Skessuhorn - 25.01.2006, Side 1
Virka daga 10-19
Laugard. 10-18
Sunnud. 12-18
VIKUBLAÐ A VESTURLANDI
nettö
alltaf gott - alltaf ódýrt
4. tbl. 9. árg. 25. janúar 2006 - Kr. 300 í lausasölu
Skip-
verjum á
Vfldngi
sagt upp
Síðastliðinn laugardag sögðu
forsvarsmenn HB Granda hf.
sldpverjum á Víkingi AK 100
upp störfum. Skipið mun þó
veiða loðnu á yfirstandandi
loðnuvertíð, þ.e.a.s. ef einhver
veiðanleg loðna finnst. Að ver-
tíðinni lokinni verður skipinu
hinsvegar lagt ffam í janúar á
nsesta ári. „Astæðan er meðal
annars breytt veiðimynstur á
kolmtmna og óvissa um sumar-
veiði á loðnu,“ segir í firétt ffá
fyrirtældnu. Þá hefiir síldarkvóti
skipsins færst á önnur skip félags-
ins.
Eins og ffam kemur í uppsagn-
arbréfi til skipverja, sem birt er á
vef Verkalýðsfélags Akranesss, er
ástæða uppsagnanna sagður
verkefnaskortur. I uppsagnar-
bréfinu er sldpverjum jafnffamt
tilkynnt að áhersla verði lögð á
að útvega þeim störf á einhverju
af þeim skipum sem áffam verða
í rekstri hjá HB Granda, hafi þeir
á því áhuga.
Þess má geta að samkvæmt töl-
um Fiskistofu hefur Víkingur AK
samtals landað 160 þúsund tonn-
um af loðnu og síld í Akranes-
höfn ffá árinu 2000. Segja má að
sú aðgerð að leggja nú skipinu
Víkingi sé hluti af ákveðinni þró-
un sem átt hefur sér stað undan-
farandi misseri og sýnir í hnot-
skurn breytt útgerðarmynstur
fyrirtækisins sem m.a. hefur leitt
af sér minni umsvif við veiðar og
vinnslu uppsjávarfisks á Akranesi.
MM
ATLANTSOLIA
Dísel 'Faxabraut 9.
Bóndadagurinn var sl. fóstudag ogþorrinn gekk í garð. Fyrstu blótin fóru frarn um liðna helgi með tilheyrandi skemmtan og ekki síst
hömlulausu áti á þjóðlegum og góðum mat. Hér er Kristýán Om Frederiksen, kokkur vii þorrabakkana í Logalandi. Hann og hansfólk
hafði í nógu að snúast um helgina og raunar nœstu helgar við veisluhöld víða um héraðið. Ljósm. MM
Nafnið Peningasveit
hlaut mest fylgi í
könnun nemenda
Á íbúaþingi, sem íbúar væntan-
legs sveitarfélags sunnan Skarðs-
heiðar sóttu og haldið var í félags-
heimilinu að Hlöðum fyrir
skömmu, tóku nemendur Heiðar-
skóla virkan þátt. Þeir fluttu erindi
um sýn unga fólksins á hið nýja
sveitarfélag og möguleika þess í
framtíðinni. Meðal þess sem unga
fólkið gerði fýrir þingið var að
kanna hug nemenda og starfsfólks
Heiðarskóla hvert ætti að vera nafn
hins nýja sveitarfélags.
Sveitarfélögin sem sameinast í
vor eru Innri-Akraneshreppur,
Leirár- og Melahreppur, Hvalfjarð-
arstrandarhreppur og Skilmanna-
hreppur. Alls bárust 37 hugmyndir
að nafni og var kosið á milli þeirra.
Mörg nafnanna koma kunnuglega
fyrir eins og nöfn þeirra sem nú
sameinast og hlutu þau nokkurt
fylgi hvert um sig.
í nýjum nöfnum var áberandi að
fólk leitaðist við að nýta örnefni á
svæðinu. Má þar nefna Skarðs-
hreppur, Skarðsheiðarbyggð,
Glymhreppur, Akraskarð og Hval-
borg. Til örnefna verður sjálfsagt
að telja himininn og ein tillaga kom
með nafninu Himnasveit. Af fleiri
nöfnum má nefna Álfaborg,
Grunnafjarðarhreppur, Grunni-
fjörður, Melaþúfa, Skessuheiði,
Stmnanhreppur og Hreppahrepp-
ur.
Sumir vildu tengja nafnið við
raunveruleikann og töldu Norður-
álshrepp heppilegt nafn og eins og
fram kom í frétt Skessuhorns af
íbúaþinginu þá var það ofarlega í
hugum íbúa að hægt væri að halda í
sveitarómantíkina við uppbyggingu
nýja sveitarfélagsins. Sá sem lagði
til nafnið Sveitahreppur hefur ef-
laust verið með slíkt í huga. Fjár-
hagslegur styrkur þessara sveitarfé-
laga hefur nokkuð verið í umræð-
unni en hvort það var ofarlega í
huga þess er lagði til nafnið Lána-
mannahreppur skal ósagt látið.
I fjórða sæti í áðurnefndri stiga-
gjöf varð nafnið Hvalfjörður sem
hlaut 85 stig. I þriðja sæti varð eitt
núverandi nafna, Skilmannahrepp-
ur, með 89 stig. Tveimur stigum
þar fýrir ofan var annað núverandi
nafna; Hvalfjarðarstrandarhreppur.
Afgerandi flest stig, eða 116 talsins,
hlaut nafnið Peningasveit.
Framtak nemendanna hlaut mik-
ið lof fundarmanna sem þökkuðu
með langvarandi lófataki. Fyrstu
sveitarstjórn hins nýja sveitarfélags
bíður það ánægjulega en vanda-
sama hlutverk að ákveða nafttið og
hafa án efa til hliðsjónar lista nem-
endanna.
HJ
Atvinnu-
leysi vex
lítilsháttar
Þann 16. janúar voru 95
manns án atvinnu á Vesturlandi
samkvæmt tölum frá Svæðis-
vinnumiðlun Vesturlands. Hef-
ur atvinnuleysi aukist nokkuð
undanfarnar vikur því þann 26.
desember voru 68 manns án at-
vinnu. Mun meira atvinnuleysi
er nú meðal kvenna og eru nú
62 konur án atvinnu en 33 karl-
ar. Flestir eru atvinnulausir á
aldrinum 50-59 ára eða 18
manns. Af einstökum sveitarfé-
lögum má nefna að mest er at-
vinnuleysið á Akranesi en þar
voru 54 án atvinnu þann 16. jan-
úar. Á sama tíma voru 16 manns
án atvinnu í Stykkishólmi, í
Snæfellsbæ voru 6 manns án at-
vinnu og 5 í Borgarbyggð og í
Grundarfirði. HJ
Afburða
kúabú
Leirulækjarsel í Borgarbyggð
var á síðasta ári í örðu sæti yfir
afurðahæstu kúabúin á landinu.
Það bú skilaði 7.445 kílóum
mjólkur á hverja kú en hæsta
búið, Kirkjulækur II í Fljótshlíð,
var með 7.669 kíló mjólkur á
hverja kú. I þriðja sæti varð búið
á Stakkhamri í Miklaholtshreppi
en það bú skilaði 7.137 kíló
mjólkur.
Afurðahæsta kú landins í fyrra
varð Rófa á Nýabæ tmdir Vestur-
Eyjafjöllum en hún mjólkaði
11.265 kg. I þriðja sæti varð Eyða
á Hraunhálsi í Helgafellssveit en
hún mjólkaði 11.051 kg. og Sossa
í Leirulækjarseli varð í 10. sæti en
hún mjólkaði 10.539 kg.
Þessar tölur koma fram í
skýrslu sem Jón Viðar Jón-
mvmdsson nautgriparáðunautur
Bændasamtaka Islands hefur
tekið saman. IT_
■essr
Campagna
pastavörur
Akureyri • Blönduós • Bolungarvík • Borgarnes • Dalvík • Egilsstaðir • Hafnarfjörður • Húsavik • ísafjörður • Neskaupsstaöur • Njarðvík • Ólafsfjörður • Selfoss • Siglufjörður • Skagaströnd
Verð birt með fyrirvara um prentvillur • Tilboðin gilda 26. - 29. jan.