6. mars hafi VLFA
verið eitt af fáum félögum innan
Starfsgreinasambandsins sem ekki
skrifuðu trndir samninga á hinum al-
menna vinnumarkaði, enda var það
mat félagsins að þeir samningar væri
of rýrir. „Við höfum sérsamninga
við flesta okkar viðsemjendur. Okk-
ar samningar við stóriðjuverin t.d.
hafa verið að gefa umtalsvert meira
en samningar SGS, eða 21-24,5% á
samningstímanum eða upppundir
9% meira en samningar SGS.“ Vil-
hjálmm bætir við: „Það er óþolandi
að verkafólk eitt og sér þurfi að við-
halda stöðugleikanum í íslensku
þjóðfélagi og hverjar sem ástæður
verðbólgu era, hækkun íbúðalána
eða aðrir þættir, þá er ólíðandi að
samningsbundnar hækkanir étist
upp í verðbólgu eins og nú er raun-
in.“ MM
Samið við eftirHtsnefhdina
Gengið hefur verið ffá sam-
komulagi milli Snæfellsbæjar og
eftirlitsnefhdar með fjármálum
sveitarfélaga um 35 - 40 milljóna
króna styrk á þessu ári til að laga
fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. „Þeir
telja samkvæmt ársreikningi 2003
að við þurfum á fjárhagslegri að-
stoð að halda og ég er að mörgu
leyti ánægðm með það því pening-
amir koma sér vel þótt ég sé ekki
sammála túlkun nefndarinnar,"
segir Kristinn Jónasson bæjarstjóri.
í samningnum er kveðið á um að
sveitarfélagið skili hallalausum
rekstri á þessu ári. Einnig þarf
þriggja ára fjárhagsáætltm að gera
ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðm-
stöðu.
„Við þurfum að gæta aðhalds
eins og við höfum gert. Við höfum
verið að endmskipuleggja í skóla-
málum og séð ýmis önnm tækifæri
í sparnaði. Mestu munar þó um að
við eram búin að ná samkomulagi
við heilbrigðisráðherra um að
ráðuneytið komi að því að laga
rekstminn á Dvalarheimilinu Jaðri.
\fið höfum þurft að borga um 11
milljónir á ári með heimilinu en
það á ekki að vera á hendi sveitarfé-
laga að reka hjúkrunarheimili. Við
sjáum því fram á að við eigum að
geta sldlað sveitarsjóði hallalausum
miðað við þessar forsendm,“segir
Kristinn. Þess má reyndar geta að
bæjarsjóður var rekinn með 27
milljóna króna hagnaði árið 2004.
GE
Rafræn innritun í framhaldsskólana
Aðsókn að framhaldsskólum
landsins heffrr verið að aukast jafnt
og þétt. Samkvæmt tölum frá Hag-
stoffr Islands hófu 93% 16 ára ung-
linga nám í ffamhaldsskólum sl.
haust og heffrr það hlutfall aldrei
verið hærra.
Menntamálaráðuneytið hefur
undanfarin misseri unnið að breyt-
ingum á ixmritun í framhaldsskóla
og hefur ráðuneytið nú ákveðið að
taka upp rafræna innritun fyrir þá
nemendm sem hyggja á framhalds-
nám. Nemendm sem ljúka 10. bekk
grunnskóla nú í vor munu þurfa að
sækja um á netinu hér eftir. Þeir
verða því þeir fyrstu sem þanxúg
ixmritast í framhaldsskóla. Aðrir
umsækjendm sækja um á eyðublöð-
um sem send era útfyllt til viðkom-
andi skóla ásamt afritum af einkuxm-
um úr fyrra námi.
Samkvæmt upplýsingum úr
menntamálaráðuneytinu mun raf-
ræn innritun auðvelda yfirsýn yfir
eftirspum nemenda eftir skólum og
námsbrautum. Það leiðir til þess að
fyrr verðm ljóst hverjar ósldr nem-
enda era og því auðveldara að
bregðst við þeim. Þjónusta við nem-
endur á því að verða betri og
sneggri. Talsverðm vinnuspamaðm
fylgir rafrænni innritun og hún get-
m verið pappírslaus að mestu leyti.
Tíminn sem nemendur fá til að
ganga frá umsóknum lengist og nýir
möguleikar opnast til að tengja inn-
ritunina námsráðgjöf og öðram
þáttum skólastarfsins í grunnskólun-
um í samvinnu við ffamhaldsskól-
ana. Forráðamenn nemenda í 10.
bekk munu fá bréf frá ráðuneytinu
fyrri hluta maímánaðar þar sem fyr-
irkomulag innritunarinnar verðm
kynnt nánar. Aðkoma foreldra/for-
ráðamanna ólögráða unglinga er
skilyrði fyrir skráningu þeirra til
náms í framhaldsskóla.
Nemendur 10. bekkjar fá lykilorð
sem veitir þeim persónulegan að-
gang að innritun á netinu ásamt
leiðbeiningum um hvemig sækja
skal um. Þeir geta nýtt tölvukost
grunnskóla eða ffamhaldsskóla til að
sækja um eða innritað sig hvar sem
þeir hafa aðgang að netinu. Um-
sækjendm fylla út raffænt umsókn-
areyðublað og velja sér framhalds-
skóla, skóla til vara, námsbraut og
aðra þjónustu sem í boði er í ein-
stökum skólum. Skólaeinkunnir 10.
bekkinga svo og einkunnir þeirra á
samræmdum prófum verða fluttar
raffænt með umsóknum til viðkom-
andi framhaldsskóla.
Umsóknarkerfið verðm opnað nú
um miðjan maí og verður opið til
14. júní. A þeim tíma geta umsækj-
endm hvenær sem er unnið með
umsóknir sínar og breytt vali á skóla
og námsbraut. A miðnætti þann 14.
júní lýkur umsóknarffesti og skól-
amir hefja úrvinnslu umsókna. Geti
skófi ekki orðið við umsókn verðm
hún send í skóla sem nemandi valdi
til vara. Þegar allar umsóknir hafa
verið afgreiddar fá nemendm bréf
með tilboði um skólavist. Nemend-
ur þurfa að staðfesta veitta skólavist
með greiðslu innritunargjalds.
MM
Mótmæla
skerðingu
ARNARSTAPI: Ábúendur á
Bjargi á Amarstapa hafa mót-
mælt þeirri ákvörðtm Snæfells-
bæjar að taka hluta af landi Bjargs
undan jörðinni. Bæjarstjórn
Snæfellsbæjar, sem er eigandi
jarðarinnar, hefur látið skipu-
leggja hluta landsins undir sum-
arbústaðabyggð og að sögn
Kristins Jónassonar bæjarstjóra
er klásúla í leigusamningnum
sem heimilar landeiganda að taka
hluta landsins til sín hvenær sem
er. Ábúendm jarðarinnar hafa
hinsvegar mótmælt þessari á-
kvörðun á þeim forsendum að
ekki sé farið að lögum. -ge
Friðlandið
stækkað
SNÆFELLSBÆR: Umhverfis-
stofnun heffrr lýst yfir áhuga á
stækkun ffiðlandsins á Búðum á
Snæfellsnesi. I dag er stærstur
hluti af Búðahrauni friðland en ef
áform Umhverfisstofnunar
ganga eftir mun friðlandið
stækka f átt að Amarstapa og
verðm þá orðið smtt í þjóðgarð-
inn. Hugmyndir hafa verið uppi
um að þjóðgarðurinn Snæfells-
jökull næði alla leið að Búðum og
má segja að þetta sé skref í þá átt.
-g'
Nýr Tónlistar-
skólastjóri
STYKKISHÓLMUR: í síðustu
viku var gengið ffá ráðningu nýs
skólastjóra Tónlistarskólans í
Stykkishólmi. Það er Jóhanna
Guðmundsdóttir sem tekm við
af Hafsteini Sigurðssyni sem
sinnt heffrr starfi skólastjóra í af-
leysingum í vetur, en Jóhanna
hefur hingað til sinnt kennslu við
skólann ásamt öðrum störfum.
Jóhanna tekm formlega til starfa
l.ágústnk. -mm
Leiðrétting
GRUNDARFJ ÖRÐUR: í ffétt
um landaðann afla á Snæfells-
nesi, sem sagt var ffá í 14. tbl.
Skessuhoms var rangt farið með
tölu um ársafla sem á land barst í
Grundarfirði. Hið rétta er að
ársafli þar var 15.028 tonn á síð-
asta ári en ekki 11.356 tonn eins
og sagði í fféttinni. Biðjumst við
velvirðingar á þessu. -mm
Ullarhosuleikar
AKRANES: Á íþróttadegi ung-
lingastigsins í Brekkubæjarskóla í
liðinni viku fór ffam árlegur
kappleikur milli keppnisliða
kennara og nemenda í ullar-
sokkafótbolta. Sú merka íþrótta-
grein fer þannig ffam að spilað er
í ullarhosum og notaður sérstak-
lega mjúkm bolti, sem reyndar á
það til að láta afar illa af stjóm.
Reynir leikurinn því mjög á jafii-
vægisskyn, snerpu og næmni í
hreyfingum. Er skemmst ffá því
að segja að lið kennara lagði lið
nemendanna að velli og sigraði
3-2 í gríðarlegum baráttuleik.
-mm
WWW.SKESSUHORN.lS
Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501
Skessuhom kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750
sé greítt meö greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr.
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhom.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaðamaður: Gísli Einarsson 899 4098 gisli@skessuhorn.is
Augl. og dreifing: íris Arthúrsd. 696 7139 iris@skessuhorn.is
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is
Prentun: ísafoldarprentsmiðja